leikhús.is
- allt um leikhús á Íslandi

Gamanleikurinn H.V.S.F.Í.
Kæri vildarvinur #nafn#,
Leikhúsleikurinn
SJ innréttingar bjóða í leikhús!

Gjafabréf fyrir tvo í Þjóðleikhúsið er í fyrsta vinning þessa vikuna en auk þess fá svo 5 aðrir þátttakendur tvo miða á sýninguna H.V.S.F.Í. sem leikfélag Hveragerðis er að sýna um þessar mundir.

SJ innréttingar

Taktu þátt í leikhúsleiknum 

Búið er að draga út í leikhúsleik SGA en spurt var hvað sé tilboðsverðið á námskeiðið viðhorfsstjórnun hjá Söluskóla Gunnars Andra ehf. Rétt svar er 5.000 kr.
Hægt er að sjá vinningshafa í leikhúsleik SGA og öðrum fyrri leikhúsleikjum inn á vefnum leikhús.is.

Á næstunni
Ástin er diskó - lífið er pönk
Fólkið í blokkinni
Góðverkin kalla
H.V.S.F.Í
Músagildran
Private Dancer
Pétur og Einar
Dansaðu við mig
Hart í bak
Macbeth
Mr. Skallagrímsson
Utan gátta
Ó, þessi tæri einfaldleiki
Brák
Fló á skinni
Janis 27
Klókur ertu Einar Áskell
Skilaboðaskjóðan
Gosi


Álit áhorfenda

Um sýninguna: 
Góðverkin kalla
Ég vil þakka Leikfélagi Fljótsdalshéraðs fyrir sýninguna. Ég skemmti mér konunglega og það er gott að hlægja og gleyma sé í því eina kvöldstund á þessum síðustu og verstu tímum. Það er líka notalegt að koma aftur í Valaskjálf, en félagið hefur verið á hrakhólum í nokkur ár. Leikritið hefur staðist vel tímans tönn og á vel við í dag. Margir leikararnir fóru á kostum en allir stóðu sig mjög vel og sköpuðu eftirminnilegar persónur. Ég hvet Héraðsbúa að skreppa í Valaskjálf og hlægja duglega. Hláturinn lengir nefnilega lífið.
Guðlaug Ólafsdóttir  


Skrifaðu þitt álit!


 

Ó, þessi tæri einfaldleiki

HugleikurHugleikur frumsýnir stuttverkadagskrána „Ó, þessi tæri einfaldleiki" föstudaginn 31. október kl. 20. 00 í Listasafni Reykjavíkur. Frumsýnd verða níu ný stuttverk sem öll eiga það sammerkt að hafa afmæli sem þema. Sýningin markar þannig upphafið á afmælisári Hugleiks sem fagnar 25 ára starfsafmæli sínu leikárið 2008-2009.

Aðeins verða þrjár sýningar á dagskránni og eru seinni sýningarnar tvær laugardaginn 1. nóvember og sunnudaginn 2. nóvember kl. 20.00 bæði kvöldin.

Nánar um sýninguna

Stúdentaleikhúsið sýnir í Norræna húsinu

StúdentaleikhúsiðStúdentaleikhúsið, í samvinnu við Mock Flock, frumsýnir leikverkið SCARTA á neðri hæð Norræna hússins þann 7. nóvember.

Leikstjóri er Víkingur Kristjánsson. Um búninga og leikmynd sér Eva Signý Berger, en henni til halds og trausts eru þær Ida Grimsgaard og Hrafnhildur. Um hljóðmynd sér Ingrid Karlsdóttir.

Verkið er samið af leikhópnum sjálfum og listrænum stjórnendum.

Nánar um sýninguna

Paris at night

Paris at nightLeikhópurinn Á senunni snýr aftur og nú með tónleika byggða á hinni frábæru sýningu Paris at night sem hópurinn setti upp árið 2004.  Tónleikarnir verða haldnir í Salnum í Kópavogi 4. og 5. nóvember og í Samkomuhúsinu á Akureyri 12. nóvember 2008. 

Paris at night er byggt á ljóðum Jacques Prévert og tónlist Joseph Kosma en þýðingar ljóðanna eru eftir Sigurð Pálsson.
Leikarar/söngvarar í sýningunni eru Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Felix Bergsson.  Sérstakur gestur á tónleikunum er Edda Þórarinsdóttir en hún lék og söng hlutverk Edith Piaf hjá Leikfélagi Akureyrar sællar minningar.

Miðasalan er hafin á www.salurinn.is, hjá Leikfélagi Akureyrar www.leikfelag.is og fer í sölu á www.midi.is á næstu dögum. 

 
Fréttabréf leikhús.is er eingöngu sent vildarvinum sem óska eftir því,
með skráningu á www.leikhus.is eða með þátttöku í leikhúsleiknum hjá leikhús.is.
leikhús.is - Laugavegi 8, 101 Reykjavík - s: 552 1001 - leikhus@leikhus.is