|
Á næstunni Ástverk ehf. Falið fylgi Rústað Velkomin heim Fló á skinni Hart í bak Sannleikurinn Dubbeldusch Fólkið í blokkinni Heiður Systur Sumarljós
Álit áhorfenda
Um sýninguna: Rústað Þegar ég sá að það voru byrjaðar sýningar á ofbeldisfullu verki með þeim Ingvari E. og Birni Thors þá vissi ég að þetta væri eitthvað fyrir mig. Ég varð alls ekki fyrir vonbrigðum.
Verkið lýsir blákalt öllum þeim viðbjóði sem á sér stað í styrjöldum. Magnað hversu vel tekst til að umturna sviðsmyndinni og framkalla trúverðuga borgarastyrjöld í Borgarleikhúsinu á einu augabragði.
Við viljum helst ekki vita og trúa því að allur hryllingurinn sem settur er á svið eigi sér stoðir í raunveruleikanum. Rústið er leikrit sem getur hrisst vel upp í fólki.. eldra en 16 ára.
Karl Gunnarsson (4 stjörnur)
Skrifaðu þitt álit!
|
Pétur Jóhann segir Sannleikann
Pétur Jóhann Sigfússon þeysist um víðan völl í uppljóstrun sinni um lífsins sannleika í nýju verki eftir Sigurjón Kjartansson. Hinn alvitri þykist hafa fundið tilgang lífsins. Í "Sannleikanum" fást svör við spurningum eins og: Er dagurinn styttri hjá hundum? Af hverju eru fjögur hólf fyrir þvottaefni? Láta peningar jörðina snúast? Hvernig fara þeir að því? Og á ég eftir að endurholdgast sem skítafluga?
Nánar um sýninguna
Við heimtum aukavinnu
Í Edinborgarhúsinu á Ísafirði verður boðið uppá alþýðlega leik- og söngskemmtunina Við heimtum aukavinnu í febrúar. Hér er á ferðinni stórskemmtileg sýning sem er byggð á verkum bræðranna Jónasar og Jóns Múla Árnasona. Flutt verður úrval laga þeirra bræðra s.s. Klara Klara, Riggarobb, Einu sinni á ágústkvöldi, Og þá stundi Mundi, Augun þín blá, Langi Mangi,Við heimtum aukavinnu auk fjölda slagara úr smiðju Árnasona. Hér er sannkölluð söngperla á sviði og ekki sakar að allir geta sungið með. Það er Litli leikklúbburinn í samvinnu við Kómedíuleikhúsið sem stendur að Við heimtum aukavinnu í Edinborgarhúsinu.
Nánar um sýninguna
Systur aftur í Iðnó
Þær Lára Stefánsdóttir og Ástrós Gunnarsdóttir sýna nú í febrúar dansverkið Systur. Verkið var frumsýnt í maí 2008 og eru þær nú mættar aftur í Iðnó.
Hér sameina krafta sína tvær af okkar reyndustu dönsurum í magnaðri sýningu þar sem þær dansa við talaðan texta og tónlist. Óvenjuleg sýning sem geislar af orku og fegurð þó glettnin sé aldrei langt undan
Verk ætlað öllum listunnendum og hvetjum við alla til að kíkja í Iðnó og sjá verkið en á dagskrá eru 4 sýningar í febrúar.
Lesa nánar
|