|
Á næstunni Heiður Falið fylgi Sumarljós Fló á skinni Dubbeldusch Mr. Skallagrímsson Janis 27 Fúlar á móti Brák Laddi Klókur ertu Einar Áskell Fólkið í blokkinni Steinar í djúpinu 21 manns saknað Hart í bak Rústað
Álit áhorfenda
Um sýninguna: Dubbeldusch Við hjónin skemmtum okkur frábærlega á Dubbeldusch, sem og tvenn vinahjón sem fóru daginn eftir. Okkur fannst sonurinn slá algjörlega í gegn, Hilmar Jónsson sem pabbinn var frábær og mamman og stelpan líka. Mjög íslenskur veruleiki. Soffía (5 stjörnur)
Um sýninguna: Heiður Fór á fyrstu forsýningu á verkinu og fór þangað með engar væntingar en strax í hléi átti ég fá orð yfir hrifningu mína á verkinu. Allir fjórir leikararnir fóru með hlutverk sín af virkilegri innlifun og greinilegt að frumraun Bjarna sem leikstjóra er að heppnast fullkomlega. Birgir Þór Halldórsson (4 stjörnur)
Skrifaðu þitt álit!
|
Falið Fylgi
Falið Fylgi er nýtt íslenskt leikrit sem Bjarni Jónsson leikskáld hefur skrifað sérstaklega fyrir Leikfélag Akureyrar var frumsýnt í Rýminu þann 16. janúar. Þarna er á ferðinni spennandi verk úr íslenskum samtíma.
Ellen er að leggja af stað í kosningabaráttu sem frambjóðandi í prófkjöri. Hún ræður til sín tvo starfsmenn. Fljótlega kemur í ljós að þau eiga erfitt með að vinna í teymi og þegar dularfullur maður tekur upp á því að gerast daglegur gestur á skrifstofunni reynir fyrir alvöru á forsvarsmenn framboðsins. Hver er ábyrgð fólks sem tekur að sér að gæta samborgara sinn og hagsmuna þeirra? Er pólitík bara froðusnakk á milli þess sem skelfilegir atburðir eiga sér stað? Og getur maður haldið endalaust áfram án þess að líta í hinn margumrædda “baksýnisspegil”?
Nánar um sýninguna
Heiður frumsýnt 24. janúar
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Heiður laugardaginn 24. janúar nk. í Kassanum við Lindargötu 7. Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni Haukur Þórsson. Hér er á ferðinni einstaklega vel skrifað dramatískt verk um hjónabandið, ástina og ábyrgð okkar á eigin hamingju. Leikarar í sýningunni eru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson, María Ellingsen og Sólveig Arnarsdóttir.
Nánar um sýninguna
Fyrsta "hirðskáld" Borgarleikhússins
Auður Jónsdóttir, rithöfundur, var um helgina valin leikskáld Borgarleikhússins árið 2009 úr stórum hópi umsækjenda. Nýstofnaður Leikritunarsjóður mun hér eftir velja eitt leikskáld á ári hverju til starfa með félaginu og var Auður sú fyrsta sem hreppti hnossið. Hún mun því næsta árið starfa innan veggja hússins og skrifa verk sem stefnt er að því að sviðsetja. Þetta var tilkynnt á opnum félagsfundi í Borgarleikhúsinu í dag að viðstöddu fjölmenni. Á fundinum tók Vigdís Finnbogadóttir heiðursfélagi, fyrrverandi leikhússtjóri LR og fyrrverandi forseti Íslands við árnaðaróskum félagsins en hún var á dögunum heiðruð af Alþjóða leiklistarsambandinu (International Theatre Institute) sem einn sendiherra leiklistar í heiminum. Sveinn Einarsson kynnti doktarsritgerð sína og opnuð var margmiðlunarsýning um Jón Sigurbjörnsson, einn ástsælasta leikara landsin og einn af heiðurlistamönnum LR.
Lesa nánar
|