leikhús.is
- allt um leikhús á Íslandi

Kæri vildarvinur #nafn#,
Leikhúsleikurinn
Stubbasmiðjan býður í leikhús!

Fyrstu verðlaun eru 5.000 kr gjafabréf í Stubbasmiðjunni, Holtagörðum ásamt gjafabréfi fyrir 2 í Borgarleikhúsið. Fjórir aðrir heppnir þátttakendur fá einnig gjafabréf fyrir 2 í Borgarleikhúsið.

Stubbasmiðjan Holtagörðum

Taktu þátt í leikhúsleiknum 

Búið er að draga út í leikhúsleik iRobot en spurt var um hvaða snillingar hönnuðu iRobot ryksugu og skúringarvélmennin en það voru snillingarnir hjá NASA.
Kíktu inn á leikhús.is og sjáðu hvort þú hafir verið svo heppin/n að vinna iRobot Scooba skúringarvélmennið.

Á næstunni
Dauðasyndirnar
SCARTA
Sá ljóti
Hart í bak
21 manns saknað
Dansaðu við mig
Skugga-Sveinn
Vestrið eina
Laddi
H.V.S.F.Í
Músagildran
Fló á skinni
Mr. Skallagrímsson
Utan gátta
Janis 27
Brák
Skilaboðaskjóðan
Klókur ertu Einar Áskell
Fólkið í blokkinni
Dans-andi
Pétur og Einar


Álit áhorfenda

Um sýninguna: 
Vestrið eina
Klárlega sýning sem hæfir öllum. Mjög skemmtileg og áhugaverð. Hún kemur inn á allt sem gerir sýningu frammúrskarandi. Góðir leikarar, skemmtilegur söguþráður, flott sviðsmynd, gleði, sorg, húmor. Mæli með þessari sýningu fyrir alla (yfir 13 ára)
Ásta Björgvinsdóttir
(5 stjörnur)


Um sýninguna: 
Pétur og einar
...Ég bæði hló mig vitlausan sem og þurfti að þurrka tár af hvarmi þar sem erfið atvik úr sögu Bolvíkinga voru rifjuð upp.
Skylda að sjá þessa sýningu.
Benedikt Sigurðsson
(5 stjörnur)


Skrifaðu þitt álit!


Vannst þú 20.000 kr. gjafabréf?

Síðastliðnar tvær vikur höfum við verið með leik í gangi samhliða leikhúsleiknum þar sem við höfum beðið fólk að segja okkur frá vinum sínum sem það telur að hafi áhuga á því að vita meira um vefinn leikhús.is og eiga þannig möguleika á að vinna sér inn 20.000 kr. gjafabréf á Argentínu steikhús.
Við höfum nú dregið út vinningshafa í þeim leik en um leið opnað fyrir nýjan leik þar sem þú getur unnið 20.000 kr. gjafabréf á Tapas barinn.

Sú sem vann 20.000 kr. gjafabréf á Argentínu steikhús var Sigríður Másdóttir og óskum við henni til hamingju.
Vinningshafinn er beðinn um að hafa samband við leikhús.is til að nálgast gjafabréfið.

Segðu vinum þínum frá leikhús.is

Guðdómlegur gamanleikur Dantes

DauðasyndirnarDauðasyndirnar er frjálsleg túlkun á Guðdómlegum gamanleik Dantes, stórkostleg trúðasýning fyrir fullorðna sem fjallar um hinn eilífa vanda manneskjunnar - að lifa. Fjórir trúðar segja sögu Dantes í leit hans að Paradís, en leiðin þangað liggur, illu heilli, í gegnum Helvíti og hreinsunareldinn. Sagan er margbrotin sjálfskoðun sem gefur áhorfandanum færi á að spegla sig í mannlegu eðli og eiginleikum, hlæja, gráta og hrífast.
Áætlaðar eru 6 sýningar á verkinu í nóvember og nú þegar er uppselt á 5 af þeim.

Nánar um sýninguna

Sá ljóti snýr aftur í Þjóðleikhúsið

Sá ljótiSá ljóti snýr aftur á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins nú í nóvember en áætlaðar eru átta sýningar á verkinu. Þetta verk Mariusar von Mayenburg var frumsýnt hjá Þjóðleikhúsinu í vor og fékk frábærar viðtökur gagnrýnenda og áhorfenda. Leikstjóri þess, Kristín Eysteinsdóttir, var aukinheldur valin leikstjóri ársins á Grímuverðlaunahátíðinni 2008.

Nánar um sýninguna

Jóladagskrá Leikfélags Dalvíkur

Leikfélag DalvíkurHjá Leikfélagi Dalvíkur standa nú yfir sýningar á jóladagskrá sem ber nafnið Er nálgast jólin.
Dagskráin samanstendur af þremur frumsömdum leikþáttum, jólasöngvum, dansi og fróðleik. Það eru þau Arnar Símonarson, Sólveig Rögnvaldsdóttir og Lovísa María Sigurgeirsdóttir sem leikstýra verkinu og sömdu þau einnig leikþættina þrjá ásamt leikhópnum.
Þetta er létt og skemmtileg dagskrá fyrir alla aldurshópa.

Skoða sýningarplan

 
Fréttabréf leikhús.is er eingöngu sent vildarvinum sem óska eftir því, með skráningu á www.leikhus.is eða með
þátttöku í leikhúsleiknum hjá leikhús.is. Tölvupóstur þessi sendist á netfangið #netfang#.
Hafir þú ekki áhuga á að fá fleiri fréttabréf er einfaldast að senda okkur tölvupóst með fyrirsögninni "Nei takk".
leikhús.is - Laugavegi 8, 101 Reykjavík - s: 552 1001 - leikhus@leikhus.is