|
Á næstunni Þú ert hér Mr. Skallagrímsson Hart í bak óskar og bleikklædda konan Fúlar á móti Milljarðamærin snýr aftur Rachel Corrie Stundum, stundum ekki Sædýrasafnið Sannleikurinn Þrettándakvöld Eterinn Dubbeldusch Skoppa og skrítla Kardimommubærinn Fló á skinni Stormar og styrjaldir
Skrifaðu þitt álit!
|
Sædýrasafnið

Tvær fjölskyldur neyðast til að dvelja saman við undarlegar aðstæður á sædýrasafni. Nýtt verk eftir eina þekktustu skáldkonu Frakka í dag sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu föstudaginn 27. mars. Listamenn frá fjórum löndum skapa leiksýningu sem einnig verður sýnd í ríkisleikhúsinu í Orléans. Knýjandi spurningar um framtíð okkar, settar fram í sýningu þar sem myndlist, tónlist og dans gegna mikilvægu hlutverki.
Sýningin verður fyrst sýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu, en síðan í ríkisleikhúsinu í Orléans í Frakklandi í maí. Leikið er á íslensku.
Nánar um sýningatíma
Þú ert hér
Föstudaginn 27. mars frumsýnir Borgarleikhúsið leikritið Þú ert hér. Sýningin er viðbragð við þeim breytingum sem íslenska þjóðin hefur gengið í gegnum á undanförnum mánuðum.
Þú ert hér Þrír menn eru staddir í rústum. Þeir uppgötva að veröld þeirra er liðin undir lok og að þeir verða að læra að fóta sig að nýju. Úr rústunum í kringum sig raða þeir saman bútum af fyrra lífi og reyna að átta sig á því hvar þeir eru staddir, hvað hafi gerst og hvert skuli stefna. Þeir bregða upp myndum af því sem gerðist og viðbrögðum fjármálaheimsins, stjórnmálanna og íslenskrar alþýðu. Þar blandast saman bensínlaus lúxusjeppi, íslenska sauðkindin, geimfari með íslenskan fána, afmælisbarn og nóg af kóki.
Nánar um sýninguna
Sjö gyðingabörn leiksýning fyrir Gaza
Ath. aðeins 2 sýningar!
Sjö gyðingabörn leikrit fyrir Gaza, er nýtt 10 mínútna leikrit eftir Caryl Churchill, sem frumsýnt var í Royal Court leikhúsinu í London í febrúar síðastliðnum. Churchill skrifaði leikritið nú í janúar í kjölfar átakanna á Gaza. Verkið birtir okkur sjö svipmyndir sem eiga sér stað á mismunandi tímum í sögunni.
Höfundurinn setur þau skilyrði fyrir sviðsetningu verksins að aðgangur sé ókeypis og að eftir hverja sýningu verði söfnun. Allt fé sem safnast rennur beint til læknishjálpar á Gaza. Það er fátítt að leikhús bregðist svo skjótt við heimsviðburðum en Borgarleikhúsið er þriðja leikhúsið sem setur verkið á svið.
Nánar um sýninguna
Auðun og ísbjörninn
1. apríl nk. mun Kómedíuleikhúsið frumsýna nýtt verk, Auðun og ísbjörninn, eftir Soffíu Vagnsdóttur sem leikstýrir einnig verkinu.
Hér segir af Auðun bóndastrák að vestan sem leggst í víking og að vegi hans verður ísbjörn. Hann kaupir björninn og ákveður að færa hann Danakonungi og hefst þá ævintýralegt ferðalag Auðunar og ísbjarnarins. Auðun og ísbjörninn er nýtt íslenskt leikverk sem er byggt á Auðunar þætti vestfirzka sem er án efa vinsælasti og besti allra Íslendingaþátta
Nánar um sýninguna
Forsala á Söngvaseið
Forsala á Söngvaseið hófst 25. mars en frumsýning á verkinu verður 8. maí nk. á stóra sviði Borgarleikhússins. Nú þegar hafa fjölmargir miðar selst á sýninguna en eftirspurn eftir miðum var svo mikil við opnun miðasölunnar að símkerfi Borgarleikhússins gaf eftir.
Hægt er að nálgast miða bæði í miðasölu Borgarleikhússins og eins á miðasöluvef Borgarleikhússins og er vakin athygli á að handhafar Vísa fá afslátt af miðaverði.
Vefur Borgarleikhússins
|