leikhús.is
- allt um leikhús á Íslandi

Velkomin heim - febrúarsýning ÍD
Kæri vildarvinur #nafn#,
Leikhúsleikurinn
Vegamót Bistro/Bar býður í leikhús!

Í leikhúsleik Vegamóta getur þú unnið gjafabréf fyrir tvo á febrúarsýningu Íslenska Dansflokksins, Velkomin heim, sem frumsýnd verður 5. febrúar næstkomandi.
Fyrsti vinningur er 10.000 kr. gjafabréf á Vegamót ásamt gjafabréfi fyrir tvo á Velkomin heim.
Fjórir aðrir heppnir þátttakendur fá hver fyrir sig tvo miða á sýningu ÍD, Velkomin heim.

Vegamót bistro/bar

Taktu þátt í leikhúsleiknum 

Búið er að draga út í leikhúsleik Rauðará. Spurt var um breyttar áherslur á nýjum matseðli hjá Rauðará Restaurant. Áhersla var lögð á að bæta úrval sjávarrétta og léttra rétta en að sjálfsögðu var haldið fast í aðalsmerki staðarins sem eru gómsætar og safaríkar steikur af ýmsum toga.
Kíktu inn á leikhús.is og sjáðu hvort þú hafir verið svo heppin/n að vinna í leikhúsleiknum.

Á næstunni
Hart í bak
Rústað
Fló á skinni
Dubbeldusch
Falið fylgi
Heiður
Brák
Sumarljós
Janis 27
Systur
Fólkið í blokkinni
Mr. Skallagrímsson
21 manns saknað


Álit áhorfenda

Um sýninguna: Brák
Mögnuð sýning sem kom skemmtilega á óvart. Lítið er skrifað um Brák í Egilssögu en Brynhildi tekst að fylla 2 tíma með frábærri persónusköpun og einstaklega lifandi leik sínum. Návistin við hana og aðra áhorfendur gerir þessa sýningu að sérstakri upplifun, hið þrönga Söguloft Landnámssetursins lifnar við með skemmtilegri blöndu ljósa og búninga. Hefði varla trúað að einleikur gæti verið svona sterkur.

Sýning sem stendur upp úr og er alls ekki síðri, jafnvel betri, en hin víðfræga Mr. Skallagrímsson.
Arnar Þór
(5 stjörnur)




Skrifaðu þitt álit!


Velkomin heim - Febrúarsýning ÍD

Velkomin heim - febrúarsýning ÍDÍslenski Dansflokkurinn frumsýnir verkið Velkomin heim þann 5. febrúar 2009.
Febrúarsýning ÍD er að jafnaði einn stærsti dansviðburður ársins.  Velkomin heim er mikið sjónarspil danslistar, tónlistar lýsingar, búninga og sviðsmyndar.  Höfundarnir hafa skapað heim sem mun ekki skilja neinn eftir ósnortinn.

Velkomin heim er skapað í umróti þess augnabliks sem við lifum nú. Titill verksins vísar til ferðalags einstaklings og samfélags - þessarar hringrásar sem við virðumst vera dæmd til að endurtaka um alla eilífð. Hringrás uppbyggingar, velsældar,  erfiðleika og endurmats.

Nánar um sýninguna

Rústað frumsýnt 30. janúar

Rústað eftir Söruh KaneÞegar Rústað var frumsýnt árið 1995 olli það hálfgerðu uppþoti í leikhúsheiminum, svo sterk voru viðbrögðin. Gagnrýnendur ýmist féllu fram í tilbeiðslu eða reittu hár sitt yfir þessu fyrsta leikriti hinnar ungu og frökku Söruh Kane sem féll síðan fyrir eigin hendi langt fyrir aldur fram.

Borgarleikhúsið er fyrst íslenskra leikhúsa til að sviðsetja verk Söruh Kane og í kjölfar frumsýningar á Rústað verða öll hin leikrit hennar flutt í sviðsettum leiklestrum. Kristín Eysteinsdóttir setur nú upp sitt fyrsta verk sem fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið.

Nánar um sýninguna

The show must go on!

The Show Must Go On!Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík frumsýnir splunkunýjan söngleik í samvinnu við Íslensku óperuna föstudaginn 30. janúar næstkomandi kl. 20. Verkið ber heitið The Show Must Go On! og byggir á tónlist ur þekktum söngleikjum og dægurperlum frá ýmsum heimshornum.  Söguþráður og samtöl koma úr smiðju söngvaranna sjálfra.

Alls taka 29 nemendur við Söngskólann í Reykjavík þátt í sýningum ásamt hljóðfæraleikurum undir stjórn Kjartans Valdemarssonar, en leikstjóri sýningarinnar og höfundur dansa er Sibylle Köll. Tvær sýningar eru ráðgerðar á verkinu í Íslensku óperunni, föstudaginn 30. janúar kl. 20 og sunnudaginn 1. febrúar kl. 17.

Lesa nánar

 
Fréttabréf leikhús.is er eingöngu sent vildarvinum sem óska eftir því, með skráningu á www.leikhus.is eða með
þátttöku í leikhúsleiknum hjá leikhús.is. Tölvupóstur þessi sendist á netfangið #netfang#.
Hafir þú ekki áhuga á að fá fleiri fréttabréf er einfaldast að senda okkur tölvupóst með fyrirsögninni "Nei takk".
leikhús.is - Laugavegi 8, 101 Reykjavík - s: 552 1001 - leikhus@leikhus.is