2021 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Gosi Snýr aftur í Borgarleikhúsið

    apr 30, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    „Gosi er allt í senn falleg, fyndin og töfrandi sýning sem enginn leikhúsunnandi ætti að láta framhjá sér fara.“

    Trésmiðurinn Jafet kemst yfir talandi viðardrumb og fær þá hugmynd að smíða úr honum brúðu. Til verður spýtustrákurinn Gosi; forvitinn prakkari sem á erfitt með að feta hinn rétta veg. Í stað þess að hlýða föður sínum heldur hann á vit vafasamra ævintýra, kynnist talandi kribbu sem reynir að koma fyrir hann vitinu, lætur undirförulan kött og ref snúa á sig og þarf að ganga í gegnum alls konar hremmingar áður en hann kemst til þroska með dyggri hjálp bláhærðu dísarinnar.

    Leikarar og tónlistarmenn sýna okkur þetta sígilda og ástsæla ævintýri um spýtustrákinn í nýjum og litríkum búningi. Leikstjóri sýningarinnar, Ágústa Skúladóttir, hefur leikstýrt fjölda barna og fjölskyldusýninga sem ávallt hafa notið mikilla vinsælda.

    Boðið er upp á alla sunnudaga að hafa sýninguna textaða á ensku, íslensku og pólsku. Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu standa til boða að sækja smáforrit fyrir snjallsíma og valið á milli þess að fylgjast með textanum á meðan á sýningu stendur.

    Sýningin hlaut Grímuverðlaun fyrir barnasýningu ársins á Grímuverðlaunahátíðinni 2020.

    TILKYNNING FRÁ LEIKHÓPNUM LOTTU

    apr 26, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Söngvasyrpan Litla Gula Hænan ferðast um landið í sumar

    Kæru vinir, fylgjendur og allir sem bíða spenntir eftir upplýsingum frá Leikhópnum Lottu um sumarið 2021. 

    Á þessum fordæmalausu tímum höfum við öll þurft að hugsa út fyrir kassann og haga lífi okkar í samræmi við þær reglur sem gilda á hverjum tíma. 

    Við í Leikhópnum Lottu leggjum mikið upp úr því að framleiða og setja upp vandaðar sýningar og skemmtiatriði sem henta við öll tækifæri. Sýningar sem við ferðumst með um allt land, allt árið um kring. Covid hefur sett stórt strik í reikninginn hjá okkur síðasta árið, eins og hjá flestum öðrum, og mun því miður halda áfram að gera það eitthvað lengur.

    Í vetur neyddumst við til að fella niður okkar árlegu vetrarsýningu sem stefnt var á að sýna í Tjarnarbíói og ferðast með um landið. Sýningin um Mjallhvíti og dvergana sjö hefði orðið fjórða vetrarsýning Lottu en á veturna höfum við gert það að hefð að endurgera eldri sumarsýningarnar okkar 10 árum seinna og klætt þær í glænýjan búning innandyra. Covid hefur ákveðið að fresta þessum áformum okkar og stefnir allt í að Mjallhvít fari á fjalirnar í janúar 2022, 11 árum eftir að við frumsýndum hana fyrst. 

    Við höfum einnig þurft að taka aðra erfiða ákvörðun varðandi sumarið. Með sorg í hjarta neyðumst við til að tilkynna að í sumar munum við ekki setja upp nýja sýningu eins og við höfum gert með stolti síðastliðin 14 ár.  Ákvörðunin var tekin fyrst og fremst til að vernda Lottuna okkar og passa að hún fari hreinlega ekki á hausinn sökum kostnaðar við uppsetningu og óvissu með leyfi til sýninga og fjöldatakmarkanir sökum Covid.

    Sannleikurinn er sá að kostnaðurinn við sýningu af þessari stærðargráðu er gríðarlega hár.  Handrit, lagasmíð, söngtextar, leikstjórn, leikarar, tónlistarupptaka, danshöfundur, búningahönnuður, ljósmyndir, auglýsingar, grafík, leikmynd, leikmunir, gisting, bíll, kerra og svo mætti lengi telja. Á hverju ári tökum við áhættu á þessum kostnaðarliðum öllum og vinnum hörðum höndum að því að ná þeim kostnaði inn yfir sumarið með seldum sýningum, ferðastyrkjum og miðasölu.

