leikhús.is
- allt um leikhús á Íslandi

Kæri vildarvinur #nafn#,
Leikhúsleikurinn
Söluskóli Gunnars Andra býður í leikhús!

Þrír þátttakendur í leikhúsleik SGA fá hver um sig gjafabréf fyrir tvo í Þjóðleikhúsið ásamt 10.000 kr. gjafabréfi á Tapas-barinn.  
Það er því til mikils að vinna og mjög einfalt að taka þátt í leikhúsleiknum!

Viðhorfsstjórnun

Taktu þátt í leikhúsleiknum 

Búið er að draga út í leikhúsleik Fjalakattarins en spurt var hvaða viðurkenningu Fjalakötturinn var sæmdur og svarið er að Fjalakötturinn hlaut viðurkenningu frá Wine Spectator fyrir vínseðil sinn. Hægt er að sjá vinningshafa í leikhúsleik Fjalakattarins og öðrum fyrri leikhúsleikjum inn á vefnum leikhús.is.

Á næstunni
Fló á skinni
Utan gátta
Ástin er diskó - lífið er pönk
Fýsn
Góðverkin kalla
Hart í bak
Músagildran
Skugga-Sveinn
Janis 27
Dansaðu við mig
Duo
Brák
Macbeth
Mr. Skallagrímsson
Fólkið í blokkinni
Klókur ertu Einar Áskell
Gosi
Skilaboðaskjóðan
Private Dancer


Tapas-barinn

Álit áhorfenda

Um sýninguna: 
Fólkið í blokkinni
Skemmtileg upplifun að sitja á snúningspalli sem að ferðaðist með mann um blokkina. Margir mjög fyndnir karektar, sérstaklega þeir Robbi og Óli. Hressandi sýning sem að ætti að geta komið öllum í fjölskyldunni í gott skap.
Karl Gunnarsson 
4 stjörnur

Um sýninguna:
Fló á skinni
Það stendur fyllilega undir væntingum og meira til hláturtaugarnar eru kitlaðar allan tíman enginn dauður tími. Helsti ókosturinn er að maður er kominn með miklar harrðsperrur í magann af krampakenndum hlátri...
Helga Magnúsdóttir
5 stjörnur


Skrifaðu þitt álit!


 

Utan gátta frumsýnt 24. október

Utan gáttaÞjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Utan gátta eftir Sigurð Pálsson laugardaginn 25. október nk.

Í sýningunni fylgjumst við með Villu og Millu sem eru tvær kvenpersónur, innilokaðar. Þær eru á valdi einhvers sem við sjáum aldrei, en stjórnar kringumstæðum þeirra. Tvær saman eins og gamalt par, bundnar hvor annarri, eins og afbrýðisamar systur, börn í sandkassa. Þær eru stöðugt að leita leiða til að komast burt en geta engu treyst og sérstaklega ekki hvor annarri.

Nánar um sýninguna

Private Dancer
   - gestasýning í Borgarleikhúsinu

Private DancerSviðslistahópurinn Panic Productions frumsýnir verkið Private Dancer í Borgarleikhúsinu 30. október n.k.
Verkið má flokka undir dansleikhús í óhefðbundnari kantinum og búa meðlimir hópsins yfir mikilli reynslu á þessu sviði. Höfundar semja verkið frá grunni og liggur að baki því mikil vinna og langur fæðingartími.
Private Dancer er í flutningi Margrétar Söru Guðjónsdóttur, Jared Gradinger og Sveinbjargar Þórhallsdóttur.

Nánar um sýninguna

Gamanleikritið H.V.S.F.Í.

H.V.S.F.Í.Leikfélag Hveragerðis frumsýnir nk. föstudag, 24. október, gamanverkið H.V.S.F.Í. sem samið er af meðlimum leikfélagsins. Höfundarnir eru þeir Jakob Hansen, Hafsteinn Þór Auðunsson og Sindra Kárasson.
Sagan gerist í upphæðum þar sem fjallað er um ýmsa heimsfræga einstaklinga, sem eru liðnir eða hafa verið fengnir að láni upp í hinn sannkallaða stjörnuhiminn, og sambönd þeirra á milli. Þar sem fræga fólkið er annars vegar þá geta orðið margvíslegir árekstrar um hver hafi áorkað mestu í lifanda lífi og hverra minninga er vert að minnast á, m.ö.o. það er ekki alltaf himnasæla á Verndarans slóð

Nánar um sýninguna

 
Fréttabréf leikhús.is er eingöngu sent vildarvinum sem óska eftir því, með skráningu á www.leikhus.is eða með
þátttöku í leikhúsleiknum hjá leikhús.is.
leikhús.is - Laugavegi 8, 101 Reykjavík - s: 552 1001 - leikhus@leikhus.is