|
Á næstunni Fló á skinni Mamma mamma Pétur og Einar Fool 4 Love Fýsn Ástin er diskó, lífið er pönk Óvitar Klókur ertu Einar Áskell Gosi Skilaboðaskjóðan
Álit áhorfenda
Um sýninguna: Fló á skinni Fórum fjölskyldan saman á seinni sýningu laugard. 7 mars. Skemmtum okkur konunglega. Yngsti meðlimurinn (11ára) hló svo mikið að hún var með verki í maganum. Gaman að sjá þessa Akureyrsku útgáfu og óskum við leikendum og öðrum aðstandendum til hamingju með frábæra sýningu. Guðfinna Guðmundsdóttir
Um sýninguna: Skilaboðaskjóðan Frábært leikrit fyrir alla fjölskylduna, höfðar bæði til fullorðinna og barna. Skemmtilegur tvinningur á mörgum ævintýrum saman. Fór með dóttur minni á þetta og skemmtum við okkur konunglega saman. Mæli hiklaust með þessu leikriti fyrir fjölskylduna. Svava Einarsdóttir
Um sýninguna: Gosi Virkilega falleg umgjörð og skemmtileg fyrir augað. Hélt syni mínum algerlega við efnið. Hnyttið og spennandi leikrit sem fékk bæði móður og son til að sitja hugfangin í gegnum allt leikritið.
Takk fyrir okkur Hrafndís Bára
|
Frumsýning á Fýsn
Fyrsta frumsýning í Borgarleikhússins þetta leikárið er nýtt íslenskt verk, Fýsn, eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur.
Fýsn er sigurverk leikritasamkeppninnar "Sakamál á sviði" sem leikfélag Reykjavíkur stóð fyrir árið 2006. Hér er á ferðinni síðasta verkið í þríleik eftir Þórdísi Elvu en fyrri verkin voru Brotið sem sýnt var í Hafnarfjarðarleikhúsinu 2005 og Hungur sem sýnt var í Borgarleikhúsinu 2006.
Fýsn verður frumsýnt á Nýja sviðinu 12. september nk.
Ýmislegt fyrir börnin
Það er ýmislegt í boði fyrir yngri kynslóðirnar á næstunni en í þar á meðal er verkið Klókur ertu Einar Áskell sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Bernd Ogrodnik er hér mættur með nýja brúðuleiksýningu um uppátækjasama snáðann Einar Áskel sem allir ættu að kannast við. Skemmtilegt sýning fyrir yngstu meðlimina í fjölskyldunni. Sýningin um Einar Áskel er sýnd alla sunnudag í september kl. 11:00 og 12:30.
Skilaboðaskjóðan snýr aftur á svið Þjóðleikhússins og verða nokkrar sýningar á þessu vinsæla barnaleikriti nú á haustmánuðum.
Næsta sýning er 14. september.
Borgarleikhúsið verður með nokkrar aukasýningar á Gosa núna í september og október þannig að um að gera fyrir þá sem ekki hafa farið að sjá þetta sígilda ævintýri ,í flutningi leikfélags Reykjavíkur, að skella sér með alla fjölskylduna í Borgarleikhúsið.
... og smávegis í lokin
Þann 13. september n.k. hefjast á ný sýningar á verkinu Ástin er diskó - lífið er pönk sem sló í gegn á stóra sviði Þjóðleikhússins s.l. vor. Hér er á ferðinni söngleikur sem færir áhorfendur aftur til ársins 1980. Hér ægir öllu saman, diskókúlum og hanakömbum, vinsældapoppi og harðri pönktónlist.
Búið er að bæta við nokkrum aukasýningum á verkinu Mamma mamma sem sýnt er í Hafnarfjarðarleikhúsinu en aukasýningarnar verða 18., 21., 25. og 28. september.
Einnig hefur verið bætt við aukasýningum á sýninguna Fló á skinni í Borgarleikhúsinu en uppselt var á allar fyrirhugaðar sýningar. Aukasýningarnar verða í október. |