2022 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Leikkonan og fíflið

    jún 5, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Listahópurinn Kvistur hefur sent frá sér nýtt hlaðvarpsleikrit.

    Listahópurinn Kvistur sendir frá sér fjórða leikritið í röð hlaðvarpsleikrita en hópurinn hóf að gera hlaðvarpsleikrit á sínum tíma í samkomubanni vegna heimsfaraldurs. Leikritið er eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttir og var skrifað árið 2016 og vann þá meðal annars örleikrita samkeppni Uppsprettunnar. Leikkonan og fíflið fjallar um stöðu leikhússins sem samfélagsrýnis en í gegnum samræður leikkonunnar við fíflið er snert á sögu leikhússins og velt upp spurningum um hlutverk leikarans og áhorfandans.

    Leikarar eru Gunnar Jónsson og Eyrún Ósk Jónsdóttir en Óskar Harðarson  sér um tónlist og hljóðmynd.

    Verkið er styrkt af Menningarnefnd Hafnarfjarðar

    Heimsþing samtaka um leikhúsrannsóknir haldið á íslandi

    maí 21, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Í júní heldur Hugvísindasvið HÍ ráðstefnu um leikhús- og sviðslistarannsóknir. Yfirskrift ráðstefnunnar er Shifting Centres – In the middle of nowhere. Ráðstefnan er á vegum International Federation for Theatre Research, en hún er haldin árlega. Ráðstefnan fer fram á ensku. Heimsþingið hér á Íslandi hefur verið í undirbúningi í nokkur ár, að frumkvæði nokkurra íslensku leikhúsfræðinganna Magnúsar Þórs Þorbergssonar og Sigríðar Láru Sigurjónsdóttur. Í fyrra var ráðstefnan haldin á Írlandi, en þurfti að fara fram í gegnum fjarfundabúnað. Síðasta staðarráðstefna IFTR var í Shanghai í Kína árið 2019. Ráðstefnan hér verður svokallað heimsþing, eða World congress, en ráðstefnurnar kallast það þegar aðalfundur samtakanna er haldinn, á fjögurra ára fresti.
    Á ráðstefnunni verða um 800 erindi og tekur hún heila vinnuviku, mánudag 20. til föstudags 24. júní. Þrír aðalfyrirlestrar ráðstefnunnar verða haldnir í Háskólabíó sem og aðalfundur IFTR. Innan samtakanna eru einnig starfandi 22 rannsóknarhópar (Working groups) sem lúta að ýmsum sviðum leiklistar og/eða sviðslista og eiga fundir þeirra sinn stað innan ráðstefnunnar. Málstofur rannsóknarhópa eru opnar nema annað sé tekið sérstaklega fram. Einnig eru sérstakar málstofur fyrir New Scholars, sem eru sérstaklega ætlaðar fólki í masters- eða doktorsnámi í faginu. Auk þess verða almennar málstofur, eða General Panels.

    Í tengslum við ráðstefnuna verða nokkrir útgefendur fagrita með sölusýningu á nýjum og nýlegum ritum í Bóksölu Stúdenta.

    Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram sem sjálfboðaliða einhvern hluta vikunnar geta fengið ráðstefnugjaldið niðurfellt.
    Sjálfboðaliðar sjá m.a. um tæknilega aðstoð í stofum, vísa fólki til vegar og fleira tilfallandi.

    Sumar- og Söguleikhús Kómedíuleikhússins

    maí 20, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Sumarleikhús Kómedíuleikhússins í Haukadal Dýrafirði hefst 15. júní

    Sumarleikhús Kómedíuleikhússins í Haukadal Dýrafirði er orðið fastur liður í hinu vestfirska sumri. Sumarsýning ársins er, Listamaðurinn, og verður frumsýnd miðvikudaginn 15. júní. Sýningin verður síðan á fjölunum vikulega eftir það í Haukadalnum og ávallt á miðvikudögum. Miðasölusími Kómedíuleikhússins er 891 7025. Kómedíuleikhúsið í Haukadal er aðeins steinsnar frá þorpinu Þingeyri.

    Listamaðurinn er áhrifamikil leiksýning um Samúel Jónsson í Selárdal sem kallaður var, Listamaðurinn með barnshjartað. Listamaðurinn skapaði sína eigin listaveröld í Selárdal sem skákar öllum Disney löndum. Það er Elfar Logi Hannesson sem bregður sér í hlutverk Listamannsins og er hann einnig höfundur leiksins. Leikstjóri er Marsibil G. Kristjánsdóttir.

    Samúel Jónsson í Selárdal var kallaður Listamaðurinn með barnshjartað.

