Uncategorized | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Browsing "Uncategorized"

    Ný áskriftarleið fyrir ungt fólk í ætt við Spotify og Netflix

    ágú 18, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Nú gefst ungu fólki kostur á að nýta sér sýningar Þjóðleikhússins á mun betri kjörum en áður hefur þekkst.

    Þjóðleikhúsið mun á næstu dögum kynna glænýja áskriftarleið fyrir ungt fólk á aldrinum 15 – 25 ára sem veitir þeim aðgang að öllum sýningum leikhússins á leikárinu, eins oft og hver vill á mun lægra verði en áður hefur þekkst í leikhúsum hérlendis. Um er að ræða áskriftarform í ætt við þá sem þekkist hjá Spotify, Netflix, Storytel og sambærilegum veitum þar sem greitt er mánaðargjald gegn ótakmarkaðri notkun. Verðinu er mjög stillt í hóf, en fyrir aðeins 1.450 kr. á mánuði býðst ungu fólki að sjá allar sýningar leikhússins eins og oft og það kýs.

    Stjórnendur leikhússins segja að þetta sé byltingarkennd leið til að opna leikhúsið enn frekar fyrir ungu fólki en í þeim hópi er stór hópur leikhúsunnenda en fyrir marga er verðið hár þröskuldur. Með fastri áskrift í tíu mánuði býðst áskrifendum að tryggja sér miða samdægurs, eins oft og hugurinn girnist. Með þessari leið vill Þjóðleikhúsið tryggja að dyr leikhússins verði galopnaðar fyrir ungu fólki, en verð á leiksýningar hefur reynst vera helsta hindrunin í að þessi hópur sæki leikhús.

    Þjóðleikhúsið mun afhjúpa fjölbreytt og metnaðarfullt, nýtt leikár í næstu viku og þá hefst sala á nýju opnu kortunum samhliða sölu hefðbundinna áskriftarkorta. Á komandi leikári mun Þjóðleikhúsið einnig kynna fjölmargar aðrar nýjungar sem miða að því að opna leikhúsið enn frekar, t.a.m. verður 7.sýning hvers verks textuð á íslensku og ensku.

    Fransí Biskví í Kómedíuleikhúsinu

    jún 27, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Fransí Biskví er sýnt í Kómedíuleikhúsinu Haukadal.

    Í kvöld, þriðjudag 27. júní, frumsýnir Kómedíuleikhúsið nýtt íslenskt leikverk Fransí Biskví. Hér er saga hinna frönsku sjómanna í aðalhlutverki en þeir voru árlegir gestir í Dýrafirði í rúmar tvær aldir. Fransí Biskví er sýning ársins í Sumarleikhúsi Kómedíuleikhússins í Haukadal Dýrafirði sem verður í brakandi sumarstuði í allt sumar. Miðasala á sýningar Sumarleikhússins fer fram í síma 891 7025 en einnig er hægt að kaupa miða á allar sýningar á tix.is

    Höfundur og leikari Fransí Biskví er Elfar Logi Hannesson. Tónlist í leiknum er eftir Björn Thoroddsen, gítarleikara, Sunnefa Elfarsdóttir hannar búning og leikmynd og leikstjórn annast Marsibil G. Kristjánsdóttir. Í Fransí Biskví verður hin fransk íslenska sjómannasaga sögð með sérstakri áherslu á sögu- og leikhústaðinn Haukadal. Árlega voru hinir frönsku sjómenn fastir, eða öllu heldur siglandi gestir á Haukadalsbótinni. Mörg gerðust þar samskiptin og ævintýrin millum Haukdæla og Fransmanna svo úr varð meira að segja sérstakt tungumál, Haukadalsfranska.