    Þegar fyrsta samkomubannið var sett á síðasta vetur vorum við á sýningarferðalagi með Hans klaufa, vetrarsýninguna okkar 2020. Vegna sóttvarnaraðgerða þurftum við að fella niður fjölda sýninga og hætta sýningum á verkinu mun fyrr en áætlað var. Stór hluti af innkomu sýningarinnar fór því út um gluggann og varð Lotta fyrir miklu fjárhagslegu tapi vegna þess.

    Við héldum þó bjartsýn af stað inn í síðasta sumar og gerðum það algjörlega með trompi. Bakkabræður sumarið 2020 var frábær sýning sem við erum mjög stolt af og hlaut hún mikið lof áhorfenda. Við nutum þess virkilega að sýna sýninguna um allt land, finna upp ýmsar lausnir til að geta fylgt öllum sóttvarnarreglum til hins ýtrasta og geta boðið upp á frábæra leikhúsupplifun á slíkum tímum. En þó sumarið hafi verið algjörlega dásamlegt fengum við helmingi færri áhorfendur en á venjulegu sumri og verður að viðurkennast að Lotta hefði líklega farið á hausinn í haust ef ekki hefði verið fyrir verkefnastyrk sem við hlutum en hann rétt hélt verkefninu á floti. Þrátt fyrir styrkinn kom Lottan okkar virkilega illa út úr sumrinu og árinu öllu. Þess má geta að engin úrræði stjórnvalda (lokunarstyrkir, hlutabótaleiðin…) hafa verið í boði fyrir félög eins og Lottu og engir styrkir verið veittir fyrir verkefni og vinnu sem þegar hefur verið unnin að fullu en ekki hefur verið hægt að sýna áhorfendum. Styrkirnir sem hafa verið veittir til leikfélaga eru fyrir nýjar sýningar sem á eftir að setja upp dekka nýjan kostnað en ekki skuldir sem hafa orðið til vegna Covid 19.

    Þegar kom í ljós við veitingu listamannalauna og verkefnastyrkja fyrir árið 2021 að Lotta fengi enga úthlutun fyrir sumarið hreinlega neyddumst við til þess að taka þá mjög erfiðu ákvörðun að fara ekki af stað í nýja sumarsýningu eins og við höfum gert síðastliðin 14 ár. Okkur þykir það svakalega sárt, en við ráðum víst lítið við ástandið og þessar aðstæður sem við erum öll í. Þetta sumar hefði verið 15. starfssumar Leikhópsins Lottu, en 15. sumarsýningin verður að bíða betri tíma.

    SITJUM EKKI AÐGERÐALAUS

    Við munum þó aldeilis ekki sitja aðgerðalaus í sumar.  Það verður annar bragur á okkur þetta árið en við stefnum á að ferðast um landið allt og heimsækja alla sem við mögulega getum. 

    ÞAÐ SEM VERÐUR Í BOÐI Í SUMAR

    Pínu litla gula hænan – söngvasyrpa
    Í sumar ferðumst við um allt land með skemmtilegt atriði unnið upp úr Litlu gulu hænunni, verki sem við sýndum árið 2015. Atriðið verður um 25 mínútur að lengd, stútfullt af söng, sprelli og fjöri fyrir allan aldur. Fjórir þekktir Lottu leikarar mæta á svæðið með frábært skemmtiatriði sem hentar vel við öll tækifæri. 

    Pínu litla gula hænan – söngvasyrpa verður eingöngu í boði fyrir þá sem kaupa hana í heilu lagi og þó einstaklingar og fjölskyldur landsins geti ekki tryggt sér miða á glænýjan íslenskan Lottusöngleik þetta árið – þá er möguleiki fyrir bæjarfélög, hátíðir, fyrirtæki, hópa, skóla, leikskóla, frístundaheimili og bara hvern sem er að bóka Pínu litlu gulu hænuna og bjóða uppá, að sjálfsögðu miðað við þær samkomutakmarkanir sem eru í gildi hverju sinni.

