Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan

    leikhveraLeikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið „Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan“. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir.

    Leikritið fjallar um Jónatan sem býr með þremur flugfreyjum, þeim Herdísi, Hafdísi og Hjördísi, sem allar vinna hjá sitthvoru flugfélaginu og koma heim á mismunandi tímum og vita ekki hver af annari. Á heimilinu er einnig heimilishjálpin Dísa. Hlutirnir fara svo að flækjast þegar Róbert vinur Jónatans kemur í heimsókn og fær að búa hjá honum nokkra daga.

    Leikritið er ærslafullur farsi þar sem einn kemur þá annar fer. Nokkur þekkt sönglög eru flutt í leikritinu eins og t.d. Ég fell bara fyrir flugfreyjum, Rassmus, I wont to brake free, Fly me to the moon og fleiri.

    Leikarar eru Davíð Michelsen, Hjörtur Benediktsson, Hrafnhildur Faulk, Irma Lín Geirsdóttir, Hrefna Ósk Jónsdóttir og Elín Hrönn Jónsdóttir. Stefnt er að frumsýningu laugardaginn 28. Febrúar í Leikhúsinu Austurmörk 23 í Hveragerði.

    Einnig má sjá myndir og fréttir á facebóksíðu Leikfélags Hveragerðis.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!