    „Haukadalur varð snemma jafnvel bara frá landnámi eða frá tímum Gísla sögu Súrssonar, miðstöð mikilla umsvifa. Þegar þar fór svo að myndast þorp jukust umsvifin enn meir. Ástæðan var ekki síst Haukadalsbótin sem snemma varð vinsæl hjá sjófarendum enda þar upplagt að vera til að laga sitt fley, umsalta afla eða bíða af sér veðrið. Það voru ekki síst erlend skip sem völdu bótina í Haukadal sem einskonar akkeri og voru þar einkum um að ræða franska sjómenn. Voru hinir frönsku árlegir gestir í Haukadal í langan tíma og þá einkum á 19. öldinni og langt fram undir fyrri heimstyrjöld. Ósjaldan komu hinir frönsku í land í Haukadal og áttu margvísleg sam- sem viðskipti við heimamenn. Mest var þar um að ræða skiptikaupmennsku sem er um margt góður buisness. Einkum var þar umað ræða prjónles, vettlingar, er þá frönsku vanhagaði um og gáfu í staðinn hið fræga harða kex, Fransí Biskví.“

    Sýningar á Fransí Biskví í Kómedíuleikhúsinu Haukadal verða sem hér segir.

    Frumsýning þriðjudaginn 27. júní, 2. sýning föstudaginn 7. júlí, 3. sýning sunnudaginn 9. júlí, 4. sýning miðvikudaginn 19. júlí og lokasýning verður laugardaginn 22. júlí.

    Allar sýningar hefjast klukkan 20 og miðasala fer fram í síma 891 7025 og á tix.is

    Ellen B. valinn sýning ársins

    jún 15, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Ellen B. hlaut þrenn verðlaun á grímunni í ár.

    Íslensku sviðslista­verðlaun­in, Grím­an, voru af­hent í 21. sinn við hátíðlega at­höfn í Borg­ar­leik­hús­inu. Leik­sýn­ing­in Ellen B. var valinn sýning ársins auk þess sem Benedict Andrews fékk verðlaun sem leikstjóri ársins og Benedikt Erlingsson fékk verðlaun sem leikari ársins í aukahlutverki. 

    Stórleikarinn Arnar Jónsson hlaut heiðursverðlaun Grímunnar. Hlaut hann viður­kenn­ing­una „fyr­ir framúrsk­ar­andi og ómet­an­leg störf í þágu ís­lenskr­ar leik­list­ar“.

    • Sýn­ing árs­ins: Ell­en B.
    • Leik­rit árs­ins: Síðustu dag­ar Sæ­unn­ar eft­ir Matth­ías Tryggva Har­alds­son
    • Leik­stjóri árs­ins: Benedict Andrews – Ell­en B.
    • Leik­ari í aðal­hlut­verki: Hall­grím­ur Ólafs­son – Íslands­klukk­an
    • ​Leik­ari í auka­hlut­verki: Bene­dikt Erl­ings­son – Ell­en B.
    • ​Leik­kona í aðal­hlut­verki: Nína Dögg Fil­ipp­us­dótt­ir – Ex
    • ​Leik­kona í auka­hlut­verki: Íris Tanja Flygenring – Sam­drætt­ir
    • Leik­mynd: Mirek Kaczma­rek – Prins­essu­leik­arn­ir
    • Bún­ing­ar: Al­exía Rós Gylfa­dótt­ir og Tanja Huld Levý Guðmunds­dótt­ir – Gei­g­engeist
    • Lýs­ing: Kjart­an Þóris­son – Gei­g­engeist
    • ​Tónlist: Gígja Jóns­dótt­ir og Pét­ur Eggerts­son – Gei­g­engeist
    • Hljóðmynd: Unn­steinn Manu­el Stef­áns­son – Íslands­klukk­an
    • ​Söngv­ari: Björg­vin Franz Gísla­son – Chicago
    • Dans­ari: Þyri Huld Árna­dótt­ir – Hringrás
    • ​Dans­höf­und­ur: Þyri Huld Árna­dótt­ir – Hringrás
    • ​Dans- og sviðshreyf­ing­ar: Lee Proud – Chicago
    • ​Barna­sýn­ing árs­ins: Draumaþjóf­ur­inn
    • Sproti árs­ins: Grasrót­ar­starf óperu­lista­manna
    • Heiður­sverðlaun Sviðslista­sam­bands Íslands 2023: Arn­ar Jóns­son

    Íslandsklukkan hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar

    jún 5, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Leikhópurinn Elefant setti upp Íslandsklukkuna í Þjóðleikhúsinu.

