|
Á næstunni Rétta leiðin Fólkið í blokkinni Hart í bak Kirsuberjagarðurinn Mr. Skallagrímsson Vestrið eina Utan gátta Lápur, Skrápur (Akureyri) Lápur, Skrápur (Borgarle.) Leitin að jólunum Jólasveinar Grýlusynir Brák Vestrið eina Ástverk ehf. Laddi Ævintýrið um Augastein Aðventa Pönnukakan hennar Grýlu
Álit áhorfenda
Um sýninguna: Fólkið í blokkinni Verkið dregur mann hratt og örugglega burt frá þjóðfélags harmleiknum sem er að tröllríða okkur þessa dagana.
Hressandi flott. Flottur hópur af leikurum, samspil sviðsmyndar og áhorfendapalla töff. Ágúst Guðmundsson (5 stjörnur)
Um sýninguna: Vestrið eina Hrein snilld! heldur manni á tánum. Hræðir kætir og grætir allt í senn.
Björn Thor með fullkomlega fullkominn karakter, 100% edduverðlaun Ágúst Guðmundsson (5 stjörnur)
Skrifaðu þitt álit!
|
Ástverk ehf.
Nýstofnaður leikhópur, Iðnaðarmannaleikhúsið, frumsýnir í Hafnarfjarðarleikhúsinu nýtt íslenskt leikverk: Ástverk ehf. Leikverkið er samið og flutt af leikhópnum.
Ástverk ehf fjallar um smiðinn Ástmar sem stofnar eigið fyrirtæki en er nokkuð fljótfær. Hann fær Grím, besta vin sinn með sér og aðstoðarmaður bætist í hópinn: listneminn Viddi, sem er frændi Gríms. Smiðirnir tveir verða fljótlega ósáttir vegna misskilnings og út frá því spinnast óborganleg atvik sem öll eru byggð á alvöru sögum úr iðnaðarmannavinnu.
Lesa nánar um sýninguna
Litla stúlkan og aðfangadagsmorgun
Leikfélagið Peðið frumsýndi síðastliðinn sunnudag Litlu stúlkuna með eldspýturnar eftir H.C. Andersen í leikgerð Magnúsar Péturssonar og Einn aðfangadagsmorgun eftir Gunnar „Gunsó“ Gunnarsson. Verkunum er skeytt saman í eitt og að venju skipar tónlistin stóran sess í uppfærslunni. Lögin í Litlu stúlkunni eru eftir Magnús Pétursson en Haraldur Davíðsson og Einar Valur Maack sömdu tónlistina við Einn aðfangadagsmorgun.
Sagan um litlu stúlkuna með eldspýturnar gerist sem kunnugt er á aðfangadegi í Kaupmannahöfn um miðja 19. öld en með hlutverk stúlkunnar fer Þorbjörg Erna Mímisdóttir. Einn aðfangadagsmorgun gerist hins vegar í nútímanum á bar í miðborg Reykjavíkur. Þar segir frá Halli sem leikinn er af Guðmundi Hreiðarssyni en hann hefur lent í því óláni að tapa öllum jólagjöfunum, jólamatnum og veskinu á Þorláksmessuskralli með þeim afleiðingum að konan hendir honum út.
Sýningarnar fara fram á efri hæð Grand Rokk sunnudagana 7., 14. og 21. desember kl. 18.00.
Vestrið eina - sýningum lýkur í desember
Frumsýnt var á Laugardaginn 6.des s.l. hjá Leikfélagi Vestmannaeyja jólaleikritið Grýla gerir uppreisn sem þær Alma Eðvaldsdóttir, Arndís Ósk Atladóttir, Eva Lilja Árnadóttir og Steinunn Ragnhildur Guðmundsdóttir skrifuðu fyrir Leikfélagið. Um leikstjórnina sáu þær Alma Eðvaldsdóttir og Eva Lilja Árnadóttir.
Verkið fjallar í stuttu máli um Grýlu sem er orðin þreytt á því að enginn á heimilinu hjálpi henni við heimilisverkin og hún vill að jólasveinarnir fari nú að leggja eitthvað af sínum mörkum á heimilið, en eitthvað vefst þetta fyrir jólasveinunum sem klúðra öllu hver á fætur öðrum. Inní þetta fléttast ferðir jólasveinanna til að gefa í skóinn og koma börnin einnig við sögu sem eru heima að bíða spennt eftir jólunum.
Sýningar verða allar helgar í desember á laugardögum og sunnudögum klukkan 16:00.
|