leikhús.is
- allt um leikhús á Íslandi

Kæri vildarvinur #nafn#,
Leikhúsleikurinn
Veitingastaðurinn Orange býður í leikhús!

Glæsileg 5 rétta veisla fyrir tvo á Orange og gjafabréf fyrir tvo í Þjóðleikhúsið er í fyrstu verðlaun í leikhúsleik Orange og leikhús.is, samtals að andvirði um 35.000 kr.!
Yfirmatreiðslumaður Orange mun koma vinningshafanum og gesti hans skemmtilega á óvart með að minnsta kosti 5 rétta Let´s Go Crazy Menu með víni “supplement”*.
Fjórir aðrir heppnir þátttakendur fá gjafabréf fyrir 2 í Þjóðleikhúsið.

*fyrir eldri en 20 ára

Veitingastaðurinn Orange

Taktu þátt í leikhúsleiknum 

Búið er að draga út í leikhúsleik Stubbasmiðjunnar en spurt var um staðsetningu á nýju Stubbahorni á landsbyggðinni en það má finna í Eymundsson við Hafnarstræti á Akureyri. Kíktu inn á leikhús.is og sjáðu hvort þú hafir verið svo heppin/n að vinna í leikhúsleik Stubbasmiðjunnar.

Á næstunni
21 manns saknað
Hart í bak
SCARTA
Fólkið í blokkinni
Dauðasyndirnar
Sá ljóti
Pétur og Einar
Vestrið eina
Skugga-Sveinn
H.V.S.F.Í
Brák
Steinar í djúpinu
Dansaðu við mig
Lápur, Skrápur (Akureyri)
Músagildran
Fló á skinni
Utan gátta
Janis 27
Mr. Skallagrímsson
Laddi
Skilaboðaskjóðan
Klókur ertu Einar Áskell


Álit áhorfenda

Um sýninguna: 
Fólkið í blokkinni
Stórskemmtileg sýning sem fyrir alla aldurshópa. Skemmtileg lög og góðir leikarar. Fín afþreying.
Ásta Björgvinsdóttir
(4 stjörnur)


Um sýninguna: 
Vestrið eina
Hrein snilld bæði í texta og ekki síður í leik.
Allir leikarar góðir. Texti þannig að maður sveiflast á milli bræðranna til skiptis og hreinlega bíður þess að verkið endi til að sjá hvernig þeir enda þetta. Mæli með þessu og fullt hús af stjörnum.
Guðrún Esther Árnadóttir
(5 stjörnur)

Um sýninguna: 
Pétur og Einar
Stórskemmtileg sýning sem vert er að sjá. Bæði sprenghlægileg og tilfinningaþrungin.
Þórunn Inga Kristmundsd.
(5 stjörnur)

Um sýninguna: 
Hart í bak

Frábærlega leikið, mikið drama en samt hægt að skella upp úr inn á milli. Virkilega vel skrifað. Naut hverrar mínútu.
Björn Ó
(4 stjörnur)

Um sýninguna: 
Janis 27

Hreint frábær sýning og performans Bryndísar og Ilmar stórkostlegur. Ég er eiginlega orðlaus yfir söng Bryndísar ekki vafi að þar fer söngkona í heimsklassa. Mæli eindregið með verkinu.
Hallgrímur Jónasson
(5 stjörnur)


Skrifaðu þitt álit!


Steinar í Djúpinu

Steinar í DjúpinuFöstudaginn 21. nóvember mun Lab Loki frumsýna Steinar í djúpinu í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Steinar í djúpinu er nýtt íslenskt leikverk, byggt á skáldheimi Steinars Sigurjónssonar sem einnig var þekktur sem: Bugði Beygluson, Steinar á Sandi, Sjóni Sands o.s.frv.
Hér er ekki um að ræða leikgerð á einu tilteknu verki eftir hann, heldur sjálfstætt leikhúsverk sem sækir innblástur í allt hans höfundarverk og að hluta til í ævi hans og örlög.
Verkið er vegferð um “hvasseggjað grjót”, ferðalag um sagnaheim Steinars; um þorpið þar sem lúin þil lykta af hlandi og svita og fullir dusar blanda í svartan dauðann; um ægifegurð og erkiljótleika djúpsins sem er ægilegt. Jafn heillandi og skelfingin sem á móti vegur.