    Íslands­klukk­an eft­ir Hall­dór Lax­ness í leik­gerð leik­hóps­ins Elef­ant, hlýt­ur flest­ar til­nefn­ing­ar til Grím­unn­ar, ís­lensku sviðslista­verðlaun­anna, í ár eða 10 tals­ins. Næst­flest­ar til­nefn­ing­ar, eða sjö tals­ins, hlýt­ur söng­leik­ur­inn Chicago.

    Veitt verða verðlaun í 17 flokk­um auk Heiður­sverðlauna Sviðslista­sam­bands Íslands, sem veitt eru ein­stak­lingi sem þykir hafa skilað framúrsk­ar­andi ævi­starfi í þágu sviðslista á Íslandi. Grím­an verður af­hent í Borg­ar­leik­hús­inu miðviku­dag­inn 14. júní og sýnd beint á RÚV.

    Íslands­klukk­an er í leik­stjórn Þor­leifs Arn­ar Arn­ars­son­ar og í sviðsetn­ingu leik­hóps­ins Elef­ant í sam­starfi við Þjóðleik­húsið, en verkið fær meðal ann­ars til­nefn­ing­ar í flokk­un­um sýn­ing árs­ins, leik­stjóri árs­ins, leik­ari og leik­kona í aðal­hlut­verki og leik­ari í auka­hlut­verki.

    Sýn­ing árs­ins
    Chicago
    Ell­en B.
    Ex
    Gei­g­engeist
    Íslands­klukk­an

    Leik­rit árs­ins
    Á eig­in veg­um eft­ir Maríönnu Clöru Lúth­ers­dótt­ur og Sölku Guðmunds­dótt­ur
    Hið ósagða eft­ir Sig­urð Ámunds­son
    Óbæri­leg­ur létt­leiki knatt­spyrn­unn­ar eft­ir Sveinn Ólaf Gunn­ars­son og Ólaf Ásgeirs­son
    Síðustu dag­ar Sæ­unn­ar eft­ir Matth­ías Tryggva Har­alds­son
    Til ham­ingju með að vera mann­leg eft­ir Sig­ríði Soffíu Ní­els­dótt­ur

    Leik­stjóri árs­ins
    Benedict Andrews – Ell­en B.
    Benedict Andrews – Ex
    Vikt­oría Blön­dal – Óbæri­leg­ur létt­leiki knatt­spyrn­unn­ar
    Þor­leif­ur Örn Arn­ars­son – ­Íslands­klukk­an
    Þóra Karítas – Sam­drætt­ir

    Leik­ari í aðal­hlut­verki
    Björg­vin Franz Gísla­son – Chicago
    Gísli Örn Garðars­son – Ex
    Hall­grím­ur Ólafs­son – Íslands­klukk­an
    Jó­hann Sig­urðar­son – Síðustu dag­ar Sæ­unn­ar
    Sveinn Ólaf­ur Gunn­ars­son – Ven­us í feldi

    Leik­ari í auka­hlut­verki
    Arnþór Þór­steins­son – Chicago
    Bene­dikt Erl­ings­son – Ell­en B.
    Davíð Þór Katrín­ar­son – Íslands­klukk­an
    Jör­und­ur Ragn­ars­son – ­Prins­essu­leik­arn­ir
    Ólaf­ur Ásgeirs­son – Óbæri­leg­ur létt­leiki knatt­spyrn­unn­ar

    Leik­kona í aðal­hlut­verki
    Ásthild­ur Úa Sig­urðardótt­ir – Svartþröst­ur
    Guðrún S. Gísla­dótt­ir – Síðustu dag­ar Sæ­unn­ar
    Nína Dögg Fil­ipp­us­dótt­ir – Ex
    María Thelma Smára­dótt­ir – ­Íslands­klukk­an
    Sara Dögg Ásgeirs­dótt­ir – Ven­us í feldi

    Draumaþjófurinn.

