|
Á næstunni Milljarðamærin snýr aftur Hart í bak Sannleikurinn Eterinn Þú ert hér Mr. Skallagrímsson Stundum, stundum ekki Sædýrasafnið Dubbeldusch Þrettándakvöld Fúlar á móti Rachel Corrie Kardimommubærinn Fló á skinni Húmanímal Brák Óskar og bleikklædda konan
Skrifaðu þitt álit!
|
Húmanímal
Laugardaginn 4. Apríl frumsýnir hópurinn "Ég og vinir mínir" verkið Húmanimal í Hafnarfjarðarleikúsinu.
Húmanímal fjallar um manninn, dýrið sem heldur sig vera hafið yfir eðli sitt. Í nútímasamfélagi hefur hann komið sér upp kerfi af hefðum og reglum sem hann fylgir án þess oft á tíðum að gera sér sjálfur grein fyrir hvers vegna. Í Húmanímal er lagt í leiðangur undir yfirborð þessa kerfis í leit að hinu týnda eðli mannsins.
Ævintýraleg sýning fyrir alla mannapa.
Full af tónlist, dansi og dýrslegum frumkrafti.
Nánar um sýningatíma
Tónlistarskólinn í Reykjavík
Helgina 3. til 4. apríl verða færðar upp tvær óperur í Íslensku óperunni, í uppfærslu Tónlistarskólans í Reykjavík í samvinnu við Íslensku óperuna. Þessi óperusýning sætir nokkrum tíðindum, því hér er annars vegar um að ræða frumflutning á nýrri íslenskri óperu, Gilitrutt eftir Þórunni Guðmundsdóttur, og hins vegar frumflutning á Íslandi á fyrstu óperu Rossinis, La cambiale di matrimonio.
Leikstjórn er í höndum Þórunnar Guðmundsdóttur og hljómsveitarstjóri er Kjartan Óskarsson. Hljómsveitin er skipuð tæplega 20 nemendum úr Tónlistarskólanum í Reykjavík. Sýningar verða aðeins tvær, föstudaginn 3. apríl og laugardaginn 4. apríl, báðar klukkan 20.
Nánar um sýninguna
Gefðu Jens séns
Unglingadeild Leikfélags Hafnarfjarðar frumsýna, laugardaginn 4. apríl, nýtt frumsamið spunaverki í húsakynnum félagsins í Gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði, sem ber nafnið Gefðu Jens séns.
Verkið er unnið af leikhópnum og leikstjórum hans. Leikhópurinn samanstendur af 8 eldhressum unglingum, en umsjónarmenn og leikstjórar eru þær Guðrún Sóley Sigurðardóttir og Hrefna Lind Lárusdóttir.
Nánar um sýninguna
Sex í sveit
Föstudaginn 3. apríl frumsýnir Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna gamanleikinn Sex í sveit eftir Marc Camoletti í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Sýnt verður í félagsheimilinu Aratungu og hefjast sýningar kl. 20.30. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson.
Leikurinn gerist í sumarbústað úti á landi. Húsráðandi hefur boðið hjákonu sinni í heimsókn yfir helgi, því eiginkonan ætlar að heiman. Frúin hættir við á síðustu stundu, hjákonan er mætt og nú eru góð ráð dýr. Margt fer öðruvísi en áætlað var...
Nánar um sýninguna
Fjórar sýningar í gangi hjá LA um páskana
Það verður úr nógu að velja fyrir þá sem hyggjast dvelja í höfuðstað Norðurlands núna um páskana en Leikfélag Akureyrir býður uppá 4 sýningar yfir hátíðirnar. Þetta eru Fúlar á móti með þeim Eddu Björgvins, Helgu Brögu og Björk Jakobs sem slegið hefur rækilega í gegn, Tenórinn, sem saminn og fluttur er af Guðmundi Ólafssyni, Skoppa og Skrítla fyrir yngstu börnin og svo Þjónn í súpunni sem sýnt er í samvinnu við veitingahúsið Friðrik V.
Sjá nánar á leiklist.is
|