leikhús.is
- allt um leikhús á Íslandi

Ég heiti Rachel Corrie
Leikhúsleikurinn
SGA ehf. býður í leikhús!

Þú átt möguleika á að vinna tvo miða á leiksýninguna Ég heiti Racel Corrie sem sýnt verður í Borgarleikhúsinu. Leikritið er byggt á ævi friðarsinnans Rachel Corrie sem lét lífið á Gaza-svæðinu 16. mars 2005 þegar hún reyndi að standa í vegi fyrir því að Ísraelsk jarðýta eyðilegði palestínskt hús. Jarðýtan ók yfir hana og hún lést af sárum sínum.

Söluskóli Gunnars Andra ehf.

Taktu þátt í leikhúsleiknum 

Búið er að draga út vinningshafa í leikhúsleik Argentínu steikhús og má sjá nöfn vinningshafa inn á leikhús.is.

Á næstunni
Eterinn
Rachel Corrie
Þrettándakvöld
Hart í bak
Fúlar á móti
Milljarðamærin snýr aftur
Dubbeldusch
Skoppa og skrítla
Kardimommubærinn
Mr. Skallagrímsson
Fló á skinni
Sannleikurinn
Brák


Álit áhorfenda

Um sýninguna: 
Rokkóperan !HERO
Glæsileg sýning og gífurlega hæfileikaríkir leikarar og söngvarar sem standa að henni þó að flestir séu ungir að árum. Ég vissi ekki við hverju ég ætti að búast þegar ég og vinkona mín skelltum okkur á !Hero, en við urðum svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum!
Að mínu mati stórglæsilegt hjá þeim!
Helena
(4 stjörnur)

Um sýninguna:
Sannleikurinn

Pétur fékk mig til að brosa í byrjun og náði ég að halda brosinu út leikritið. Náði aldrei að deyja úr hlátri. Ekki þess virði að sjá.
Kári
(2 stjörnur)



Skrifaðu þitt álit!


Þrettándakvöld

Þrettándakvöld

Þjóðleikhúsið frumsýndi gleðileik Shakespeares, Þrettándakvöld (eða hvað sem þér viljið)  föstudaginn 13. mars sl.  í samstarfi við Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands.

Sívinsæll gamanleikur Shakespeares gerist í Illiríu þar sem ástleitinn greifi fellir hug til meyjar af aðalsættum sem ekki vill þýðast nokkurn mann - því hún syrgir bróður sinn. Önnur systkin, skipreka frá fjarlægu landi, verða síðan til þess að stokka rækilega upp í félagslífi Illeríumanna með tilheyrandi misskilningi, ástarfléttum og brellum. Og í kringum alla hirðina dansar fíflið Fjasti.

Útskriftarnemar leiklistardeildar LHÍ vinna ásamt leikurum Þjóðleikhússins undir leikstjórn Rafaels Bianciotto. Rafael Bianciotto er þekktur fyrir óvenjulegar nálgunaraðferðir í leikhúsi, sem byggja einkum á grímuvinnu, commedia dell’ arte og trúðatækni. Hann leikstýrði m.a. rómaðri uppsetningu Borgarleikhússins á Dauðasyndunum á liðnu leikári.

Nánar um sýninguna

Rachel Corrie

Rachel CorrieHvað fær unga konu til að yfirgefa lúxuslíf í Bandaríkjunum og flytja á átakasvæði Palestínu og Ísraelsmanna? Bandaríski friðarsinninn Rachel Corrie lét lífið á Gaza-svæðinu 16. mars 2005 þegar hún reyndi að standa í vegi fyrir því að ísraelsk jarðýta eyðilegði palestínskt hús. Jarðýtan ók yfir hana og hún lést af sárum sínum.

Rachel var aðeins 23 ára en skildi eftir sig dagbækur sem auk þess að bera lífsviðhorfi hennar og baráttuþreki glöggt vitni gefa sannfærandi mynd af leit ungrar manneskju að sjálfri sér og tilgangi í lífinu.

Verkið verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu 19. mars nk.

Nánar um sýninguna

Eterinn

EterinnÞórir Sæmundsson deilir með áhorfendum hugsunum sínum, sögum og vangaveltum um lífið, dauðann og lífið eftir dauðann. Í þessari sýningu ríkir mikil nánd við áhorfendur, en í sýningunni er um leið notast við áhrifamikla og nýstárlega margmiðlun hljóðs og mynda. Klæðskerasniðin sýning fyrir Þjóðleikhúsið.

Sýning verður frumsýnd 20. mars næstkomandi.
Ath. takmarkaður sætafjöldi.

Eter er fornt orð yfir "ljósvaka" en orðið er upphaflega komið úr grísku og vísar, innan goðafræði Forn-Grikkja, til hreins lofts eða heiðs himins yfir dvalarstað guðanna. Ljósvaki er það efni sem talið var að fyllti rúmið milli hnatta og efnisagna en orðið hefur öðlast nýja merkingu í tengslum við nútímafjölmiðla.

Lesa nánar

 
Fréttabréf leikhús.is er eingöngu sent vildarvinum sem óska eftir því, með skráningu á www.leikhus.is eða með
þátttöku í leikhúsleiknum hjá leikhús.is.
leikhús.is - Laugavegi 8, 101 Reykjavík - s: 552 1001 - leikhus@leikhus.is