    Leik­kona í auka­hlut­verki
    Ásthild­ur Úa Sig­urðardótt­ir – Mac­beth
    Ebba Katrín Finns­dótt­ir – Ell­en B.
    Íris Tanja Flygenring – Sam­drætt­ir
    Krist­ín Þóra Har­alds­dótt­ir – ExÞórey Birg­is­dótt­ir – Draumaþjóf­ur­inn

    Leik­mynd
    Milla Cl­ar­ke – Mac­beth
    Eg­ill Sæ­björns­son – Á eig­in veg­um
    Mirek Kaczma­rek – Prins­essu­leik­arn­ir
    Ilm­ur Stef­áns­dótt­ir – Draumaþjóf­ur­inn
    Guðný Hrund Sig­urðardótt­ir – Íslands­klukk­an

    Bún­ing­ar
    Al­exía Rós Gylfa­dótt­ir og Tanja Huld Levý Guðmunds­dótt­ir – Gei­g­engeist
    Guðný Hrund Sig­urðardótt­ir – Íslands­klukk­an
    María Th. Ólafs­dótt­ir – Draumaþjóf­ur­inn
    Mirek Kaczma­rek – Prins­essu­leik­arn­ir
    Liucija Kvašyte – Mac­beth

    Lýs­ing
    Björn Berg­steinn Guðmunds­son og Petr Hloušek – Draumaþjóf­ur­inn
    Ju­liette Lou­ste – Ég lifi enn – sönn saga
    Mirek Kaczma­rek – Prins­essu­leik­arn­ir
    Kjart­an Þóris­son – Gei­g­engeist
    Pálmi Jóns­son – Mac­beth

    Tónlist
    Áskell Harðar­son – Verk nr. 2.1
    Gígja Jóns­dótt­ir og Pét­ur Eggerts­son – Gei­g­engeist
    Kristjana Stef­áns­dótt­ir – Hvað sem þið viljið
    Unn­steinn Manu­el Stef­áns­son – Íslands­klukk­an
    Urður Há­kon­ar­dótt­ir – Hringrás

    Hljóðmynd
    Gísli Gald­ur Þor­geirs­son og Aron Þór Arn­ars­son – Ell­en B.
    Sig­urður Ámunda­son, Óskar Þór Ámunda­son og Andri Björg­vins­son – Hið ósagða
    Unn­steinn Manu­el Stef­áns­son – Íslands­klukk­an
    Urður Há­kon­ar­dótt­ir – Hringrás
    Þor­björn Stein­gríms­son – Mac­beth

    Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar.

    Söngv­ari
    Björg­vin Franz Gísla­son – Chicago
    Björk Ní­els­dótt­ir – Þögn­in
    Hye-Youn Lee – Madama Butterfly
    Mar­grét Eir – Chicago
    Valdi­mar Guðmunds­son – Óbæri­leg­ur létt­leiki knatt­spyrnn­un­ar

    Dans­ari
    Dí­ana Rut Krist­ins­dótt­ir – Til ham­ingju með að vera mann­leg
    Embla Guðrún­ar Ágústs­dótt­ir – Góða ferð inn í göm­ul sár
    Er­nesto Cami­lo Aldazá­bal Valdes – Íslands­klukk­an
    Katrín Vign­is­dótt­ir – Chicago
    Þyri Huld Árna­dótt­ir – Hringrás

    Dans­höf­und­ur
    Gígja Jóns­dótt­ir & Pét­ur Eggerts­son – Gei­g­engeist
    Val­gerður Rún­ars­dótt­ir – Dansa, hvað er betra en að dansa
    Þyri Huld Árna­dótt­ir – Hringrás
    Dans og sviðshreyf­ing­ar
    Ju­liette Lou­ste – Ég lifi enn – sönn saga
    Lee Proud – Chicago
    Lee Proud – Draumaþjóf­ur­inn
    Sig­ríður Soffía Ní­els­dótt­ir og hóp­ur­inn – Til ham­ingju með að vera mann­leg
    Unn­ur Elísa­bet Gunn­ars­dótt­ir – Them

    Sproti árs­ins
    Grasrót­ar­starf óperu­lista­manna
    Tóma rýmið
    Dunce – tíma­rit um dans, kor­eó­grafíu og gjörn­ingalist

    Mother Load

    jún 5, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Mother Load er sýnt í Tjarnarbíó 16. og 17. júní.

