|
Á næstunni Falið fylgi Sannleikurinn Ástverk ehf. Milljarðamærin snýr aftur Fúlar á móti Hart í bak Rústað Harry Potter Heiður Dubbeldusch Mr. Skallagrímsson Systur Skoppa og skrítla Kardemommubærinn Brák Óperuperlur Velkomin heim
Álit áhorfenda
Um sýninguna: Heiður Ákaflega fallega framsett leikrit. Leikmynd til prýði og leikurinn eftir því, hnökralaus og eðlilegur. Lýsingin var einnig nokkuð skemmtileg og senuskipting oftast nær þægileg.
Verkið sjálft er áhugavert og sagan góð og falleg, þótt efnistökin séu ekki kannski af fallegri kantinum. Mæli með þessari sýningu fyrir alla! Tomage (4 stjörnur)
Skrifaðu þitt álit!
|
Milljarðamærin snýr aftur
Næstkomandi föstudagskvöld (27. febrúar) frumsýnir Borgarleikhúsið verk eftir svissneska leikskáldið Friederich Dürrenmatt, Milljarðamærin snýr aftur. Sagan gæti hæglega verið sprottin úr íslenskum samtíma en verkið er skrifað fyrir meira en hálfri öld. Íbúar ónefnds bæjarfélags í efnahagshruni eygja vonarglætu um endurreisn en hún felur í sér blóðuga fórn.
Nánar um sýninguna
Fúlar á móti
Leikfélag Akureyrar frumsýndi sl. föstudagskvöld nýtt skítfyndið, frístandandi uppistand í nýrri íslenskri, Fúlar á móti, í útfærslu Gísla Rúnars Jónssonar, byggt á sjónvarpsþáttunum "Grumpy old women"
Edda Björgvins, Helga Braga og Björk Jakobs fara á kostum í bráðfyndnu uppistandi, þar sem þær skauta af sinni alkunnu snilld í gegnum síðara skeiðið og gera óspart grín að sjálfri sér og öðrum. Nú fá karlmenn loksins að vita hvers vegna eiginkonur, systur og mæður þeirra eru eins og þær eru. Þetta er einstakt tækifæri til að skyggnast inn í hugarheim fúlla á móti. Hvað gerist þegar þessar fögru en viðsjárverðu dömur tipla saman um sviðið? Kviknar í þeim? Bíta þær áhorfendur?
Nánar um sýninguna
Kardemommubærinn
Þjóðleikhúsið sýnir nú Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner á Stóra sviðinu. Leikstjóri sýningarinnar er Selma Björnsdóttir. Íbúar Kardemommubæjarins eiga sér vísan stað í hjörtum íslenskra barna og nú færir ný kynslóð leikhúslistamanna okkur þetta dásamlega verk. Boðskapur verksins um mikilvægi umburðarlyndis og heiðarleika á alltaf við, og vísast geta ræningjarnir þrír, Soffía frænka og aðrir íbúar Kardemommubæjar kennt okkur öllum sitthvað gagnlegt.
Lesa nánar
Danssýningin Salka Valka
Salka Valka eftir Auði Bjarnadóttur við tónlist Úlfars Inga Haraldssonar.
Í tilefni þess að Svölu leikhúsinu hefur verið boðið með sýningu sýna Sölku Völku á nútímadanshátíðina tans Welten í Braunschweig í þýskalandi, mun það sýna þrjár sýningar í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið nú í febrúar.
Dansarar í sýningunni eru: Lára Stefánsdóttir Unnur Elísabet Gunnarsdóttir Johann Lindell Pontus Petterson Inga Huld Hákonardóttir Anna Kolfinna Kuran Guðrún Óskarsdóttir Rami Jansson Aðalstein Kjartansson
Miðasala er í Hafnarfjarðarleikhúsinu í síma 555 2222
|