    Það verður einnig talsvert um gestakomur í Sumarleikhúsi Kómedíuleikhússins. Fyrsta gestasýningin í sumar er einleikurinn, Stelpur og strákar, eftir Dennis Kelly með Björk Guðmundsdóttur. Leikurinn verður sýndur föstudaginn 3. júní og er miðasala þegar hafin. Fleiri gestir eru væntanlegir og því um að gera að fylgjast vel með Kómedíuleikhúsinu í Haukadal í sumar.

    Nansen á Þingeyri

    Kómedíuleikhúsið er einnig að bæta við sig leikhúsi í sumar. Þar er um að ræða sérstakt Söguleikhús Kómedíuleikhússins sem er til húsa í Salthúsinu á Þingeyri. Söguleiksýning ársins er, Nansen á Þingeyri, og verður frumsýnd þriðjudaginn 21. júní í Salthúsinu. Sýningin verður síðan á fjölunum vikulega eftir það og ávallt á þriðjudögum. Miðasölusíminn sá sami 891 7025 og rétt er að geta þess að Salthúsið er staðsett í hjarta þorpsins Þingeyri.

    Friðþjófur Nansen gerði sér ferð á Þingeyri

    Söguleikurinn, Nansen á Þingeyri, segir af einni eftirminnilegustu heimsókn í sögu þorpsins Þingeyri. En það er án efa þegar landkönnuðurinn norski Friðþjófur Nansen dvaldi á eyrinni um tveggja vikna skeið áður en hann lagði í sína fræknu för á Grænlandsjökul. Elfar Logi Hannesson er bæði leikari og höfundur leiksins, búningahönnuður er Þ. Sunneva Elfarsdóttir og leikstjórn annast Marsibil G. Kristjánsdóttir.

    Nú er ekkert annað gera en að skella sér vestur í sumar og njóta leikhússins vestfirska.

    Samlestur – nýtt leikhúshlaðvarp

    maí 19, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Samlestur er nýtt hlaðvarp,  skemmtiþáttur þar sem stjórnendur elta uppi sköpunarglatt fólk úr áhugaleikfélögum landsins.
    Viktor Ingi Jónsson og Lilja Guðmundsdóttir sem stýra þættinum, setjast niður í hverri viku með „… sturluðum leikstjórum, fárveikum leikhúsbakteríusjúklingum, geggjuðum leikurum, brjálæðislega skapandi höfundum og öllu klikkaða liðinu á bakvið tjöldin“ eins og segir í fréttatilkynningu.
    Markmið með hlaðvarpinu er að búa til vettvang fyrir listamenn og félög/hópa af öllum toga til að koma verkum sínum á framfæri, vekja athygli á áhugaleikfélögunum og samfélaginu sem þau hafa að geyma og sýna hversu mikilvægt þetta samfélag er fyrir svo marga. Stjórnendur stenfa að því að gefa út 6 þætti á mánuði. Annan hvern föstudag koma út opnir þættir, þ.e.a.s. þættir sem eru aðgengilegir án endurgjalds á öllum helstu streymisveitum. Einnig er boðið upp á vikulega þætti sem eru í áskrift. Innifalið í áskriftinni er nýr þáttur alla miðvikudaga og allskonar aukaefni.

    Eins og aðstandendur segja sjálfir:
    „Við ætlum að setja okkur allskonar markmið og prófa hluti sem við höfum aldrei gert áður og kannski hræðumst. Með því að velja áskriftarleiðina þá fáið þið tækifæri til að fylgjast með því ferli. Sjáum hversu langt við þorum að stíga út fyrir þægindarammann.
    Til þess að við getum haldið áfram að breiða út boðskapinn um mikilvægi áhugaleikfélaganna þá hvetjum við fólk til að styrkja okkur með því að tryggja sér áskrift inn á pardus.is/samlestur – þar er hægt að hlusta á allt efni sem við gefum út og þú þarft ekki neitt app. Þú getur spilað beint úr vafra. Áskriftin kostar ekki nema 990 kr.“

    Lilja og Viktor auglýsa einnig eftir efni frá leikfélögunum:
    „Við viljum endilega fá að heyra hvað sé í gangi hjá ykkar leikfélagi. Þannig ef þið hafið áhuga á að koma í spjall og segja okkur frá því sem er í gangi eða er framundan. þá hvetjum við ykkur til að hafa samband.
    Vid erum líka að skoða þá hugmynd að setja upptökugræjurnar í tösku, leggja land undir fót og keyra út á land til að heimsækja leikhúsin og fá að sjá hvað er verið að bralla og taka upp þættina í leiðinni.“

    Hægt er að hafa samband við þau á netfanginu samlestur@gmail.com.
    Einnig er hægt að fylggjast með á samfélagsmiðlum.
    Facebook: https://www.facebook.com/leikhusvarpsamlestur
    INSTA: @samlestur / https://www.instagram.com/samlestur/

    Taylor Mac

    maí 18, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Lifandi goðsögn í Þjóðleikhúsinu

    Opnunarsýning Listahátíðar í Reykjavík 2022

    Á undanförnum tveimur áratugum hefur Taylor Mac skapað sýningar sem í senn ögra og fagna fjölbreytileika mannlífsins, og hafa hlotið alþjóðleg verðlaun.