    Sambönd mæðra og dætra hafa löngum verið talin flókin og gefa sálfræðingum nokkuð að iðja um ókomin ár. Því er þó ekki að neita að slík sambönd eru bæði djúp og tilfinningarík. Leikverkið Mother Load fjallar um lífslok og ákvarðanir sem skylduræknar dætur verða að taka við þær aðstæður. Þrátt fyrir ágreining, friðarsamninga, erjur og endanlega sátt (hvort sem þeim líkar betur eða verr) eru böndin milli sterkra sjálfstæðra kvenna órjúfanleg og full ástar.

    Etty

    jún 5, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Etty verður frumsýnt í Tjarnarbíó 14. júní.

    Etty Hillesum lést í Auschwitz aðeins 29 ára að aldri. Leikverkið Etty er sett saman úr dagbókum hennar og bréfum frá 1941 til 1943. Í því kynnumst við merkilegri ungri hollenskri konu, innsæi hennar, ljóðrænu, ákveðni og ástríðu.

    Susan Stein fer með hlutverk Ettyar, tjáir sig hispurslaust og talar beint til áhorfandans. Susan þræðir sig í gegnum verkið með kærleika og samkennd (jafnvel til óvinarins) í leit að tilganginum í lífi Ettyar og tilgangi lífsins í þeim hryllingi sem fylgdi hernámi nasista. Etty Hillesum uppgötvar sinn eigin sannleik sem hún kallar Guð, og opnar sig upp á gátt fyrir kraft þess að vera lifandi og jarðtengd og bera vitni um þau ósköp sem drifu á daga hennar.

    Etty biður okkur á blíðan en hreinskilin hátt að skilja sig ekki eftir í Auschwitz heldur að leyfa henni að eiga svolítinn hlut að því sem hún vonar að geti orðið betri veröld.

    Eftir sýningu verða umræður með handritshöfundinum og leikkonunni Susan Stein.

    GILITRUTT

    maí 28, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Leikhópurinn Lotta sýnir söngleikinn Gilitrutt mánudaginn 12.júní í skrúðgarðinum við Ytri – Njarðvíkurkirkju klukkan 18:00.

    Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur, en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Í sumar eru liðin 10 ár frá því að Gilitrutt var frumsýnd hjá Leikhópnum Lottu en um er að ræða eitt vinsælasta verk hópsins frá upphafi.Í ævintýrinu um Gilitrutt fléttast saman sögurnar um geiturnar þrjár og Búkollu auk þjóðsögunnar um Gilitrutt.
    Að auki fá áhorfendur að kynnast bróður hennar Gilitruttar honum Bárði, fólkinu á bænum Bakka og fleiri skemmtilegum persónum úr Ævintýraskóginum.Gilitrutt er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman. Þar sem sýningarnar eru utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum.Miðaverð 3.500 krónur, frítt fyrir 2ja ára og yngri. Bæði er hægt að nálgast miða á staðnum sem og á tix.isHlökkum til að sjá sem flesta!

    Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir
    Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Rósa Ásgeirsdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Sumarliði V Snæland Ingimarsson
    Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen
    Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Gunnar Ben og Helga Ragnarsdóttir
    Höfundar lagatexta: Baldur Ragnarsson
    Hljóðblöndun tónlistar: Axel „Flex“ Árnason
    Hljóðblöndun á sýningum: Þórður Gunnar Þorvaldsson
    Búningahönnun: Kristína R. Berman og leikhópurinn
    Danshöfundur: Sif Elíasdóttir Bachmann, Ágústa Skúladóttir & leikhópurinn
    Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson
    Leikmunir: Leikhópurinn

    Aðventa Gunnars Gunnarssonar í Borgarleikhúsinu

    maí 22, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Sviðslistahópurinn Rauði sófinn.