Lesa nánar um sýninguna
Sjá sýningarplan

Hafðu fiðrildaáhrif og komdu í leikhús!

Dansaðu við migÞann 27. nóvember verður haldin gala sýning í IÐNÓ til styrktar UNIFEM á Íslandi (Þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna) á nýja íslenska leikverkinu Dansaðu við mig, eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann í uppfærslu Leikhúss andanna.

Miðaverð er 3.200 kr. – ATHUGIÐ TAKMARKAÐ MIÐAFRAMBOÐ – og rennur 1.000 kr. af hverjum seldum miða óskipt til samtakanna.

Innifalinn í verðinu er appelsínugulur kokkteill, en það er litur UNIFEM á Íslandi. Þekktar hæfileikakonur munu stíga á stokk áður en sýningin hefst. Gestir eru hvattir til að sýna lit og skreyta sig með einhverju appelsínugulu.

Tónlistin úr Dansaðu við mig er frumsamin íslensk nýsköpun úr smiðju tónlistarkonunnar Jarþrúðar Karlsdóttur, en 500 krónur af hverjum disk sem selst þetta kvöld mun einnig renna til UNIFEM. Kokkteillinn hefst 19:30 og sýningin sjálf kl. 20:00.

Nánar um sýninguna

Lápur, Skrápur og jólaskapið

Lápur, Skrápur og jólaskapiðÞað eru allir komnir í jólaskapið í Grýluhelli. Allir nema Lápur og Skrápur. Grýla er ekki sátt við þessa syni sína og sendir þá af stað til að leita að jólaskapinu og bannar þeim að koma til baka áður en þeir eru búnir að finna það. Leitin ber tröllastrákana inn í herbergi til Sunnu litlu og hún ákveður að hjálpa þeim við leitina. Það reynist vandasamt verk og saman lenda þau í allskonar ævintýrum.

Lápur, Skrápur og jólaskapið er barna- og fjölskylduleikrit í anda jólanna. Verkið var fyrst sett upp um jólin 2007 af Kraðak og sló þá í gegn en snýr nú aftur og er sett upp samhliða í Borgarleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar. Eftir sýningu er fólki boðið að þiggja veitingar og hitta persónurnar úr leikritinu.

Sýningarplan í Borgarleikhúsinu

Sýningarplan hjá Leikfélagi Akureyrar

Janis 27 og Vetraferðin í Íslensku Óperunni

Jóhann Smári SævarssonSunnudaginn 23. nóvember n.k. kl. 20 flytja Jóhann Smári Sævarsson, bassi, og Kurt Kopecky, píanó, Vetrarferðina, eftir Franz Schubert í leikinni útfærslu og er það hið síðara af tveimur Schubert-kvöldum í Íslensku óperunni í nóvember, en Malarastúlkan fagra var flutt 9. nóvember sl.Vetrarferðin (Winterreise) er ljóðaflokkur eftir Franz Schubert við ljóð Wilhelms Müller, skrifuð fyrir karlrödd og píanó árið 1827.

Lokasýningar á verkinu Janis 27 um hina goðsagnakenndu Janis Joplin eru 22. og 28. nóvember n.k. Verkið sem Ólafur Haukur skrifaði byggir á stuttu en litríku lífshlaupi söngkonunnar, sem lést af völdum fíkniefnaneyslu aðeins 27 ára gömul árið 1970.

Þær Ilmur Kristjánsdóttir og Bryndís Ásmundsdóttir standa sig frábærlega í hlutverki sínu sem Janis Joplin.

Ekki missa af rokkinu í Óperunni!

Heimasíða Íslensku óperunnar

 
Fréttabréf leikhús.is er eingöngu sent vildarvinum sem óska eftir því, með skráningu á www.leikhus.is eða með
þátttöku í leikhúsleiknum hjá leikhús.is. Tölvupóstur þessi sendist á netfangið #netfang#.
Hafir þú ekki áhuga á að fá fleiri fréttabréf er einfaldast að senda okkur tölvupóst með fyrirsögninni "Nei takk".
leikhús.is - Laugavegi 8, 101 Reykjavík - s: 552 1001 - leikhus@leikhus.is