    Í sýningunni A 24-Decade History of Popular Music fer Mac yfir sögu Bandaríkjanna frá stofnun þeirra árið 1776 frá persónulegu og óvenjulegu sjónarhorni. Verkið var mörg ár í vinnslu og var upprunalega sýnt sem stakur 24 klukkutíma viðburður. Sýningin var valin á lista New York Times yfir bestu sviðslistaviðburði, bestu leiksýningar og bestu tónlist ársins 2016, og árið 2020 hlaut Taylor Mac Ibsenverðlaunin fyrir verkið.

    Hér má sjá umfjöllun um sýninguna

    Fyrir fyrstu sýningu sína í Reykjavík hefur þessi margverðlaunaða sviðslistamanneskja sett saman brjálæðislega skemmtilega dagskrá, þar sem svið og salur eru eitt, og blandað er saman tónlist úr verkinu A 24-Decade og nýjum lögum. Á sviðinu með Mac verða Matt Ray, tónlistarstjóri og útsetjari, og Machine Dazzle, búningahönnuður og flytjandi, ásamt frábærri hljómsveit.

    Útlendingurinn snýr aftur

    maí 18, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Leysir Friðgeir fimmtugt morðmál?

    Útlendingurinn – morðgáta fékk mikið lof leikhúsgesta og gagnrýnenda á síðasta leikári en hætta þurfti sýningum fyrr en áætlað var vegna samkomutakmarkana. Verkið snýr nú aftur en athugið að takmarkaður sýningarfjöldi er í boði svo tryggið ykkur miða fljótt.

    Árið 1970 fannst kvenmannslík í Ísdal rétt fyrir utan Bergen í Noregi. Konan var alls ekki búin til útivistar og í farangri hennar fundust meðal annars hárkollur og ýmis dulargervi. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að hún hafði ferðast vítt og breytt um Evrópu á fölsuðum skilríkjum, en hvorki tókst að upplýsa hver hún var, hvaðan hún kom né hvað í ósköpunum hún var að gera í Bergen.

    Í gegnum tíðina hefur líkfundurinn vakið bæði forvitni og umtal í Noregi og um heim allan, en þrátt fyrir ótal kenningar hefur engum tekist að leiða til lykta hvað gerðist djúpt inni í Ísdal og hvað dró þessa útlensku konu til dauða. En það gæti breyst þegar annar útlendingur fer að grafast fyrir um málið.

    Þegar íslenskur sviðslistamaður, Friðgeir Einarsson, flytur til Bergen, lætur hann heillast af ráðgátunni og gerir sitt besta til að upplýsa hana. En kannski ekki á þann hátt sem búast hefði mátt við. Friðgeir er hvorki lögreglumaður, né með reynslu af rannsóknarstörfum, en telur sig hafa ákveðna innsýn inn í hugsunarhátt konunnar. Hann er jú aðkomumaður, rétt eins og hún var. Útlendingurinn er skandinavískt raunsæisglæpadrama þar sem mál „Ísdalskonunnar“ er nálgast á frumlegan hátt og nýjar kenningar dregnar fram í dagsljósið. Annað verkið frá sama listræna teymi og setti upp verðlaunasýninguna Club Romantica, en það var fyrsti hluti þessa ráðgátuþríleiks. Tónlist verksins er samin af Snorra Helgasyni og flutt á sviðinu af honum sjálfum.

    Tjarnarbíó býður fjölskyldum í leikhús

    maí 10, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Tjarnarbíó býður á sýninguna Áiii! Smá plástra-drama helgina 14.-15. maí

    Hvað gerum við þegar líkaminn meiðir sig? Hvernig lögum við hann? Heimurinn er stútfullur af hættum; tröppum, skærum, hákörlum og rafmagnsinnstungum og þá er mikilvægt að gæta að sér.

    Dans-leikverkið er 30 mínútur að lengd. Það inniber húmor, smá blóð og þónokkra plástra og er skapað fyrir 3-6 ára aldur. Verkið er heilandi ferðalag og kennir okkur hvernig við getum fengið plástra ef við lærum að segja frá sárunum okkar.