    Sviðslistahópurinn Rauði sófinn í samstarfi við MurMur productions og Borgarleikhúsið setur upp nýstárlega uppfærslu af Aðventu Gunnars Gunnarssonar, einni af helstu perlum íslenskra bókmennta. Einvala lið listafólks kemur að uppsetningunni en með leikstjórn fer Egill Ingibergsson sem einnig mun móta leikgerð ásamt þeim Móeiði Helgadóttur leikmunahönnuði og Þórarni Blöndal, myndlistamanni. Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir hannar og klæðir persónur verksins og þau Friðgeir Einarsson, Lovís Ósk Gunnarsdóttir og Sigurður Halldórsson, sem jafnframt hannar hljóðheim verksins, munu ljá þeim líf í samhljómi við tækni og töfra leikhússins.

    Hópurinn kom saman í Borgarleikhúsinu um helgina og byrjaði að kafa í söguna og hugarheim Gunnars en verkið verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins 3. desember 2023, fyrsta sunnudag í aðventu.

    Í sýningunni verður leitast við að miðla þáttum verksins – stórfenglegri náttúru, ríku innra lífi aðalsögupersónunnar Benedikts og samspilinu þar á milli – án orða þar sem myndlist, tónlist, leiklist og tækni mynda órofa heild. Áhorfandinn dregst inn í iðandi stórhríð en sér þar hjörtu sem bjarma frá sér kærleika og ást.

    Fylgist með.

    Eitruð lítil pilla í Borgarleikhúsinu

    maí 20, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Rokksöngleikur byggður á tónlist Alanis Morissette verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu í febrúar á næsta ári.

    Borgarleikhúsið hefur tryggt sér sýningarrétt á rokksöngleiknum Eitruð lítil pilla eftir Alanis Morrissette og Diablo Cody.


    Söngleikurinn Eitruð lítil pilla byggir á tónlist af plötu Alanis Morrissette, Jagged Little Pill, einni áhrifamestu plötu tíunda áratugarins. Platan seldist í tugmilljónum eintaka þegar hún kom út árið 1995 og er meðal söluhæstu hljómplatna allra tíma. Hún hlaut fimm Grammy-verðlaun og gerði hina 21 árs gömlu Alanis að alþjóðlegri stórstjörnu á einni nóttu. Tónlist Alanis einkenndist af óbeisluðum krafti og hráum og hnitmiðuðum textum. Lög á borð við „You Oughta Know“, „You Learn“ og „Ironic“ eru ótvírætt meðal helstu einkennislaga tíunda áratugarins.

    Eitt þeirra laga sem mun hljóma í Borgarleikhúsinu á komandi leikári

    Söngleikur byggður á tónlist Alanis var frumsýndur á Broadway í lok árs 2019 og sló rækilega í gegn þrátt fyrir Covid-hindranir. Hann hlaut fimmtán tilnefningar til Tony-verðlaunanna og hreppti meðal annars verðlaunin fyrir besta handritið, en höfundur þess, Diablo Cody, er sennilega þekktust sem handritshöfundur kvikmynda á borð við Juno (2007), Young Adult (2011) og Tully (2018).

    Eitruð lítil pilla segir frá Healy-fjölskyldunni; hjónunum Mary Jane og Steve og börnum þeirra Nick og Frankie. Það er allt í himnalagi hjá Mary Jane. Eiginmaðurinn Steve er í góðri stöðu, sonurinn Nick var að komast inn í Harvard og dóttirin Frankie… tja… hún er svo skapandi og lífleg. Steve vinnur reyndar 60 tíma á viku, Nick er að bugast undan væntingunum sem til hans eru gerðar og Frankie reynir að fóta sig sem ættleidda tvíkynhneigða dóttir úthverfadrottningarinnar. En Mary Jane er í lagi. Þessar nokkru Oxycontin töflur á dag eru bara til að slá rétt aðeins á sársaukann eftir bílslysið í fyrra. Smátt og smátt er farið að kvarnast upp úr fallegu fjölskyldumyndinni sem Mary Jane sendir með jólakortinu á hverju ári og áður en yfir lýkur þarf öll fjölskyldan að horfast í augu við óþægilegar staðreyndir – óþægilegar staðreyndir sem eru kannski grundvöllur lífsins þegar betur er að gáð.

