|
Á næstunni Fló á skinni KINKI Cavalleria Rusticana og Pagliacci Mamma mamma Engisprettur Fýsn Klókur ertu Einar Áskell Gosi Ástin er diskó, lífið er pönk
Álit áhorfenda
Um sýninguna: Gosi Mér fannst þetta mjög skemmtileg leiksýning, og syni mínum fannst það líka, hann er að verða 4 ára og hefur ekki náð að festa athyglina svona lengi við neina sýningu nema þessa. Ég gef Gosa því 5 stjörnur. Ágústa Oddsdóttir ***** stjörnur
Um sýninguna: Fló á skinni Alveg frábær sýning. Skemmtileg og vel leikin. Sigríður Arnfj. Guðmundsdóttir ***** stjörnur

|
Dauðasyndirnar - guðdómlegur gleðileikur
Dauðasyndirnar slógu heldur betur í gegn hjá áhorfendum Borgarleikhússins sl. vor en nú er sýningin komin norður yfir heiðar og verða sýndar 4 sýningar í samstarfi við Leikfélag Akureyrar.
Fyrsta sýningin verður 29. september en hægt er að nálgast miða af vef leikfélags Akureyrar.
Dauðasyndirnar er frjálsleg túlkun á Guðdómlegum gamanleik Dantes, stórkostleg trúðasýning fyrir fullorðna sem fjallar um hinn eilífa vanda manneskjunnar – að lifa. Fjórir trúðar segja sögu Dantes í leit hans að Paradís. Sýningin er undirbúinn spuni og eru því engar tvær sýningar eins.
Gangverkið
Nemendaleikhúsið frumsýnir verkið Gangverkið þann 3. október næstkomandi. Verkið er unnið og samið af leikhópnum sjálfum á 8 vikum. Gangverkið er er samsett sýning eða "devised" leikhúsverk og er því algjörlega unnið upp úr spuna, textum og hlutum sem leikhópurinn hefur safnað sjálfur. Í þessari sýningu tekst leikhúsið á við sjálft sig með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Sýnt verður á Litla Sviði Borgarleikhússins frá 3. til 19. október og er miðaverð aðeins 1.500 kr. Lesa nánar
Engisprettur
Hér er á ferðinni glæsileg sýning frá síðasta leikári en Þjóðleikhúsið ætlar að sýna verkið aðeins fimm sinnum á næstu vikum.
Í Engisprettum er fjallað um fjölskylduna, átök ólíkra kynslóða og viðleitni mannsins til að komast af, á bráðsnjallan og meinfyndinn hátt. Við kynnumst fjölda persóna og fylgjumst með því hvernig örlög þeirra eru samofin. Svartur húmor, angurværð og mannleg hlýja renna saman á sérstæðan hátt í margslungnu verki.
|