|
Á næstunni Fló á skinni Gangverkið Duo Fólkið í blokkinni Janis 27 Hart í bak Mr. Skallagrímsson Brák Músagildran Ástin er diskó - lífið er pönk Klókur ertu Einar Áskell Gosi Skilaboðaskjóðan Cavalleria og Pagliacci Utan gátta
Álit áhorfenda
Um sýninguna: Fólkið í blokkinni Ótrúlega flott sýning. Skemmtileg og fyndin og átakanleg. Líka mjög gaman hvernig hún er sett upp - algjörlega ný upplifun. Tónlistin er líka grípandi og það er mikill húmor í textunum. Mæli með þessari sýningu. Sigurður ***** stjörnur
Um sýninguna: Janis 27 Fín sýning, þrususöngur, fróðlegt fyrir þá sem ekki vissu neitt um Janis fyrir (var með 3 þannig meðferðis), frábær hljómsveit - Þær umsagnir sem "proffarnir" höfðu sett í blöðin dagana áður en við fórum voru ekki uppörvandi - en nú segjum við sem þarna vorum á 2. sýningu: Leikhúsgagnrýnendur hvað!! E.Þ. **** stjörnur
Skrifaðu þitt álit!
|
Dansaðu við mig í Iðnó
Hinn nýstofnaði leikhópur Leikhús andanna frumsýnir þann 24. október næstkomandi nýtt íslenskt leikverk, Dansaðu við mig, eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann.
Í sinni einföldustu mynd fjallar verkið um það þegar maður hittir konu /kona hittir mann. Verkið fjallar um töfrana sem eiga sér stað þegar fólk laðast hvert að öðru á óutskýranlegan hátt, stundum þvert gegn vilja sínum.
Nánar um sýninguna
Hart í bak frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir Hart í bak eftir Jökul Jakobsson á Stóra sviðinu nk. föstudag, þann 17. október, í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. Hart í bak markaði tímamót í íslenskri leiklistarsögu þegar það var frumsýnt árið 1962. Leikritið rataði beint að hjarta Íslendinga. Og nú, 46 árum síðar, á miklu umrótaskeiði í lífi íslensku þjóðarinnar, á þetta leikrit við okkur brýnt erindi.
Nánar um sýninguna
Músagildran á Akureyri
Sakamálaleikritið Músagildran eftir Agatha Christie í flutningi Leikfélags Akureyrar verður frumsýnt 18. október.
Óveður geisar um sunnanvert landið. Hópur ferðalanga verður innlyksa yfir páskana í Skíðaskálanum í Hegradölum. Veður fer versnandi, snjórinn hleðst upp - og fyrr en varir taka líkin að hlaðast upp. Ekki líður á löngu uns gestirnir átta sig á að morðinginn er á meðal þeirra. Linnulaus spenna fram á síðustu mínútu.
Nánar um sýninguna
Skugga-Sveinn hjá Leikfélagi Kópavogs
Leikfélag Kópavogs frumsýnir 19. október þann sígildasta af öllum sígildum, sjálfan Skugga-Svein eftir Matthías Jochumsson.
Verkið er sýnt í glænýrri leikgerð, sem löguð er að kröfum tímans. Skugga-Sveinn er jafnframt vígslusýning Leikhússins sem nýs leikhús félagsins í Funalind 2 í Kópavogi.
Nánar um sýningu
|