leikhús.is
- allt um leikhús á Íslandi

Kæri vildarvinur #nafn#,
Leikhúsleikurinn
Veiðihöllin býður í leikhús!

VeiðihöllinÞetta er í annað skiptið sem Veiðihöllin tekur þátt í leikhúsleik leikhús.is og heldur þannig áfram að styðja við blómlegt leikhúslíf landsins. Það er ekki einungis nýtt leikár að hefjast heldur er skotveiðitímabilið hafið og eflaust margir farnir að huga að jólasteikinni en Veiðihöllin býður mikið magn af veiðivörum fyrir alla veiðimenn og veiðikonur.
Leikhúsleikurinn er með sama sniði og á síðasta leikári og þarf eingöngu að svara einni laufléttri spurningu rétt til að eiga möguleika á gjafabréfi í leikhús í boði Veiðihallarinnar. Að þessu sinni er boðið upp á annarsvegar gjafabréf fyrir tvo í Borgarleikhúsið og hinsvegar gjafabréf fyrir tvo í Þjóðleikhúsið.

Taktu þátt í leikhúsleiknum 

Hægt er að sjá vinningshafa í sumarleik leikhús.is og öðrum fyrri leikhúsleikjum inn á vefnum leikhús.is.

Á næstunni
Uppljómun (ArtFart)
Brák
Klókur ertu Einar Áskell
Ástin er diskó, lífið er pönk
Óvitar
Mamma mamma
Ikeaferðir (ArtFart)
Pétur og Einar
Maddid (ArtFart)


Álit áhorfenda

Um sýninguna: Brák

Þetta er frábær sýning. Brynhildur fer algjörlega á kostum. Fullt hús frá mér og fjölskyldu. Poj, poj.
Kristín Árdal 
***** stjörnur


 

Nýtt leikár hjá Þjóðleikhúsinu

Klókur ertu Einar ÁskellÍ Þjóðleikhúsinu í haust og vetur verður lögð áhersla á innlenda leikritun með frumflutningi á nýjum verkum og nýrri uppfærslu á einni af perlum íslenskra leikbókmennta. Ný tónlist skipar einnig veglegan sess og frumsköpun af ýmsu tagi. Erlend klassík skipar að vanda sinn sess, með verkum eftir meistara leikhússins, William Shakespeare. Erlend samtímaleikritun fær svigrúm og erlendir leikstjórar veita ferskum straumum inn í íslensk leikhúslíf. Sem fyrr verður yngri kynslóðinni gert hátt undir höfði með úrvali góðra barnasýninga og leikferðum í framhaldsskóla og þá er ekki allt talið.
Lestu nánar um komandi leikár  hjá Þjóðleikhúsinu.

Leikárið 2008/2009 hjá Borgarleikhúsinu

Fló á skinniBorgarleikhúsið kynnti nýtt starfsár í síðustu viku og má með sanni segja að þeir hafi slegið í gegn en á þeim degi sem miðasalan opnaði seldust um 8000 leikhúsmiðar á sýningar vetrarins og þar á meðal var vinsælust sýningin Fló á skinni sem sló í gegn á Akureyri síðasta vetur og hlaut þar að auki áhorfendaverðlaunin á Grímunni 2008.
Hægt er að lesa frekar um komandi leikár Borgarleikhússins inn á fréttavef leikhús.is.

Íslenska Óperan

Janis 27Forsala miða á sýningar haustsins í Íslensku óperunni, Janis 27 og Cavalleria Rusticana og Pagliacci, hófst í síðustu viku inn á opera.is, og er óhætt er að segja að salan hafi farið afar vel af stað. Ljóst er að óperuunnendur ætla að fjölmenna í Óperuna í haust, enda spennandi verkefni framundan með afbragðslistafólki í hverju rúmi. Fyrsta frumsýning vetrarins er 19. september á Cavalleria Rusticana og Pagliacci.

Mamma mamma í Hafnarfjarðarleikhúsinu

Mamma mammaLeikhópurinn Opið út snýr nú aftur eftir smá sumarfrí með sýninguna Mamma mamma sem hlaut góða dóma jafnt gagnrýnenda sem áhorfenda s.l. vor.
Verkið er byggt á reynslusögum kvenna sem dætrum, mömmum og ömmum.
Verkið er sýnt í Hafnarfjarðaleikhúsinu og er hægt að kaupa miða af vefnum miði.is.

Leikárið hefst á Akureyri

ÓvitarLeiksýningin Óvitar fer aftur á svið Leikfélags Akureyrar þann 31. ágúst nk. en sýningin sló eftirminnilega í gegn síðasta haust á Akureyri. Þetta er upphaf vetrardagskrá leikfélagsins en boðið verður upp á margt spennandi þar í vetur en frumsýnd verða fjögur ný verk á þessu leikári auk þess sem 6 gestasýningar verða settar á svið fyrir Akureyringa og nærsveitunga.

Fool 4 Love / Fool for LoveLeikhópurinn Silfurtunglið fer nú í byrjun september með sýninguna Fool 4 Love til Akureyrar. Sýningin var frumsýnd í Austurbæjarbíó s.l. vor og vakti síðan sérstaklega athygli þegar verkið var tilnefnt til sex verðlauna á Grímunni 2008. Verkið fékk tilnefningar til bestu sýningar leikársins, fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki, besta leikara í aðalhlutverki, besta leikara í aukahlutverki, tónlist ársins og söngvari ársins en það er enginn annar en KK sjálfur.
Norðlendingar ættu ekki að láta þessa sýningu framhjá sér fara en nú þegar er uppselt á 4 sýningar.
Sjá dagskrána.

Leikhópurinn Lotta

Galdrakarlinn í OzÍ sumar hefur Leikhópurinn Lotta sýnt undir berum himni fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz víðsvegar um landið en leikhópurinn sýndi einmitt Dýrin í Hálsaskógi í fyrrasumar við miklar vinsældir.
Enn eru nokkrar sýningar eftir og þar á meðal ein sýning á Hvanneyri og önnur á Bifröst.
Hægt er að sjá dagskrá leikhópsins inn á vef leikhópsins.

 

Fréttabréf leikhús.is er eingöngu sent vildarvinum sem óska eftir því, með skráningu á www.leikhus.is eða með
þátttöku í leikhúsleiknum hjá leikhús.is. Tölvupóstur þessi sendist á netfangið #netfang#.
Hafir þú ekki áhuga á að fá fleiri fréttabréf er einfaldast að senda okkur tölvupóst með fyrirsögninni "Nei takk".
leikhús.is - Laugavegi 8, 101 Reykjavík - s: 552 1001 - leikhus@leikhus.is