    Stórstjarnan Jóhanna Vigdís Arnardóttir snýr aftur í Borgarleikhúsið í hlutverki Mary Jane, eiginmanninn Steve leikur Valur Freyr Einarsson og stjörnum prýddan leikhópinn fylla meðal annars Aldís Amah Hamilton, Íris Tanja Flygenring, Sigurður Ingvarsson, Haraldur Ari Stefánsson og Elín Sif Hall.

    Leikstjóri: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
    Þýðendur: Matthías Tryggvi Haraldsson og Ingólfur Eiríksson
    Danshöfundur: Saga Sigurðardóttir
    Tónlistarstjóri: Örn Eldjárn
    Leikmynd: Eva Signý Berger
    Búningar: Karen Briem
    Lýsing: Pálmi Jónsson
    Hljóð: Kristinn Gauti Einarsson

    Jóhann Vigdís Arnardóttir (Mary Jane), Valur Freyr Einarsson (Steve), Aldís Amah Hamilton (Frankie), Sigurður Ingvarsson (Nick), Íris Tanja Flygenring (Jo), Haraldur Ari Stefánsson (Phoenix), Elín Sif Hall (Bella), Sölvi Dýrfjörð (Andrew), Rakel Ýr Stefánsdóttir (Lily), Hákon Jóhannesson (Charlie), Esther Talía Casey, Birna Pétursdóttir, Hannes Þór Egilsson, Védís Kjartansdóttir og Marinó Máni Mabazza.

    Frumsýning 16. febrúar 2024 á Stóra sviði Borgarleikhússins.

    Þríleiknum lokað í haust

    maí 17, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Þríleikur Marius von Mayenburg verður fullkomnaður með Ilmi Kristjáns og Birni Thors í aðalhlutverkum.

    Æfingar á þriðja hluta Mayenburg-þríleiksins hófust í vikunni. Björn Thors og Ilmur Kristjánsdóttir fara með hlutverkin og Mayenburg sjálfur sér um leikstjórn en þetta er í fyrsta skipti sem hann leikstýrir á Íslandi. 

    Ex og Ellen B. voru frumsýnd á þessu leikári og hlutu mikið lof gagnrýnenda og afragðs aðsókn. Meðal þess sem gagnrýnendur nefndu var að hér væri um heimsviðburð að ræða, sýningu þar sem allt gengi upp og að stjörnuleikur einkenndi uppsetningarnar. 

    Þriðji hlutinn heitir Ekki málið og verður heimsfrumsýning á verkefinu á fjölum Þjóðleikhússins í september. Eins og áður sagði mun höfundurinn sjálfur, Marius von Mayenburg leikstýra verkinu en það var Benedict Andrews sem leikstýrði fyrri verkunum tveimur. Öll verkin þrjú verða sýnd samhliða í nóvember.

    Í tilkynningu frá leikhúsinu segir að verkin þrjú séu merk fyrir margra hluta sakir, ekki síst vegna þess að hér sé á ferð heimsfrumsýning á verkum eftir eitt eftirsóttasta leikskáld samtímans og vegna þess að þríleikur af þessu tagi hafi aldrei verið sviðsettur hérlendis. 

    „Ex og Ellen B. voru frumsýnd á þessu leikári og hlutu mikið lof gagnrýnenda og afragðs aðsókn. Meðal þess sem gagnrýnendur nefndu var að hér væri um heimsviðburð að ræða, sýningu þar sem allt gengi upp og að stjörnuleikur einkenndi uppsetningarnar. Enn eru tvær sýningar eftir á EX á leikárinu en nú hefur verið ákveðið, vegna þeirra móttakna sem sýningarnar hafa fengið, að þær komi allar aftur á svið í nóvember og verði þá sýndar í takmarkaðan tíma,“ segir í tilkynningu.

    Æfingar hófust á verkinu í vikunni. Bjarni Jónsson þýddi en sem fyrr er það Nína Wetzel sem hannar leikmynd og búninga.

    Síður:«12345678910...91»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!