|
Á næstunni Rétta leiðin Lápur, Skrápur (Akureyri) Lápur, Skrápur (Borgarle.) Aðventa Leitin að jólunum Pönnukakan hennar Grýlu Dauðasyndirnar Ævintýrið um Augastein Laddi Fló á skinni Kirsuberjagarðurinn Vestrið eina Brák Óþelló Parkour Hart í bak 21 manns saknað Utan gátta Hvar er (K)Lárus Fólkið í blokkinni Músagildran Steinar í djúpinu Skugga-Sveinn Mr. Skallagrímsson
Álit áhorfenda
Um sýninguna: 21 manns saknað 21 manns saknað er frábær skemmtun. Víðir Guðmundsson sem leikur aðalhlutverkið fer á kostum í þessu þrælskemmtilega leikriti sem er ótrúlega vel sett upp hjá Bergi Ingólfssyni leikstjóra þessa verks. Jón Berg Reynisson (5 stjörnur)
Um sýninguna: Vestrið eina Sýning sem á erindi við alla sem geta hlegið að kolsvörtum bröndurum. Stórskemmtilegar persónur, stórskemmtileg samtöl og algerlega óútreiknanlegur söguþráður gera það að verkum að maður stendur sig að því að hlakka til að sjá hvernig endirinn verður.. en að sama skapi óska þess að leikritið klárist ekki sökum skemmtanagildis! Arnar Gunnarsson (5 stjörnur)
Skrifaðu þitt álit!
|
Hvar er (K)Lárus
Leikritið Hvar er (K)Lárus? er klukkustundarlöng kolsvört kómedía og fjallar um leit að manninum, Lárusi (nafnatákn hans er KLÁR) en svo virðist sem hann hafi gufað upp. Verkið er eftir Má Ólafsson og fékk fyrstu verðlaun í samkeppni döff-höfundasmiðju Draumasmiðjunnar fyrr á árinu. Leikhópurinn Draumasmiðjan DÖFF-RÆTUR er áhugamannaleikhópur Draumasmiðjunnar og er eingöngu skipaður döff (heyrnarlausum) einstaklingum.
Fyrir þá sem ekki skilja táknmál en langar að sjá sýninguna er verkið raddað af Margréti Pétursdóttur, leikara en hún lýsir framvindu verksins, ekki ósvipað og þegar verið er að lýsa beinni útsendingu í sjónvarpi. Tónlistin í verkinu er samin af Braga Bragasyni.
Lesa nánar um sýninguna
Kirsuberjagarðurinn frumsýndur 4. desember
Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Tsjekhov er saga af húsi sem er að hruni komið og þeim lífstíl sem grefst undir í rústunum.
Eftir fimm ára fjarvegu snýr Ljubov Ranjevskaja heim á ný. Býli hennar, víðfrægur kirsuberjagarður, er u.þ.b. að verða gjaldþrota vegna mikilla skulda. Innan fárra mánaða verður það selt á uppboði. Ranjevskaja hefur eytt um efni fram án þess að leiða hugann nokkurn tímann að morgundeginum.
Sviðsetning Nemendaleikhússins á Kirsuberjagarðinum er samtal við íslenskan samtíma. Ísland í dag er á sögulegum örlagapunkti þar sem peningamenn frjálshyggjunnar hafa orðið valdir að bakslagi og öll þjóðin þjáist vegna þess.
Hinir áhyggjulausu dagar eru á enda - skemmtum okkur þangað til við deyjum!!
Lesa nánar um sýninguna
Vestrið eina - sýningum lýkur í desember
Bætt hefur verið við aukasýningum á verkinu Vestrið eina á milli jóla og nýárs
Saga bræðranna Coleman og Valene hefur heillað leikhúsgesti Borgarleikhússins undanfarnar vikur. Ákveðið hefur verið að bæta við sýningum á milli jóla og nýárs og eru þær þegar komnar í sölu. Rétt er að benda á að sýningum lýkur í desember!
Martin McDonagh er eitt vinsælasta samtímaleikskáldið. Verk hans þykja með eindæmum vel skrifuð og einkennast af hnittnum samtölum, spennandi sögu, gálgahúmor og óhugnaði. The Lonesome West var frumflutt árið 1997 í Druid-leikhúsinu í Galway á Írlandi. Fjögur önnur leikrit leikskáldsins hafa verið sýnd hér á landi og hlotið feiknagóðar viðtökur, Fegurðardrottningin frá Línakri (LR), Halti Billi (Þjóðleikhúsið), Koddamaðurinn (Þjóðleikhúsið) og Svartur köttur
Lesa nánar um sýninguna |