    Við mætum þá á svæðið með frábært atriði sem auðvelt er að laga að hvaða aðstæðum sem er! Sýninguna er hægt að setja upp utandyra sem er einstaklega sóttvarnavænt en svo er lítið mál að færa hænuna inn á þeim stöðum sem það hentar betur. Við höldum fjarlægð við áhorfendur, mætum sprittuð frá toppi til táar, bjóðum upp á wi-five í stað high five, myndir með fjarlægð í stað knúsa og að sjálfsögðu risastórt bros á vör!

    Hlökkum til að sjá sem flesta í sumar!

    Kveðja Leikhópurinn Lotta.

    Leikfélag Sólheima sýnir Árar, Álfar og Tröll!

    apr 21, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Árar, Álfar og Tröll verður frumsýnt sumardaginn fyrsta hjá leikfélagi Sólheima.

    Frumsýning á Árar, Álfar og Tröll verður í Sólheimaleikhúsinu á sumardaginn fyrsta, þann 22. apríl og verða 5 sýningar talsins.

    Verkið er ævintýri sem fjallar um baráttukonuna Sesselju sem á sér þann draum að opna barnaheimili þar sem allir geta lifað í sátt og samlyndi en þarf til þess fyrst að takast á við konungsríkið og alls kyns verur, svo sem tröll og álfa.

    Verkið er skrifað af Hannesi Blandon og Guðmundi Lúðvík Þorvaldssyni en Lárus Sigurðsson gerði tónlistina. Guðmundur leikstýrir einnig verkinu. Leikfélag Sólheima var stofnað 1931 og á því 90 ára afmæli í ár. Leikfélagið frumsýnir alla jafna alltaf á sumardaginn fyrsta en engin sýning var árið 2020 vegna heimsfaraldursins, það er því sérstök eftirvænting í ár að sjá leikrit aftur á Sólheimum.

    Sýningardagar:
    Fimmtud. 22. apríl kl 14:00 – Frumsýning
    Laugard. 24. apríl kl 14:00
    Sunnud. 25. apríl kl 14:00
    Laugard. 1. maí kl 14:00
    Sunnud. 2. maí kl 14:00
    Miðasala fer eingöngu fram í vefverslun Sólheima en nánari upplýsingar og fyrirspurnir eru í síma 847-5323.

    ATH: Ef sýning fellur niður eða samkomutakmarkanir breytast eitthvað munum við bjóða upp á annan sýningartíma eða endurgreiðslu

    Sýningar hefjast á nýjan leik í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu

    apr 16, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Í ljósi nýrra tilslakana á sóttvarnarreglum munu sýningar hefjast að nýju á næstu dögum. Það er stöðugt verið að endurmeta stöðuna og allir miðaeigendur verða upplýstir um leið og nýjar ákvarðanir verða teknar.

    Þjóðleikhúsið

    • Nashyrningarnir – Frumsýningar verða tvær. Sú fyrri verður sumardaginn fyrsta, 22. apríl og sú seinni 23. apríl. Allir sýningardagar færast til og miðaeigendur fá nýja miða senda í tölvupósti.
    • Vertu úlfur – sýningar hefjast á nýjan leik 17. apríl. Allir sýningardagar færast til og miðaeigendur fá nýja miða senda í tölvupósti.
    • Kardemommubærinn – því miður verður ekki hægt að hefja sýningar á Kardemommubænumn að sinni en von er á nýjum upplýsingum í byrjun maí.
    • Kópavogskrónika – sýningar hefjast á nýjan leik 30. apríl. Allir sýningardagar færast til og miðaeigendur fá nýja miða senda í tölvupósti.
    • Kafbátur – sýningar hefjast á nýjan leik 24. apríl. Allir sýningardagar færast til og miðaeigendur fá nýja miða senda í tölvupósti.

    Borgarleikhúsið

    Gildandi sóttvarnarreglur og óvissa um framhaldið setja okkur enn nokkrar skorður. Óvissan gerir það að verkum að við getum sýnt minni sýningar en þær sem stærri eru og með fleiri þátttakendum verða enn að bíða. Gosi heldur áfram á Stóra sviðinu og síðustu sýningar verða á Sölumaður deyr og Oleanna. Stefnt er að frumsýna svo Veislu í maí! Í ljósi aðstæðna hefur ákvörðun verið tekin um að risa bomban okkar Níu líf kemur aftur á svið á afmæli Reykjavíkurborgar 18. ágúst.