    Helgina 14. og 15. maí kemur sænski leikhópurinn Martin Mutter til okkar í heimsókn með sýninguna Áiii! Smá plástra-drama. Leikhópurinn nýtur mikilla vinsælda í heimalandi sínu og hefur ferðast vítt og breitt með fyndin og fræðandi barnaverk sín. Hópurinn lætur nú draum sinn rætast með ferðalagi til Íslands og af því tilefni vill Tjarnarbíó bjóða gestum frítt á þessa skemmtilegu barnasýningu. Sýningin er án orða og hentar því öllum óháð tungumáli. Í sýningunni nota leikararnir sviðshreyfingar, dans og trúðaleik til að kenna börnum að gæta sín á hættulegum hlutum en líka hvað líkaminn sé góður í að laga sig, sérstaklega þegar hann fær hjálp, eins og t.d. með plástrum.

    Gríptu tækifærið og komdu með börnin í leikhús, alveg ókeypis.

    ROOM 4.1 LIVE

    apr 29, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    ROOM 4.1 LIVE er ótrúleg leikhúsupplifun

    Vincent hefur fengið nóg af áreiti hversdagsins og lætur leggja sig inn á sjúkrahús í von um langþráðan frið. Friðurinn er þó víðs fjarri þar sem læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir sjúklingar, hver öðrum sérstakari, vaða inn og út úr sjúkrastofunni. Erillinn í lífi Vincents er meiri en nokkru sinni fyrr. Í sýningu Borgarleikhússins er áhorfendum boðið á tökustað þar sem verið er að taka upp þætti um Vincent og upptökunum er varpað á stóra skjái. Þar má sjá hvernig brögðum og brellum er beitt þegar sviðsmyndinni/ sjúkrastofunni, er snúið á alla kanta til að framkalla trylltar hugmyndir leikstjórans. Á sama tíma fara undarlegir hlutir að gerast á tökustað, hugmyndir fá vængi og fara á stjórnlaust flug.

    Áhorfendur dragast hægt og rólega inn í sjálfa atburðarásina. Við lofum ótrúlegri leikhúsupplifun — þetta hafið þið aldrei séð áður. ROOM 4.1 LIVE var tilnefnt til Reumert-verðlaunanna, sviðslistaverðlauna Danmerkur. Árið 2012 sýndi Borgarleikhúsið stjörnusýningu Kristjáns, BLAM!, við miklar vinsældir. BLAM! var heiðruð með Reumert-verðlaununum árið 2012 og Grímunni árið 2013.

    Ó María í Mosfellsbæ

    apr 29, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Kvöldskemmtun til heiðurs Maríu Guðmundsdóttur

    Ó María er kvöldskemmtun í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ til heiðurs Maríu Guðmundsdóttur þar sem lifandi tónlist, söngur, grín og gleði ráða för. Leiknir eru nokkrir af ógleymanlegu leikþáttum Maríu og skemmtileg kaffihúsastemming ríkir í salnum þar sem leikhúsgestir sitja til borðs á sviðinu. Þetta er frábær skemmtun í anda okkar yndislegu Maríu sem hentar öllum sem vilja hlæja, hlusta á ljúfa tóna og eiga góða kvöldstund.

    Frumsýning föstudaginn 29. apríl kl. 20 – UPPSELT
    2. sýning laugardaginn 30. apríl kl. 20
    3. sýning föstudaginn 6. maí kl. 20
    4. sýning laugardaginn 7. maí kl. 20
    5. sýning föstudaginn 13. maí kl. 20

    Miðaverð: 3500 krónur
    Miðasala í síma 566-7788

    Nei ráðherra á Sauðárkróki

    apr 21, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Nei ráðherra 24. apríl

    Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir sunnudaginn 24. apríl klukkan 20:00 leikritið  Nei ráðherra eftir Ray Cooney í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri er Jóel Sæmundsson.  

    Alls koma 35 manns að sýningunni þar af eru 10 á sviði.  leikarahópurinn er blandaður af bæði reynsluboltum  og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviðinu.

    Nei ráðherra  er allt í senn sigildur, hraður, snúinn og fyndinn gamanleikur en samt fullur að misskilningi, framhjáhöldum, ást og hurðaskellum.

    Æfingatímabilið hefur gengið vel og það er ótrúlegt þakklæti að ekki séu ýmis boð og bönn í gildi eins og var þegar Covid var.

    Sýningar verðar 13 talsins og miðasala er hafin í  síma 8499434.

    Hvetjum alla til að byrja sumarið á því að mæta í leikhús og hlægja svolítið saman.

    Síður:«12345678»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!