Söngleikurinn Eitruð lítil pilla byggir á tónlist af plötu Alanis Morissette, Jagged Little Pill, einni áhrifamestu plötu tíunda áratugarins og einni söluhæstu hljómplötu allra tíma. Tónlist Alanis einkennist af óbeisluðum krafti og hráum og hnitmiðuðum textum. Lög á borð við „You Oughta Know“, „You Learn“ og „Ironic“ eru ótvírætt meðal helstu einkennislaga tíunda áratugarins.
Það er allt í himnalagi hjá Mary Jane. Eiginmaðurinn Steve er í góðri stöðu, sonurinn Nick var að komast inn í Harvard og dóttirin Frankie… tja… hún er svo skapandi og lífleg. Steve vinnur reyndar 60 tíma á viku, Nick er að bugast undan væntingunum sem til hans eru gerðar og Frankie reynir að fóta sig sem ættleidda tvíkynhneigða dóttir úthverfadrottningarinnar. En Mary Jane er í lagi. Þessar nokkru ópíóða töflur á dag eru bara til að slá rétt aðeins á sársaukann eftir bílslysið í fyrra. Smátt og smátt er farið að kvarnast upp úr fallegu fjölskyldumyndinni sem Mary Jane sendir með jólakortinu á hverju ári og áður en yfir lýkur þarf öll fjölskyldan að horfast í augu við óþægilegar staðreyndir – óþægilegar staðreyndir sem eru kannski grundvöllur lífsins þegar betur er að gáð.
Litli leikklúbburinn í samstarfi við Tónlistarskólann á Ísafirði frumsýndi söngleikinn Fiðlarann á þakinu fyrir troðfullum Edinborgarsal, fimmtudaginn 1. febrúar.
Fiðlarinn á þakinu segir frá mjólkurpóstinum Tevje og gerist árið 1905 í þorpinu Anatevka í Rússlandi þar sem siðvenjur og hefðir eru fyrir öllu. Tevje og Golda konan hans eiga fimm dætur sem allar þurfa eiginmenn. Hjúskaparmiðlari þorpsins gerir sitt besta til að sinna hlutverki sínu en dæturnar hafa aðrar hugmyndir um örlög sín en foreldrarnir, miðlarinn og samfélagið. Höfundar verksins eru Jerry Boch og Sheldon Harnick. Þýðandi er Þórarinn Hjartarson.
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir og um tónlistarstjórn sér Beáta Joó. Bergþór Pálsson, stórsöngvari og skólastjóri tónlistarskólans leikur aðalhlutverkið í verkinu, Tevje mjólkurpóst, en alls eru tæplega 30 leikarar í sýningunni. Hljómsveitin telur níu manns, þar eru núverandi og fyrrverandi nemendur Tónlistarskólans á Ísafirði, auk kennara. Fjölmargir koma einnig að uppsetningunni á bak við tjöldin við lýsingu, hljóð, búninga, leik- og sviðsmynd. Búningahönnuður er Jóhanna Eva Gunnarsdóttir og ljósahönnuður er Friðþjófur Þorsteinsson.
Litli leikklúbburinn og tónlistarskólinn hafa áður sett upp stóra söngleiki saman, en nokkuð er liðið síðan síðast, þegar Söngvaseiður var settur á svið árið 2003, en sú sýning var einmitt valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins og sýnd nokkrum sinnum fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu.
Magnaður efniviður Elísabetar Jökulsdóttur öðlast nýtt líf á leiksviðinu í meðförum sama listræna teymis og skapaði tímamótasýninguna Vertu úlfur. Sú sýning hlaut einróma lof, sópaði að sér verðlaunum og hreif þjóðina svo mjög að hún var sýnd í þrjú leikár á Stóra sviðinu. Í þessari sýningu hafa þau Unnur Ösp og Björn Thors endaskipti á hlutverkum; nú er það Unnur sem leikur en Björn heldur um leikstjórnartaumana.
Þegar fullorðin skáldkona missir móður sína er komið að stóra uppgjörinu. Nú fyrst er hún tilbúin til þess að horfast í augu við erfiða æsku sína, föðurmissi, geðveikina, ástina og sturlað lífshlaup sitt. Af hverju náðu þessar tvær konur aldrei sambandi, þó að þær hafi deilt öllu lífi sínu, og reynt að horfast í augu í gegnum sorgir og sigra?
Nýtt leikverk byggt á rómuðum bókum Elísabetar Jökulsdóttur
Geta áföll gert okkur veik? Erfist þjáning á milli kynslóða? Verkið er áhrifarík saga af lítilli, draumlyndri stúlku sem verður að manísku skáldi, ástföngnum fíkli og stórskemmtilegum sögumanni. Hún er brotin, beitt og brjáluð. Þetta er saga af tengslum og tengslaleysi foreldra og barna, nánd og nándarleysi í veruleikafirrtum heimi sem gerir kröfur um að við pössum í fyrirframgerð mót, stöndum okkur og glönsum.
