|
Á næstunni Fló á skinni Macbeth Ástin er diskó lífið er pönk Brák Gangverkið Fýsn Janis 27 Cavalleria Rusticana og Pagliacci Klókur ertu Einar Áskell Gosi Skilaboðaskjóðan Engisprettur
Álit áhorfenda
Um sýninguna: Brák Þetta er frábær sýning sem allir aldurshópar geta skemmt sér á. Brynhildur heldur manni við efnið allan tímann og skiptir skemmtilega á milli persóna.
Glæsileg sýning sem fellur alls ekki í skuggann á Mr. Skallagrímsson.
Ég gef henni 5 stjörnur af 5 mögulegum en hefði gefið fleiri ef það hefði verið hægt. Birgir Þór Halldórsson ***** stjörnur
Um sýninguna: Skilaboðaskjóðan Fór með 5 barnabörn á aldrinum 4 -7-8-13 alveg dásamlegt sambland af ævintýrum og allir skemmtu sér konunglega þeim yngstu fannst skemmtilegt að fá að taka þátt,hjálpa til að allt fari vel! mæli með þessu ævintýri fyrir alla. Björg Jónsdóttir ***** stjörnur
|
Janis 27 frumsýnt í íslensku Óperunni
Hin goðsagnakennda Janis Joplin lifnar við í nýju verki Ólafs Hauks Símonarsonar, Janis 27, sem verður frumsýnt í Íslensku óperunni 3. október næstkomandi. Verkið byggir á stuttu en litríku lífshlaupi söngkonunnar, sem lést af völdum fíkniefnaneyslu aðeins 27 ára gömul árið 1970. Hinar góðkunnu leikkonur Ilmur Kristjánsdóttir og Bryndís Ásmundsdóttir munu túlka söngkonuna í sýningunni í tali og söng, í leikstjórn reynsluboltans Sigurðar Sigurjónssonar.
Hrá og innblásin tónlist Joplin skipar stóran sess í verkinu og bregður fjögurra manna rokkband, undir stjórn Jóns Ólafssonar, sér í hlutverk hljómsveita Janisar Joplin á ferlinum.
UNDIR 25 ÁRA?
Íslenska óperan býður þeim sem eru 25 ára og yngri miða á Janis 27 með 50% afslætti og kostar miðinn þá aðeins 1.750 kr. Hægt er að fá afsláttinn með því að hringja í miðasölu og panta miða, en ekki er hægt að bóka afsláttarmiða á netinu.
Þjóðleikhúsið býður unga fólkið velkomið í leikhús. Leikhúsgestir 25 ára og yngri fá leikhúsmiðann á 1.500 kr. Meira en helmingsafsláttur. Þú getur pantað miðann fyrirfram og valið þér gott sæti á frábærum kjörum. Athugið að tilboðið gildir ekki á söngleiki.
Allir sem eru yngri en 25 ára, og einnig eldri námsmenn sem stunda nám við viðurkennda menntastofnun, fá áskriftarkort í Borgarleikhúsinu á einungis 4.450 krónur. Hér er hver miði í raun á verði bíómiða.
Macbeth í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir Macbeth eftir William Shakespeare sunnudaginn 5. október nk. Sýning þessi er afrakstur vinnusmiðju leikara á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins og er henni leikstýrt af tveimur leikurum Þjóðleikhússins, Stefáni Halli Stefánssyni og Vigni Rafni Valþórssyni.
Í vetur býður Þjóðleikhúsið listamönnum hússins Smíðaverkstæðið sem „leikhús-rannsóknarstofu“. Leikarar og aðrir leikhúslistamenn hafa þar vettvang fyrir tilraunir með efni og aðferðir, sem sumar hverjar munu skila sér í leiksýningum þar.
Nemendaleikhúsið frumsýnir Gangverkið
Gangverkið er verk sem er unnið og samið af leikhópnum sjálfum á 8 vikum og verður frumsýnt 3. október í Borgarleikhúsinu. Gangverkið er samsett sýning eða "devised" leikhúsverk og er því algjörlega unnið upp úr spuna, textum og hlutum sem leikhópurinn hefur safnað sjálfur. Í þessari sýningu tekst leikhúsið á við sjálft sig með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Ef leikhúsið er vél, úr hverju er hún þá samansett? Hættum að leika. Tökum vélina í sundur og skoðum einingarnar. Út með tilfinningar og inn með vísindin. |