    Benedikt búálfur

    mar 24, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Benedikt búálfur og félagar verða á Akureyri á næstunni

    Leikfélag Akureyrar, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, setur á svið hinn ævintýralega og vinsæla fjölskyldusöngleik Benedikt búálf eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson í Samkomuhúsinu. Söngleikurinn, sem var frumsýndur árið 2002, er einn allra þekktasti barnasöngleikur þjóðarinnar og hefur töfrandi saga og grípandi tónlist Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar unnið hug og hjörtu íslenskra barna á öllum aldri.

    Benedikt búálfur er byggður á samnefndum bókum eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson og fjallar um vinina Benedikt búálf og Dídí mannabarn og ferðalag þeirra um Álfheima. Tóta tannálfi hefur verið rænt og allur Álfheimur er í hættu. Vinirnir leggja af stað og á leiðinni lenda þau í ýmsum ævintýrum og ásamt dreka, blómálfum og alls konar furðuverum hjálpast þau að við að bjarga Álfheimum.

    Með hlutverk Benedikts fer Árni Beinteinn Árnason en aðrir leikarar eru Björgvin Franz Gíslason, Valgerður Guðnadóttir, Króli, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson og Birna Pétursdóttir.

    KOK – Óperudagar

    mar 23, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Ljóða- og myndlistarbókin KOK eftir Kristínu Eiríksdóttur fer nú á svið Borgarleikhússins

    «ég var að leika mann
    þess vegna brá þér
    vegna þess að ég stóð upp
    alltíeinu
    kveikti eld
    þess vegna brá þér»

    Ljóða- og myndlistarbókin KOK eftir Kristínu Eiríksdóttur öðlast nýtt líf sem tónlistar- og leikhúsupplifun á fjölum Borgarleikhússins.

    KOK vakti verðskuldaða athygli þegar hún kom út árið 2014 og var m.a. tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Ljóð Kristínar fjalla á óvenjulega beinskeyttan hátt um samband og sambandsleysi, ást og andúð, þrá og skeytingarleysi þar sem mannlegt eðli er afhjúpað í öllum sínum dýrlega breyskleika.

    Í bókinni mynda ljóðin og myndlistin eina heild og í sviðsverkinu er báðum þessum þáttum gert jafnhátt undir höfði og þeir fléttaðir saman við tónlistina og leikhústöfrana. Nútímaóperan KOK er flutt af Hönnu Dóru Sturludóttur, sem um árabil hefur verið meðal fremstu söngvara þjóðarinnar, Unu Sveinbjarnardóttur, fiðluleikara og Katie Buckley, hörpuleikara.

    Verkið er sett upp í tengslum við tónlistarhátíðina Óperudaga, í samvinnu við leikhópinn Svartan jakka, en hann skipa auk Kristínar þær Þórunn Gréta Sigurðardóttir, tónskáld, og leikstjórinn Kolfinna Nikulásdóttir. Áður hafa þær unnið saman að útvarpsverkinu Fákafen sem hlaut Grímuverðlaunin 2018.

    Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg og Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

    Nashyrningarnir í Þjóðleikhúsinu

    mar 18, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Nashyrningarnir í leikstjórn Benedikts Erlingssonar verða frumsýndir á Stóra sviði Þjóðleikhússins 26. mars
    • Eitt frægasta verk hins heimsþekkta fransk-rúmenska leikskálds Ionescos
    • Stór hópur leikara tekur þátt í sýningunn: Gói, Hilmir Snær, Ilmur Kristjáns og Arnmundur Backman í aðalhlutverkum.
    • Kötturinn Rúfus í sinni fyrstu burðarrullu í Þjóðleikhúsinu

    Hversdagslegt lífið í litlum bæ umturnast þegar íbúarnir taka að breytast í nashyrninga, hver af öðrum. Allir nema hlédrægur skrifstofumaður sem er gagnrýndur af vinnufélögunum fyrir óstundvísi, óreglu og frjálslegt líferni. Hvers vegna er það einmitt bara hann sem reynir að spyrna við fótum og halda í mennskuna?

