2018 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Tjarnarbíó og Á senunni kynna:

    nóv 28, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir


    ÆVINTÝRIÐ UM AUGASTEIN

    – Jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna sem margir sjá aftur og aftur!

    – Sýnt á aðventunni sautjánda og síðasta árið í röð!

    – Síðasti séns til að upplifa Felix Bergsson flytja söguna um Augastein og sveinstaulana þrettán í Tjarnarbíói

    – Mjög takmarkaður sýningafjöldi!

    Felix Bergsson snýr aftur með Ævintýrið um Augastein á aðventunni. Margir líta á það sem hluta af jólaundirbúningnum að hlýða á Felix flytja fallega jólaævintýrið um Augastein enda hefur verkið verið sett á svið árlega, bæði hérlendis og erlendis, síðastliðin 17 ár! Nú er hins vegar komið að leiks lokum og í ár verður ævintýrið flutt í síðasta sinn í Tjarnarbíói. Sýningafjöldi er afar takmarkaður en aðeins verða sex sýningar.

    Ævintýrið um Augastein er jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna eftir Felix Bergsson í samvinnu við Kolbrúnu Halldórsdóttur og Helgu Arnalds. Verkið var frumsýnt í London árið 2002 og hefur verið sýnt reglulega á aðventunni síðan þá. Árið 2015 sneri sýningin aftur „heim“ í Tjarnarbíó og hefur algjörlega slegið í gegn að nýju og uppselt á allar sýningar. Í kjölfarið hefur Forlagið endurútgefið bókina með ævintýrinu en hún hefur veirð uppseld í áraraðir. Bókin verður til sölu á sýningum.

    Verkið er æsispennandi ævintýri sem byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða. Augasteinn litli lendir í klónum á jólasveinunum sem voru einu sinni andstyggilegir hrekkjalómar. Þeir taka ástfóstri við litla drenginn en leikar fara að æsast þegar Grýla kemur til sögunnar. Allt endar þó vel að lokum og við komumst að því hvers vegna jólasveinarnir fóru skyndilega að gefa öllum börnum í skóinn.

    Myndefni og nánari upplýsingar veitir:

    Sunna Ástþórsdóttir

    Markaðsstjóri Tjarnarbíó | Marketing Director Tjarnarbíó Theater
    sími/office: (+354) 527-2100 | gsm: (+354) 888-1321

    tjarnarbio.is + facebook.com/tjarnarbio + instagram.is/tjarnarbio + snapchat: tjarnarbio

    Ellly

    okt 25, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Síðasta uppklappið
    Elly heldur áfram að heilla landsmenn og snýr aftur í takmarkaðan tíma ásamt hljómsveit. Enn gefst tækifæri til að hrífast með söng og sögu þessarar einstöku söngkonu sem heillaði karlmenn en gerði konur afbrýðisamar auk þess að ganga þrisvar í hjónaband, drekka snákablóð og smygla forboðnum apa til Íslands.

    Katrín Halldóra Sigurðardóttir hefur hlotið einróma lof fyrir túlkun sína á einni dáðustu söngkonu þjóðarinnar. Misstu ekki af þessu vinsæla verki sem varpar ljósi á viðburðaríkt líf sem var á sínum tíma efni í safaríkar sögusagnir og slúður þótt Elly reyndi að forðast sviðsljós fjölmiðla eftir megni.

    Úrvalslið leikara og tónlistarmanna tekur þátt í sýningunni.

    Í samstarfi við Vesturport.

    Engi

    maí 9, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    engi

    Handbendi – Brúðuleikhús, atvinnuleikhús norðurlands vestra, kynnir Engi, frumsamið brúðuverk fyrir börn 3+, skapað af Gretu Clough . Sýningin var frumflutt í London síðasta sumar, og hefur verið sýnd um allt England síðan. Engi verður aðeins sýnt nokkrum sinnum á Íslandi.

    Brúðuleikhúsið Handbendi endurvekur brúðuleiksýningu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Sagan er sögð með frumlegum, handgerðum leikbrúðum og sérsaminni tónlist eftir tónskáldið og söngvarann Paul Mosley sem hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda í Bretlandi fyrir plötur sínar.

    AÐEINS EIN SÝNING í TJARNARBÍÓ
    LAUGARDAGINN 26. MAÍ KL. 15:00

    „Algjörlega töfrandi upplifun…Brúðuhreyfingarnar eru fyrsta flokks, leikhópurinn er stjörnum prýddur…Óður til heims á hverfandi hveli… mjög áhrifamikið“ (Total Theatre, London)

    „Unaðslegt verk, draumi líkast“ (Curious Mum, London)

    „Fyrir börn verða leikhúsupplifanir ekki mikið betri.“ (Reviewsgate, London)

    Brúðuleikarar: Samuel Dutton, Greta Clough, Cassie Newby
    Höfundur, leikstjóri, brúðusmiður og framleiðandi: Greta Clough
    Tónskáld: Paul Mosely

    KAUPA MIÐA

    Sýningin sem klikkar

    maí 9, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    1

    Leikhópur í Borgarleikhúsinu setur upp morðgátu við nokkuð frumstæðar aðstæður en sýningin á að vera nokkurs konar „break-through“ fyrir hópinn. Ekki byrjar það vel því fljótlega fer allt úrskeiðis; leikmyndin virkar ekki sem skyldi, hurðir opnast ekki, leikmunavörðurinn hefur ekki staðið sig í að koma fyrir hlutum á réttum stöðum og leikararnir kunna ekki almennilega textann sinn.