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikur einleik sem hún hefur samið upp úr Saknaðarilmi og Aprílsólarkulda, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Í vændum er áhrifamikil sýning, gædd sjónrænum töfrum, um viðkvæm en brýn málefni sem snerta okkur öll.
Leiksýningin Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar vakti mikla lukku áhorfenda síðasta vor þegar sýningin var sýnd í Tjarnarbíói. Sýningin vakti það mikla lukku að hún mun verða sýnd í Borgarleikhúsinu næstu vikurnar.
Þorleifur Aron, kallaður Doddi, fráskilinn karlmaður á fimmtugsaldri og Óli Gunnar, yngri bróðir hans hittast til að horfa á alla leiki Manchester United saman í sófanum. Leikir enska liðsins er fastinn sem gefur lífi þeirra lit en einnig sá tími sem þeir geta eytt saman og fengið frið frá amstri dagsins. Yfir leiknum fá tilfinningar þeirra lausan tauminn og í gegnum leikinn fá þeir útrás auk þess sem óhófleg drykkja þeirra er réttlætanleg.
Þennan tiltekna laugardag sem verkið gerist bregður út af vananum er Benedikt Hafberg, hinn nýji kærasti barnsmóður Dodda ásamt söngvaranum Valdimar bætast óvænt við hópinn að horfa á leikinn. Spennan innan sem utan vallar eykst sem því nemur og úr verður óútreiknanleg atburðarás sem spannar 90 mínútur. Því líkt utan vallar sem innan þá getur allt gerst í heimi knattspyrnunnar. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er sýning fyrir alla sem elska og hata fótbolta.
Verk um stórkostlegustu framkvæmd Íslandssögunnar, samband manns og náttúru, um fólk sem svimar aðeins og heldur að aðrir geti mögulega séð að það sé eitthvað tens og sé að stara á það, um fólk sem vill bara að það sé auðveldara að fara austur fyrir.
Verkið Vaðlaheiðargöng er unnið í samsköpun undir listrænni stjórn Karls Ágústs Þorbergssonar. Verkið endurspeglar þá ljóðrænu fegurð sem birtist í framkvæmdasögu Vaðlaheiðarganga, sambandi mannlegs hversdagsleika og náttúru og yfirvofandi endalokum alls í kjölfar hamfarahlýnunar.
Leikhópurinn Verkfræðingar er nýr af nálinni en meðlimir hans hafa getið sér gott orð með fjölbreyttum sýninga sviðslistahópa á borð við 16 elskenda og Sóma þjóðar.
Í samstarfi við leikhópinn Verkfræðinga.
Sýningin er styrkt af Sviðslistasjóði og Launasjóði sviðslistafólks.
Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir stendur fyrir sýningunni Á rauðu ljósi. Á rauðu ljósi er einnar konu sýning sem er blanda af uppistandi, einleik og einlægni.
Kristín Þóra fer um víðan völl í verkinu en megináhersla er á stress, streitu, seiglu, aumingjaskap og dugnað.
Gamansýning um stressið sem fylgir því að vera manneskja. Stressaðu þig upp með Stínu í Þjóðleikhúskjallaranum.
Hark er nýr íslenskur gamanrokksöngleikur fyrir fullorðna með tónlist, texta og handrit eftir Þór Breiðfjörð. Hann á sér stað á tímamótum í lífi poppstjörnunnar Jóhanns Víkings, sem má muna fífil sinn fegurri. Þar eru sambönd hans í framtíð og fortíð í brennipunkti, ekki síst fáránlega meðvirkt samband við rótara hans og allrahanda reddara, Dodda. Inn í líf þessara kyndugu risaeðla kemur rokkstjarnan Fjóla Svif með nýja strauma og viðhorf.
Þótt söngleiknum sé öðrum þræði ætlað að vera fyndin afþreying með grípandi og eftirminnilegum lögum eru líka á ferðinni dýpri skilaboð og hugleiðingar um úrelt sjónarmið, tilgang lífsins og hvernig kynslóðirnar geta sameiginlega uppfært “hugbúnaðinn” hjá sér með því að opna hjartað.
Leikstjóri og dramatúrg er Orri Huginn Ágústsson.
Tónlistarstjórn og útsetningar: Davíð Sigurgeirsson
Meðal leikara eru: Þór Breiðfjörð, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Hannes Óli Ágústsson
Verkið er styrkt af Sviðslistasjóði.
