leikhús.is
- allt um leikhús á Íslandi

Allt um leikhús á einum stað
Kæri vildarvinur #nafn#,
Leikhúsleikurinn
Stubbasmiðjan býður í leikhús!

Leikhúsleikur vikunnar er í samstarfi við Stubbasmiðjuna sem ætlar að bjóða 10 manns í Borgarleikhúsið ásamt því að allir vinningshafarnir fá gjafabréf í verslun Stubbasmiðjunnar.
Það er mjög einfalt að vera með í leikhúsleiknum - taktu þátt!

Stubbasmiðjan

Taktu þátt í leikhúsleiknum 

Hægt er að sjá hverjir voru vinningshafar í leikhúsleik iRobot og öðrum fyrri leikhúsleikjum leikhús.is og samstarfsaðila inn á vefnum leikhús.is.

Á næstunni
Fló á skinni
Mamma mamma
Pétur og Einar
Fool 4 Love
Fýsn
Ástin er diskó, lífið er pönk
Cavalleria Rusticana og Pagliacci
Klókur ertu Einar Áskell
Gosi
Skilaboðaskjóðan


Álit áhorfenda

Um sýninguna: 
Ástin er diskó lífið er pönk
Þessi sýning er snilld.
Hemmi Ztuð 
***** stjörnur

Um sýninguna:
Fló á skinni
Þetta er geðveikt leikrit, ég myndi endilega vilja eiga dvd diskinn og bara allt! Þetta er mikill misskilningur og drama og mjög fyndið! Ég myndi vilja fara aftur og aftur á þessa sýningu! Gói,Halli,Jói,Stína stóðu sig alveg framúrskarandi vel jafnt sem hinir í leikritinu!
Sonja Rún 
***** stjörnur


 

Fyrsta frumsýning leikársins í Óperunni

Cavalleria Rusticana og Pagliacci í íslensku ÓperunniÍslenska Óperan frumsýnir verkin Cavalleria Rustican og Pagliacci næstkomandi föstudagskvöld 19. september. Hér er um að ræða tvær einþáttungsóperur, þar sem daglegt líf fólks; harmur þess og gleði, eru í forgrunni. Munurinn á leikhúsi og lífi er tekinn til rækilegrar skoðunar í þessari uppfærslu og í raun mætti segja að hér fái óperugestir að upplifa leikhús í leikhúsi í leikhúsi!

Leikhúsperlur - afmælishátíð Atla Heimis

Atli Heimir SveinssonÍ tilefni af 70 ára afmæli tónskáldsins Atla Heimis Sveinssonar sunnudaginn 21. september nk. verður sérstök hátíðardagskrá á Stóra sviði Þjóðleikhússins helguð leikhústónlist hans. Leikarar Þjóðleikhússins stíga á stokk ásamt fjölda tónlistarmanna og dansaraefna og flytja brot úr verkunum Ég er gull og gersemi, Landi míns föður, Ofvitanum, Mýrarljósi, Sjálfstæðu fólki og Dimmalimm.
Lesa nánar um hátíðina.

Skemmtikraftur að sunnan

Kinkir Geir ÓlafssonSkemmtikrafturinn Kinkir Geir Ólafsson hefur af góðmennsku sinni ákveðið að gefa konum í úthverfum 101 Reykjavíkur tækifæri til að njóta kertaljósakonserts síns í tónleikahúsinu Salnum, Hamraborg 6 í Kópavogi. Kertaljósakonsertinn verður fimmtudaginn 25. september kl. 20 en ekki eru fleiri konsertar fyrirhugaðir í úthverfunum heldur mun Kinkir Geir einbeita sér að því að gleðja konur á landsbyggðinni næstu misseri.
Lesa nánar.

 
Fréttabréf leikhús.is er eingöngu sent vildarvinum sem óska eftir því, með skráningu á www.leikhus.is eða með
þátttöku í leikhúsleiknum hjá leikhús.is. Tölvupóstur þessi sendist á netfangið #netfang#.
Hafir þú ekki áhuga á að fá fleiri fréttabréf er einfaldast að senda okkur tölvupóst með fyrirsögninni "Nei takk".
leikhús.is - Laugavegi 8, 101 Reykjavík - s: 552 1001 - leikhus@leikhus.is