    Úr þessu verður ótrúleg atburðarás þar sem allt klikkar sem klikkað getur og rúmlega það – á meðan streða leikararnir við að koma til skila hinu dramatíska morðgátuleikriti. Verkið fékk Olivier-verðlaunin sem besti gamanleikurinn í Bretlandi 2015 og hefur gengið fyrir fullu húsi síðan það var frumsýnt árið 2014. Það var frumsýnt á Broadway vorið 2017.

    https://www.borgarleikhus.is/syningar/s%C3%BDningin-sem-klikkar/

    Lokasýning í kvöld 2. febrúar

    feb 2, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    medea1

    Getur hefnd læknað brostið hjarta? Hversu langt erum við tilbúin að ganga til að ná fram réttlæti? Er eignarrétturinn heilagur? Geta öfgafullar aðstæður breytt hverjum sem er í skrímsli? Medea hefur fórnað öllu fyrir mann sinn, Jason. Hún snýr baki við fjölskyldu sinni, svíkur föður sinn og fósturjörð og flýr með Jasoni til ókunnugs lands til að hefja nýtt líf.  En  þar er hún útlendingur sem ekki nýtur sömu réttinda og nú vill eiginmaðurinn yfirgefa hana til að giftast annarri konu. Medea lætur hins vegar ekki ræna sig stolti sínu og heiðri. Hún grípur til sinna ráða en þau ráð eru skelfilegri en nokkur getur ímyndað sér.

    Leikskáldið Evripídes skrifaði harmleikinn um Medeu fyrir meira en 2400 árum. Hann hefur verið settur upp oftar en nokkur annar harmleikur í leiklistarsögunni og endurskrifaður aftur og aftur í gegnum tíðina. Medea birtist hér aftur í splunkunýjum búningi.

    Medea fær fullt hús stiga.

    BS. DV. ★★★★★

    Myndrænn harmleikur fyrir okkar tíma.

    SJ. Fréttablaðið. ★★★★

    Mér fannst Kristín Þóra standa sig gríðarlega vel í hlutverki Medeu.

    SB. Kastljós.

    Ný þýðing Hrafnhildar Hagalín er í einu orði sagt frábær.

    BS. DV. ★★★★★

    Hjörtur Jóhann leikur Jason af mikilli sannfæringu.

    SJ. Fréttablaðið. ★★★★

    Forsalan hefst á morgun 1. febrúar

    jan 31, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Rocky horror1

    Forsala fyrir söngleikinn Rocky Horror hefst á morgun fimmtudaginn 1. febrúar, en verkið verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 16. mars. Fyrstu 500 miðunum sem keyptir verða á staðnum í miðasölu Borgarleikhússins fylgir miði á opna æfingu og þar með einstakt tækifæri að vera í hópi þeirra fyrstu sem sjá brot úr sýningunni. Þá verður miðinn einnig á sérstökum forsöluafslætti fyrsta daginn hvort sem keypt er á borgarleikhus.is eða í miðasölunni.

    Páll Óskar Hjálmtýsson mun leika aðalhlutverkið, Frank N Furter, en hann lék sama hlutverk í uppfærslu MH árið 1991. Þá fer söngvarinn Valdimar Guðmundsson með hlutverk Eddie, sem MeatLoaf gerði frægt í samnefndri kvikmynd.

    Aðrir leikarar í sýningunni eru Arnar Dan Kristjánsson sem Rocky, Björn Stefánsson sem Riff Raff, Brynhildur Guðjónsdóttir sem Magenta, Haraldur Ari Stefánsson sem Brad Majors, Katla Margrét Þorgeirsdóttir sem Dr. Scott, Vala Kristín Eiríksdóttir sem Columbia, Valur Freyr Einarsson sem sögurmaður og Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem Janet Weiss.

    Listrænir stjórnendur eru Marta Nordal, Jón Ólafsson, Lee Proud, Bragi Valdimar Skúlason, Ilmur Stefánsson, Fillipía Elísdóttir, Elín Sigríður Gísladóttir og Björn Bergsteinn Guðmundsson.

    39 og 1/2 vika í Lyngbrekku

    jan 29, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    39og12vika

    Leikdeild Skallagríms frumsýnir leikritið 39 og ½ vika eftir Hrefnu Friðriksdóttur þann 16. febrúar næstkomandi. Hrund Ólafsdóttir leikstýrir.

    Miðasala hefst 1. febrúar og kostar miðinn 3000 kr. Hægt er að panta miða í síma 8462293 eða á leikdeildskalla@gmail.com. Posi og veitingasala á staðnum.

