|
Á næstunni Óskar og bleikklædda konan Milljarðamærin snýr aftur Hart í bak Fúlar á móti Rústað Sannleikurinn Stormar og styrjaldir Dubbeldusch Rokkóperan !Hero Skoppa og skrítla Kardimommubærinn Fló á skinni Harry Potter Falið fylgi Velkomin heim Mr. Skallagrímsson
Álit áhorfenda
Um sýninguna: Sannleikurinn Mjög hresst og skemmtilegt uppistand með óvæntum snúningum. Pétur Jóhann gerir grín að öllu milli himins og jarðar á meðan hann leitar að tilgangi lífsins og tekst vel til. Sýning sem maður fer brosandi út af. :) Andrea (3 stjörnur)
Skrifaðu þitt álit!
|
Óskar og bleikklædda konan
Fimmtudaginn 5. mars kl. 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Litla sviðinu einleikinn Óskar og bleikklædda konan eftir Eric-Emmanuel Shcmitt. Verkið fjallar um Óskar, tíu ára dreng sem þjáist af hvítblæði og bíður hins óhjákvæmilega á spítala. Sjálfboðaliði sem kemur reglulega í heimsóknir hvetur Óskar til þess að skrifa bréf til Guðs og skapa sér þannig framtíð sem ósennilegt er að hann muni lifa. Leikritið er í senn einstaklega fallegt, fyndið og hjartnæmt. Það er Margrét Helga Jóhannsdóttir sem flytur einleikinn en það hefur hún áður gert með eftirminnilegum hætti í hlutverki Sigrúnar Ástrósar sem sló heldur betur í gegn. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson sem er annar af fastráðnum leikstjórum Borgarleikhússins.
Nánar um sýninguna
Stormar og styrjaldir á Sturlungaöld
Föstudaginn 6. mars hefur göngu sína ný sagnaskemmtun á Sögulofti Landnámsseturs þegar rithöfundurinn og sagnamaðurinn Einar Kárason stígur á stokk og segir efni Sturlungu. Einar kallar sögu sín Stormar og styrjaldir á Sturlungaöld. Einar hefur á undanförnum árum kafað undir yfirborð Sturlungu og sett söguefnið fram í bókunum Óvinafagnaður og Ofsi. Fyrir Ofsa hlaut Einar Bókmenntaverðlaun 2009.
Í þessum bókum lætur Einar persónur Sturlungu, sjónarvotta atburðanna og gerendur segja okkur frá í fyrstu persónu. Með þessum stíl færir Einar okkur eins og inn í atburðarásina og reynir að varpa ljósi á ástæður þeirra voðaverka sem framin voru eða gefur persónum kost á að úrskýra gerðir sínar. Það er eins og við séum að heyra um viðburði sem gerðust í gær. Stormar og styrjaldir verða á dagskrá Landnámsseturs fram á vorið.
Sýningadagar
Alli Nalli og tunglið
Sunnudaginn 8. mars kl. 14:00 frumsýnir Möguleikhúsið nýtt íslenskt barnaleikrit, Alli Nalli og tunglið, í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
Pössunarpíurnar Ólína og Lína eru mættar til að stytta ykkur stundir næstu þrjá stundarfjórðungana. Þær vita fátt betra en að vera með börnum, fara með þeim í leiki og gera annað skemmtilegt. Þær hafa líka ýmsar sögur að segja af honum Alla Nalla, sem var fyrsti krakkinn sem þær pössuðu. Þó Alli Nalli væri oftast góður og þægur átti hann stundum til að vera pínulítið óþekkur eins og aðrir krakkar. Eins og til dæmis þegar hann harðneitaði að borða grautinn sinn á kvöldin. Þá gaf mamma hans tunglinu grautinn og tunglið stækkaði og stækkaði.
Nánar um sýninguna
Rokkóperan !Hero
Rokkóperan !HERO eftir Eddie DeGarmo og Bob Farrell gerist í New York borg nútímans í heimi þar sem Jesús hefur aldrei lifað. Stjórn heimsins er í höndum ICON (alþjóðlegt ríkjabandalag). Nánast öllum trúarbrögðum hefur verið ýtt til hliðar, en þó er eitt samkunduhús í Brooklyn.
Þarna elst Hero upp og fer að prédika fyrir borgarbúum að elska óvini sína og boðar nýtt líf sem er ekki af þessum heimi. Yfirmenn ICON sjá þetta og leggja á ráðin um að losa sig við Hero í eitt skipti fyrir öll.
Tónlistin í sýningunni spannar yfir rokk-popp-rapp og fallegar melódíur svo fátt eitt sé nefnt. Sýningin er því tónlistarveisla þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi!
Nánar um sýninguna
|