    Áhorfendum verður nú boðið upp á nýja, ferska og fjöruga útfærslu Benedikts Erlingssonar og leikhópsins á þessu skemmtilega leikriti. Nashyrningarnir fóru eins og eldur í sinu um leikhús í Evrópu strax eftir að leikritið var frumflutt árið 1959, og var verkið leikið í Þjóðleikhúsinu strax árið 1961. Verkið er sett upp reglulega víða um heim enda spyr það enn áleitinna og ögrandi spurninga.

    Jaðarhugmynd verður að stórri hugmynd
    Benedikt Erlingsson hefur á undanförnum árum sett upp margar einstaklega eftirminnilegar sýningar og hlotið ótal verðlaun fyrir verk sín. Meðal ástsælla sýninga sem hann hefur staðið að eru Ormstunga, Jeppi á fjalli, Íslandsklukkan, Húsið, Súper og Jesú litli. Auk þess sem hann hefur verið atkvæðamikill sem kvikmyndaleikstjóri. Eftir hann liggja myndir eins og Hross í oss og Kona fer í stríð sem bera höfundareinkennum hans fagurt vitni.

    „Á leiksviðinu sem stundum hefur verið kallað vígvöllur hugmynda og hugsjóna setjum við upp leikrit um hvernig lítil hugmynd verður að stórri hugmynd sem umbreytir heilu samfélagi. Hvernig jaðarhugmynd smitast sem vírus og verður að lokum að meginhugsjón heillar þjóðar. Eitthvað sem i raun og veru er alltaf að gerast á hverjum degi. Alls staðar.” segir Benedikt.

    Leikarar
    Arnmundur Ernst Backman, Guðjón Davíð Karlsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ilmur Kristjánsdóttir, Pálmi Gestsson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Örn Árnason, Flemming Viðar Valmundsson og kötturinn Rúfus.

    Kötturinn Rúfus stígur í fyrsta sinn á svið í Þjóðleikhúsinu. Hann fer með hlutverk Mússa.

    Listrænir stjórnendur
    Leikstjórn
    Benedikt Erlingsson
    Leikmynd
    Börkur Jónsson
    Búningar
    Filippía I. Elísdóttir
    Lýsing
    Björn Bergsteinn Guðmundsson
    Tónlist
    Davíð Þór Jónsson
    Hljóðhönnun
    Kristján Sigmundur Einarsson
    Þýðandi
    Guðrún Vilmundardóttir

    Níu líf snýr aftur í Borgarleikhúsið

    mar 18, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Valur Freyr Einarsson er einn hinna Níu bubba.

    Söng­leik­ur­inn Níu líf sem fjall­ar um líf Bubba Mort­hens fer aft­ur á svið í Borg­ar­leik­hús­inu þann 10. apríl. Rúmlega ár er liðið frá frumsýningu söngleiks­ins og eru leik­ar­ar nú mætt­ir aft­ur í leikhúsið til að æfa upp verkið.

    Aðeins náðust þrjár sýningar áður en heims­far­ald­ur­inn skall á. Rúm­lega 16 þúsund leik­hús­gest­ir hafa nú þegar tryggt sér miða á sýn­ing­una að því fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu frá Borg­ar­leik­hús­inu. Það er því mikil eftirvænting hjá landanum eftir þessari sýningu.

    Bubbi Morthens er samofinn þjóðarsálinni í öllum sínum birtingarmyndum: Stjarnan sem rís úr slorinu; fyrst sem málsvari verkalýðsins, svo alþýðusöngvari þjóðarinnar, þá atómpönkari og gúanórokkari sem breytist í ballöðu-poppara sem syngur með stórsveitum. Skoðanaglaði gasprarinn, skrifblinda ljóðskáldið, fíkilinn sem reis upp, kvennamaðurinn og sá sem elskar aðeins eina konu, Kúbverjinn og Hollywood-víkingurinn, veiðimaðurinn, friðarsinninn og boxarinn. Sögur Bubba Morthens eru sögur okkar allra; sögur Íslands. En hver er hann í raun og veru? Og hver erum við?

    Rúi og Stúi

    mar 16, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Leikfélag Kópavogs sýnir barnaleikritið Rúa og Stúa í Leikhúsinu í Kópavogi.

