Dansveisla í Reykjavík og á Akureyri | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Dansveisla í Reykjavík og á Akureyri

    dansidans stór

    Í komandi viku býður Íslendinga sannkölluð dansveisla þegar tveir erlendir danshópar koma til landsins. Þetta er annars vegar pólski danshópurinn Polish Dance Theatre og hins vegar norskur danshópur sem kennir sig við stofnanda hans, Jo Strømgren Kompani. Koma danshópanna til landsins tengist samstarfi við Sjálfstæðu leikhúsin og verður sýnt á þremur stöðum á landinu.

    Borgarleikhúsið tekur á móti Polish Dance Theatre 18. og 19. maí. Þar verður flutt sýningin Czterdzieści eða Fjörutíu. Sýningin fylgist með lífi konu frá því augnabliki sem hún fæðist árið 1973 og allt til afmælis hennar árið 2013. Á þessum fjórum áratugum stendur hún frammi fyrir efasemdum, von, baráttu, vali og ófyrirsjáanlegum atburðum. Öllu þessu mætir hún af hetjudáð með lífsviljann að leiðarljósi. Á þessu ferðalagi um kaótíska Evrópu tekst aðalpersónunni að feta meðalveginn milli eigin metnaðar og þeirra aðstæðna sem hún lendir í hverju sinni. Þessi sýning er þó ekki einungis saga einnar manneskju heldur verður hún um leið samnefnari fyrir ferðalag heillrar þjóðar en einnig dansleikhússins. Pólland gekk í gegnum róttækar breytingar á síðastliðnum 40 árum en hverjar eru væntingar framtíðarinnar? Á 40 ára afmæli pólska dansleikhússins leitast þau við að svara sömu spurningu.

    thumbSömu daga eða 18. og 19. maí mun Jo Strømgren Kompani sýna The Border í Tjarnarbíói. Þessi danssýning hefur verið sýnd um allan heim frá því að hún var fyrst frumsýnd í Tromsø í Noregi 2011. Maður og kona vinna saman á skrifstofu langt í burtu, en samt svo nærri. Þau virðast umgangast hvort annað af gagnkvæmri virðingu en undir yfirborðinu geisar stríð, bæði vilja ná yfirráðum yfir svæðinu. Kannski er þó meira í húfi, eins og kemur í ljós þegar þau uppgötva fíkn sína fyrir ástríðu. Ástríðu fyrir hvoru öðru, ástríðu fyrir leiknum sjálfum eða hinni grimmu blöndu þess beggja eins og oft vill vera í samskiptum kynjanna. Ef við leyfum ímyndunaraflinu að leika lausum hala opnum við fyrir frekari skilning. Getur verið að þessi erfiða sambúð eigi eitthvað sameiginlegt með klassískri landamæradeilu milli tveggja þjóða?

    Að lokum leggja svo danshóparnir enn undir sig fót og fara saman til Akureyrar þar sem sýningarnar verða sýndar hvor á eftir annarri í Menningarhúsinu Hofi. Póslki flokkurinn ríður á vaðið með Czterdzieści þann 21. maí og norsku listamennirnir klára svo þessa miklu dansveislu með sýningu á The Border 22. maí.

    Verkefnið er fjármagnað með styrkjum frá Íslandi, Liechtenstein og Noregi.

    Hér er hægt að kaupa miða á Czterdzieści:

     Hér er hægt að kaupa miða á The Border:



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!