    Félagið er á snapchat og þar er hægt að fylgjast aðeins með æfingum hjá hópnum, leitið að leikdeildskalla á snapchat.

    Svo er hægt að skoða facebook síðuna : https://www.facebook.com/leikdeildskalla

    50. sýningin – Brot úr hjónabandi

    jan 29, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Brot úr hjónabandi 1

    Jóhann og Maríanna hafa verið gift í tíu ár. Þeim gengur vel, hafa náð langt í starfi, eiga tvö börn og hjónaband þeirra virðist endalaus hamingja. Þangað til Jóhann tilkynnir Maríönnu að hann vilji skilja.

    Við tekur hressandi kvöldstund þar sem allt er gert upp: Hjónabandið, sambandið, vináttan, kynlífið, draumarnir, gleðin, sorgin, vonin og frelsið – og öll uppáhaldslögin.

    Verkið byggir á tíu þátta sjónvarpsseríu Ingmars Bergman sem sýnd var í sænska sjónvarpinu árið 1973 við svo miklar vinsældir að götur Svíþjóðar tæmdust. Síðar voru þættirnir sýndir um allan heim. Leiksviðsútfærslan var frumsýnd í leikstjórn höfundar árið 1981 í München og hefur síðan verið sýnd í fjölda leikhúsa um allan heim.

    Úr gagnrýni

    „Ég öfunda þá sem eiga eftir að sjá þessa sýningu. Hún er snilld.“
    SA. tmm.is

    „Leiklist nær tæpast hærri hæðum!“
    JSJ. Kvennablaðið

    „Sjáið endilega þessa sýningu – hún er verulega góð!“
    DK. hugras.is

    „Unnur Ösp og Björn Thors eru afburðagóðir leikarar“
    DK. hugras.is

    „Björn Thors og Unnur Ösp Stefánsdóttir eru ekki bara hjón, þau eru einhverjir albestu leikarar sem við eigum nú um stundir.“
    SA. tmm.is

    „Þetta er fallega unnin sýning, af skynsemi, húmor og alúð,“
    MK. Víðsjá

    „Of gott til að vera satt“
    HA. Kastljós

    „Þau (Unnur & Björn) standa á hátindi síns ferils“
    HA. Kastljós

    „Ein af þessum stundum í leikhúsinu þar sem allt tekst“
    HA. Kastljós

    „Ég vil hvetja fólk sem er í nýjum ástarsamböndum, sem er búið að vera lengi í ástarsamböndum, sem eru í hjónaböndum, sem eru að hugsa um að skilja eða þau sem ætla aldrei að skilja að fara og sjá þessa sýningu“
    HA. Kastljós

    Slá í gegn – forsölutilboð til 1. febrúar

    jan 24, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    sláígegn1

    Nýr, íslenskur söngleikur, þar sem stór hópur leikara, dansara og sirkuslistamanna skapar litríkan, óvæntan og fjölbreyttan heim! Tónlistin í söngleiknum er sótt í smiðju Stuðmanna.

    Guðjón Davíð Karlsson, Gói, semur söngleikinn sem gerist í litlu byggðarlagi á Íslandi. Þegar framsækinn draumóramaður mætir á svæðið með nýja sirkusinn sinn, ásamt fjölskyldu sinni og litríkum hópi sirkuslistafólks, hleypur nýtt blóð í leikfélagið á staðnum. Nú er loksins komið almennilegt tækifæri til að láta ljós sitt skína og slá ærlega í gegn!

    Útkoman er bráðfyndin, glæsileg og æsispennandi sýning þar sem við sögu koma séra Baddi hnífakastari, skeggjaða konan, Frímann flugkappi og fleiri stórskemmtilegar persónur.

    Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!

    Risaeðlurnar enn í gangi

    jan 21, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Risaeðlurnar

    Sýningin Risaeðlurnar eftir Ragnar Bragason gengur ennþá fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu en sýningum fer fækkandi.

    Listakona og sambýlismaður hennar þiggja hádegisverðarboð íslensku sendiherrahjónanna í Washington. Útverðir lands og þjóðar bjóða upp á þríréttað úr íslensku hráefni, borið fram af ungri, kínverskri húshjálp. Smám saman kemur í ljós að undir glæsilegu yfirborðinu leynast óþægileg leyndarmál. Í gestahúsi við sendiráðsbústaðinn er sonur hjónanna falinn eins og fjölskylduskömm. Þegar hann gerir sig heimakominn í boðinu fara beinagrindurnar að hrynja úr skápnum ein af annarri.

    Risaeðlurnar, lokahluti leikhúsþríleiks Ragnars Bragasonar um afkima íslensks samfélags, er nístandi gamanleikur þar sem fortíð, nútíð og framtíð þjóðar mætast.

    Fyrri leiksýningar höfundar, Gullregn og Óskasteinar, slógu í gegn á sínum tíma og hlutu báðar fjölda tilnefninga til Grímunnar og Grímuverðlaun.

    Síður:12»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!