|
Á næstunni Falið fylgi Skugga-Sveinn Fló á skinni Sumarljós Brák Dubbeldusch Fólkið í blokkinni Hart í bak Klókur ertu Einar Áskell Steinar í djúpinu 21 manns saknað Heiður Janis 27 Laddi Mr. Skallagrímsson
Álit áhorfenda
Um sýninguna: Fólkið í blokkinni Verkið dregur mann hratt og örugglega burt frá þjóðfélags harmleiknum sem er að tröllríða okkur þessa dagana.
Flottur hópur af leikurum, samspil sviðsmyndar og áhorfendapalla töff. Ágúst Guðmundsson (5 stjörnur)
Um sýninguna: 21 manns saknað 21 manns saknað er frábær skemmtun. Víðir Guðmundsson sem leikur aðalhlutverkið fer á kostum í þessu þrælskemmtilega leikriti sem er ótrúlega vel sett upp hjá Bergi Ingólfssyni leikstjóra þessa verks. Jón Berg Reynisson (5 stjörnur)
Um sýninguna: Fólkið í blokkinni Hreint út sagt þá er þetta skemmtilegasta sýning sem ég hef séð í leikhúsi, sýningin kom verulega á óvart vegna sniðugrar útfærslu og svo voru karakterarnir hver öðrum betri en af öðrum ólöstuðum var Óli frábær. Músíkin bara snilld. Guðbjörg S. Björgvinsdóttir (5 stjörnur)
Skrifaðu þitt álit!
|
Dubbeldusch í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Vesturport tekur aftur til sýninga verkið Dubbeldusch eftir Björn Hlyn Haraldsson í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið.
Nokkrum sinnum á lífsleiðinni gerast atburðir í lífi okkar sem breyta öllu. Í kvöld kemur einkasonurinn í sumarbústað fjölskyldunnar og kynnir nýja unnustu fyrir foreldrum sínum. Smátt og smátt rennur upp fyrir föðurnum að með komu stúlkunnar knýr fortíðin dyra, þrjátíu ára gamalt leyndarmál sem hann hefur reynt að gleyma. Þá stóð hann frammi fyrir erfiðu vali og enn þann dag í dag veit hann ekki hvort hann valdi rétt.
Nánar um sýninguna
Blúndur og blásýra
Föstudagskvöldið 16. janúar n.k. mun Leikfélag Ölfuss frumsýna sakamálafarsann Blúndur og blásýru eftir Joseph Kesselring. Leikritið sem er í fullri lengd verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og með helstu hlutverk fara Aðalbjörg Jóhanna Helgadóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Daníel Haukur Arnarsson, Hulda Gunnarsdóttir, Júlía Káradóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir, Ólafur Hannesson, Ragnheiður Helga Jónsdóttir, Þórður Njálsson og Þrúður Sigurðar.
Leikritið segir frá tveim eldri systrum, Abby og Mörthu sem búa í ættarhúsinu ásamt frænda sínum sem gengur ekki heill til skógar. Þær hafa orð á sér fyrir að vera einstök gæðablóð. Þegar annar frændi birtist skyndilega með, að því er virðist, óhreint mjöl í pokahorninu fara ýmsir hlutir að gerast og leyndarmál afhjúpast.
Nánar um sýninguna
Sjónleikurinn Ódauðlegt verk
Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir sjónleikinn Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna föstudaginn 16.janúar kl.17 í Nýlistasafninu.
Verkið er hluti af fimmverka röð ódauðlegra leikverka um hegðun og eðli mannsins og er annað í röðinni. Verkin eru rannsókn á áráttuhegðun mannkyns og ófullkomleika. Þau feta sig inn í augnablikið þar sem maðurinn stendur berskjaldaður frammi fyrir guði og viðurkennir vanmátt sinn. Verkin leita að sársaukanum sem býr djúpt inní sálu mannsins og leitast við að skilja hann. Fyrsta verkið í kvintólógíunni var Ódauðlegt verk um stjórn og stjórnleysi og var sýnt við góðan orðstír í Klink og Bank listasamsteypunni vorið 2005.
Nánar um sýninguna
Steinar í Djúpinu
Dagana 18. og 21. janúar verða aukasýningar á verkinu Steinar í Djúpinu sem sýnt er í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Nánar um sýninguna
Skugga-Sveinn
Í janúar eru tvær aukasýningar á Skugga-Svein hjá Leikfélagi Kópavogs.
Sýningar fara fram 15. og 16. janúar kl. 20.00.
Nánar um sýninguna
21 manns saknað
Í janúar verða nokkrar aukasýningar á leikverkinu 21 manns saknað um epíska ævi séra Odds V. Gíslasonar.
Verkið er sýnt í Saltfisksetrinu, Grindavík á eftirtöldum dögum: 18. janúar kl. 20.00 25. janúar kl. 20.00 1. febrúar kl. 20.00
Nánar um sýninguna |