ATHUGIÐ AÐ ÖLL SVIÐSVERK ERU SÝND Í STUTTAN TÍMA Í TJARNARBÍÓ
Freyvangsleikhúsið hefur hafið æfingar á Gaukhreiðrinu eftir samnefndri bók Ken Kensey og leikgerð Dale Wasserman í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Leikverkið segir sögu indíanahöfðingjans Bromden sem hefur verið lengi á geðsjúkrahúsi í Bandaríkjunum. Bromden segir frá komu R.P. McMurphy á deildina og hvaða áhrif hann hafði á sjúklinga og starfsfólk hælisins. McMurphy hafði séð sér leik á borði og leikið sig geðveikan til þess að losna við fangelsisvist. Hann lendir þar í útistöðum við frú Ratchet forstöðukonu hælisins sem stjórnar hælinu vægast sagt með harðri hendi. Verkið lýsir á beinskeittan hátt aðstæðum og þann uppreisnaanda sem ríkti í Bandaríkjunum og víðar á 7. áratug síðustu aldar sem og þeirra meðferð sem geðsjúkir bjuggu við og hvernig litið var á geðsjúkdóma á þessum tímum. Gaukshreiðrið er hrollvekjandi ádeila á kerfið og þeim meðferðum sem beitt var en lýsir á sama tíma einstöku sambandi sjúklinganna og hvernig þeir glíma við harðræði og niðurlægingu yfirvaldsins. Leikverkið inniheldur í senn sorg, gleði, hrylling og illsku svo verið tilbúin í að taka á öllum ykkar tilfinningaskala.
Leikritið Litla skrímslið og stóra skrímslið er falleg og einlæg saga um vináttu og samskipti. Verkið er sérstaklega ætlað yngri börnum þó fullyrða megi að öll fjölskyldan muni hafa gaman að uppátækjum og hjartnæmu sambandi skrímslanna. Eins og mannfólkið eru skrímslin ólík sem stundum getur verið erfitt en smám saman læra þau að sjá kosti hvors annars og styrkja þannig vináttu sína.
Verkið um Litla skrímslið og stóra skrímslið er byggt á vinsælum bókum Áslaugar Jónsdóttur en þær hafa slegið í gegn hjá börnum frá fyrstu útgáfu árið 2004 og verið þýddar á ótal tungumál.
Þetta er í annað sinn sem leikritið um Litla skrímslið og stóra skrímslið er sýnt í atvinnuleikhúsi en verkið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2011 í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar við frábærar undirtektir.
Höfundur Áslaug Jónsdóttir Leikstjóri Jenný Lára Arnórsdóttir Leikmynd og búningar Björg Marta Gunnarsdóttir Gervi: Harpa Birgisdóttir Tónlist Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson Leikarar Margrét Sverrisdóttir og Hjalti Rúnar Jónsson Hljóð og ljós Árni F. Sigurðsson og Benni Sveinsson. Sýningastjóri Unnur Anna Árnadóttir
Armin Meiwes virðist á yfirborðinu nokkuð venjulegur maður. Hann starfar sem tölvunarfræðingur og slær garð nágranna sinna á sumrin. Armin á sér þó lítið leyndarmál og leitar að einhverjum sem getur hjálpað honum að láta draum sinn rætast: Að éta aðra manneskju.
Í ársbyrjun 2001 kemst hann í samband við Bernd-Jürgen, ungan verkfræðing frá Berlín. Eftir nokkurra mánaða spjall ákveða þeir að hittast. Bernd-Jürgen á sér nefnilega líka eina ósk. Hann vill vera étinn af annari manneskju.
Kannibalen er í senn harmræn ástarsaga og óþægileg hrollvekja, einstakt leikrit um dýpstu kima manneskjunnar. Verkið var frumflutt árið 2022 í Det Kongelige Teater og í kjölfarið valið leikrit ársins á dönsku sviðslistaverðlaununum.
Varúð: Í sýningunni er fjallað um gróft ofbeldi.
Höfundur: Johannes Lilleøre
Leikstjórn: Adolf Smári Unnarsson
Leikarar: Fjölnir Gíslason og Jökull Smári Jakobsson
Ljósahönnun og tæknilegar útfærslur: Magnús Thorlacius.
Tónlist: Ronja Jóhannsdóttir.
Þýðing: Adolf Smári Unnarsson og Júlía Gunnarsdóttir
Ljósmyndir og plakat: Hörður Sveinsson
Grafísk hönnun: Einar Hrafn Stefánsson
ATHUGIÐ AÐ ÖLL SVIÐSVERK ERU SÝND Í STUTTAN TÍMA Í TJARNARBÍÓ