leikhús.is
- allt um leikhús á Íslandi

Kæri vildarvinur #nafn#,
Leikhúsleikurinn
iRobot býður í leikhús!

iRobot Scooba skúringarvélmenni og gjafabréf fyrir tvo í Þjóðleikhúsið er í fyrstu verðlaun í leikhúsleik iRobot og leikhús.is þessa vikuna. Fjórir aðrir heppnir þátttakendur i leikhúsleiknum fá gjafabréf fyrir tvo í Þjóðleikhúsið.

iRobot skúringar og ryksuguvélmennin

Taktu þátt í leikhúsleiknum 

Búið er að draga út í leikhúsleik SJ innréttinga en spurt var um hvað SJ innréttingar sérhæfa sig í en þau sérhæfa sig í innréttingum fyrir heimilið á lágmarksverði.
Hægt er að sjá vinningshafa í leikhúsleik SJ innréttinga og öðrum fyrri leikhúsleikjum inn á vefnum leikhús.is.

Á næstunni
Fló á skinni
Músagildran
Pétur og Einar
Hart í bak
H.V.S.F.Í
Macbeth
Laddi
Brák
SCARTA
Janis 27
Dansaðu við mig
Vestrið eina
Skugga-Sveinn
Fólkið í blokkinni
Ástin er diskó - lífið er pönk
Mr. Skallagrímsson
Skilaboðaskjóðan
Klókur ertu Einar Áskell
Dans-andi
Dauðasyndirnar


Álit áhorfenda

Um sýninguna: 
Ástin er diskó - lífið pönk
þetta er fyndið, fullkomið leikrit sem ég væri til í að sjá aftur og aftur. Ég sat á fremsta bekk og það var bara lúxus svo ég mæli með að allir færu á það en þetta er söngleikur sem gerir það ennþá skemmtilegra og ég var mjög sár þegar leikritið var búið.
Salka
Ósk 

Um sýninguna: H.V.S.F.Í.
Skemmtileg sýning sett upp af áhugamanna-leikhóp og hér er húmorinn aðalatriðið og er sýningin skemmtileg þrátt fyrir að umgjörðin sé ekki fullkomin enda er það ekki alltaf nauðsynlegt.
Leikararnir voru mismunandi en nokkrir þeirra fóru hreint á kostum með að túlka sínar persónur og þar á meðal fannst mér túlkunin á Hitler og Marilyn standa uppúr.
Vel benda fólki á að aðeins tekur um 40 mínútur að skjótast úr miðbæ Reykjavíkur til Hveragerðis.
Birgir Þór


Skrifaðu þitt álit!


21 manns saknað

21 manns saknaðGRAL (Grindvískir atvinnuleikarar) setja nú upp einleikinn 21 manns saknað sem segir frá Séra Oddi V. Gíslasyni og þeim framúrstefnulegum verkefnum sem hann tók sér fyrir hendur: lýsisbræðslu á Höfnum, brennisteinsnámuvinnslu í Krýsuvík, kolanámuvinnu við Hreðavatn, baráttunni við fátæktina og bakkus.
Hann var maðurinn sem lagði grunninn að slysavörnum á Íslandi, kom út  fyrstu kennslubók í ensku fyrir Íslendinga og þá stóð hann fyrir einu frægasta brúðarráni á Íslandi ... en aldrei hélst honum á peningum.

Nánar um sýninguna

Dans-andi endursýnt í nóvember

Dans-andiÍ nóvember verður þetta vinsæla og verðlaunaða verk endursýnt. Dans-andi, sem var frumsýnt í febrúar 2008, er yfirskrift yfir þessi tvö frábæru en gjörólíku verk eftir tvo af mest spennandi danshöfundum Norðurlanda, Jo Strömgren og Alexander Ekman.

Kvart eftir Jo Strömgren konung dansleikhússins
Í Kvart dansa dansararnir hvor fyrir annan. Ákafur og fagur dans við magnaða tónlist eftir finnska tónskáldið Kimmo Pohjonen

Endstöð eftir Alexander Ekman
Í Endastöð fer saman látbragð og dans þar sem við fylgjumst með hópi gamalmenna í leit þeirra að æskunni. Verkið er leikrænt, létt, fyndið og rómantískt.

Nánar um sýninguna

Kolsvört kómedía um glataðar sálir

Vestrið einaí Vestrinu eina segir af bræðrunum Coleman og Valene sem eru langt frá því að vera fyrirmyndarborgarar. Þrátt fyrir að vera komnir vel á fullorðinsaldur slást þeir stöðugt, drekka ótæpilega og lát föður þeirra virðist ekki snerta þá hið minnsta. Þegar sóknarpresturinn gerir örvæntingarfulla lokatilraun til þess að koma þeim til manns lítur þó út fyrir að eitthvað rofi til.
Bleksvartur húmor og drepfyndin samtöl einkenna þetta alvöru gamanverk.

Vestrið eina verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu 7. nóv.

Nánar um sýninguna

 
Fréttabréf leikhús.is er eingöngu sent vildarvinum sem óska eftir því, með skráningu á www.leikhus.is eða með
þátttöku í leikhúsleiknum hjá leikhús.is. Tölvupóstur þessi sendist á netfangið #netfang#.
Hafir þú ekki áhuga á að fá fleiri fréttabréf er einfaldast að senda okkur tölvupóst með fyrirsögninni "Nei takk".
leikhús.is - Laugavegi 8, 101 Reykjavík - s: 552 1001 - leikhus@leikhus.is