leikhús.is
- allt um leikhús á Íslandi

Duo frumsýnt 16. október
Kæri vildarvinur #nafn#,
Leikhúsleikurinn
Clamal býður í leikhús!

Það er 20.000 kr. gjafabréf hjá Clamal og tveir miðar á sýninguna Duo með Íslenska Dansflokkinum í 1. vinning þessa vikuna en auk þess mun Clamal einnig gefa fjórum öðrum heppnum þátttakendum tvo miða á sýninguna Duo.

Clamal á Íslandi

Taktu þátt í leikhúsleiknum 


Í leikhúsleiknum í síðustu viku var spurt hvað Happdrætti Háskóla Íslands hafi greitt mikið til vinningshafa árið 2007. Svarið er 850 milljónir! Vinningshafa í leikhúsleik HHÍ má finna inn á vefnum leikhús.is.

Á næstunni
Gangverkið
Engisprettur
Fólkið í blokkinni
Janis 27
Macbeth
Fýsn
Cavalleria Rusticana og Pagliacci
Klókur ertu Einar Áskell
Gosi
Skilaboðaskjóðan
Brák
Duo


Álit áhorfenda

Um sýninguna: 
Ástin er diskó, lífið pönk
Snilld! Ótrúlega skemmtilegt leikrit!
Kristína
***** stjörnur

Um sýninguna: Macbeth
Sýning fyrir alla (nema viðkvæma). Þú þarft ekki að hafa þekkingu á bókmenntum Shakespears til að njóta þessarar uppsetningar. Blóð og meira blóð!

Mæli sérstaklega að ungir leikhúsaðdáendur skelli sér (þá er ég að meina 16 ára og eldri).
Birgir Þór 
**** stjörnur


SKRIFAÐU ÞITT ÁLIT !


 

Íslenski Dansflokkurinn frumsýnir Duo

DuoÍslenski dansflokkurinn sýnir fjögur ný íslensk verk þar sem hver höfundur skapar dúett fyrir tvo dansara flokksins. Þetta verður fjölbreytt kvöldstund með samblandi af drama, húmor, dulúð, rómantík og síðast en ekki síst fallegum og tilfinningaríkum dans.
Frumsýningin er 16. október nk.

Verkin eru:
Djöflafúgan eftir Gunnlaug Egilsson
Svanurinn eftir Láru Stefánsdóttir
Ekki beint, kannski eftir Peter Anderson
Skekkja eftir Sveinbjörg Þórhallsdóttir  

Lesa nánar um verkin

Fólkið í blokkinni frumsýnt 10. október

Fólkið í blokkinniNýtt verk eftir Ólaf Hauk Símonarson, Fólkið í blokkinni, verður frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins 10. október nk. Nú þegar er uppselt á 20 sýningar en búið er að bæta við aukasýningum.

Þetta er hjartnæm saga af skrautlegu lífi fólks í blokk í Reykjavík sem ákveður að setja upp söngleik og efniviðurinn er það sjálft.

Lesa nánar um sýninguna

Þjóðleikur

Þjóðleikur er tilraunaverkefni sem Þjóðleikhúsið stendur fyrir á Austurlandi í vetur. Verkefnið miðar meðal annars að því að efla leiklistarstarf ungs fólks og hvetja til nýsköpunar í íslenskri leikritun. Þjóðleikhúsið er aðili að Vaxtarsamningi Austurlands og hefur samvinnu við menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og fleiri aðila á Austurlandi um skipulag og framkvæmd þessa nýstárlega verkefnis.
Lesa nánar um verkefnið

Hefur þú nýlega farið í leikhús?

Við viljum endilega fá álit þitt á þeim sýningum sem þú hefur séð nýlega en með því að fara inn á vefslóðina www.leikhus.is/alit getur þú á einfaldan máta skrifað þitt álit á sýningum eða bara gefið þeim stjörnugjöf.

Seinna í vetur munum við svo draga út nokkra heppna sem hafa skrifað sitt álit og getur þeir átt vona á að vinna gjafabréf í leikhús eða út að borða.
Skrifaðu þitt álit!

 
Fréttabréf leikhús.is er eingöngu sent vildarvinum sem óska eftir því,
með skráningu á www.leikhus.is eða meðþátttöku í leikhúsleiknum hjá leikhús.is.
leikhús.is - Laugavegi 8, 101 Reykjavík - s: 552 1001 - leikhus@leikhus.is