    Rúi og Stúi hafa smíðað vél sem getur allt. Hún getur búið til hluti, gert við hluti, gert afrit af hlutum og jafnvel gert nákvæma styttu af bæjarstjóranum. Eða hvað? Vélin bilar, bæjarstjórinn hverfur og dularfull kráka og enn dularfyllri stórþjófur koma öllu í uppnám. Hvað er til ráða annað en að baka sjálfur jólaköku? Fær Bergsteinn aðstoðarmaður sinn ástkæra bæjarstjóra aftur? Tekst Rúa og Stúa að gera við vélina?

    Leikfélag Kópavogs sýnir barnaleikritið Rúa og Stúa í Leikhúsinu í Kópavogi. Leikritið er eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson en leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Átta leikarar taka þátt í sýningunni en auk þess koma fjölmargir aðrir að uppsetningunni. Leikmynd er í höndum Norðanbáls, María Björt Ármannsdóttir sér um búninga, Vilborg Árný Valgaðrsdóttir um förðun, ljósameistari er Skúli Rúnar Hilmarsson og Hörður Sigurðarson sér um hljóð.

    Kafbátur

    mar 16, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Æsispennandi háskaför um hafdjúpin

    Nýtt íslenskt barnaleikrit, Kafbátur, verður frumsýnt í Kúlunni laugardaginnn 20. mars en leikritið var valið úr 150 verkum sem bárust þegar Þjóðleikhúsið auglýsti eftir barnaleikritum á síðasta ári. Höfundurinn, Gunnar Eiríksson, starfar sem leikari og leikstjóri í Noregi. Kafbátur gerist í óræðri framtíð, í heimi sem er sokkinn í sæ. Ýmsar bráðskemmtilegar persónur koma við sögu og verkið snertir bæði hjartað og hláturtaugarnar. 
    Argentína er fjörug tíu ára stelpa sem ferðast með pabba sínum um höfin í kafbát í ókominni framtíð eftir að öll lönd eru sokkin í sæ. Heimasmíðaði kafbáturinn er heil ævintýraveröld, fullur af skrýtnum uppfinningum, og pabbi segir Argentínu skemmtilegar sögur um lífið hér áður fyrr, t.d. um mömmu Argentínu sem þau feðginin eru að leita að. En þegar dularfullar persónur skjóta óvænt upp kollinum þarf Argentína að spyrja sig að því hvort pabbi segi alltaf satt og hvort fólk hafi virkilega alltaf þurft að búa í kafbátum.

    Kafbátur er fyrsta leikrit Gunnars Eiríkssonar, en hann er ungur leikari sem hefur búið og starfað í Noregi stærstan hluta ævinnar.

    Í verkinu er sögð djúp og falleg saga með miklum húmor um fjölskyldur í margbreytileika sínum, um réttinn til þess að vita sannleikann og um heiminn sem við búum í.

    Aldursviðmið: 5-12 ára

    150 handrit bárust

    Þjóðleikhúsið auglýsti í febrúar eftir nýjum leikritum fyrir börn, í því skyni að efla starfsemi leikhússins í þágu barna og hvetja til ritunar nýrra, íslenskra barnaleikrita. Leikritið Kafbátur var valið úr 150 verkum sem bárust, og fleiri handrit verða þróuð áfram.

    Birkifræ og ræktun

    Öll börn sem koma á sýninguna á Kafbáti fá birkifræ að gjöf. Þjóðleikhúsið á í samstarfi við birkiskogur.is í tengslum við sýninguna. 

    Á vefsíðunni birkiskogur.is getur þú lært sitthvað um birki og hvað þarf að gerast í lífi fræja svo þau spíri og verði að birkitrjám. Landvernd, Landgræðslan, Skógræktarfélag Kópavogs.
    Nánari upplýsingar á birkisogur.is

    “Við erum oft hrædd um að börn þoli ekki að heyra sannleikann. Þess vegna langaði mig að leyfa barninu í leikritinu að velja og taka stórar ákvarðanir, til að sýna fullorðna fólkinu að börn þola slíkt.”
    Gunnar Eiríksson
    Síður:«123456789»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!