2015 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    AT eftir Mike Bartlett

    sep 15, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    AT stórTvö störf. Þrír umsækjendur. Andrúmsloftið er rafmagnað. Vinnufélagar bíða eftir mikilvægu starfsviðtali og fjandinn er laus. Fals og lygi svífa yfir vötnunum. Persónurnar leggja sig fram um að atast hver í annarri af grimmilegu miskunnarleysi. Staðan er fullkomlega ótrygg og áhorfendur komast ekki hjá því að sogast inn í keppnina. Samviskubitið gerir sig líklegt til að naga okkur inn að beini. Leikskáldið bendir á nístingskaldan sannleikann um okkur sjálf. Enginn vill vera í hlutverki þess sem tapar.

    Mike Bartlett (f. 1980) er eitt helsta og afkastamesta leikskáld Breta um þessar mundir. Hann hefur sent frá sér fjöldamörg verk á undanförnum árum, Bull var frumsýnt 2013 og endursýnt í Young Vic leikhúsinu í London 2015 þar sem það hlaut frábærar viðtökur og var sýnt fyrir fullu húsi í margar vikur. At hlaut Bresku leiklistarverðlaunin árið 2013 sem besta nýja leikritið.

    Kristín Eysteinsdóttir, Borgarleikhússtjóri leikstýrir verkinu. Leikarar eru Eysteinn Sigurðarson, Vala Kristín Eiríksdóttir, Valur Freyr Einarsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.

    4:48 Psychosis eftir Söruh Kane

    sep 7, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    4.48 sarah kane stór4:48 Psychosis eftir Söruh Kane verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu þann 10. september.

    Þetta er frumuppsetning hér á landi en leikverkið hefur vakið gríðarlega athygli og umtal um allan heim síðan það var frumsýnt í Bretlandi árið 2000.

    Edda Björg Eyjólfsdóttir hefur yfirumsjón með sýningunni og hefur fengið glæsilegan hóp listamanna með sér. Búningar eru í höndum Filippíu Elísdóttir, um leikmynd sér Stígur Steinþórsson, Stefán Már Magnússon og Magnús Örn Magnússon eru ábyrgir fyrir tónlist og hljóðmynd. Sigurlaug “Didda” Jónsdóttir þýðir, Stefán Hallur Stefánsson er dramatúrg, Friðrik Friðriksson leikstýrir og Edda Björg Eyjólfsdóttir leikur.

    Sarah Kane hengdi sig með skóreimunum sínum árið 1999. Skrif hennar einkennast af ákafri og hatrammri baráttu höfundarins við alvarlegt þunglyndi og var 4:48 PSYCHOSIS kveðjukoss hennar til leiklistarinnar sem hún hafði tekið ástfóstri við. Í örvæntingarfullri einangrun og með ástríku vonleysi sýnir hún okkur sál á mörkum lífs og dauða sem rökræðir réttlætingu þess að taka eigið líf.

    Verkefnið er einnig styrkt af Reykjavíkurborg og er sýnt í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

    Frumsýning, 10. september kl. 19:30
    Önnur sýning, 13. september kl. 19:30
    Þriðja sýning, 16. september kl. 19:30

    Heimkoman

    sep 3, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Heimkoman stór

    Teddy snýr óvænt heim á æskuheimili sitt í London með eiginkonu sinni Rut, eftir að hafa kennt heimspeki við háskóla í Bandaríkjunum í sex ár. Rut uppgötvar áður óþekktar hliðar á eiginmanni sínum þegar hún kynnist fjölskyldu hans: föður hans Max, fyrrum slátrara, föðurbróður hans Sam sem er bílstjóri, og bræðrum hans tveimur, hórmangaranum Lenny og boxaranum Joey. Þessir óhefluðu karlmenn taka að bítast um athygli Rutar og samskiptin á heimilinu verða sífellt ofsafengnari.

    Leikrit Harolds Pinters hafa mörg hver allt að því hversdagslegt yfirbragð, en í þeim býr óvenjulegur kraftur, og undir yfirborðinu leynast heiftúðug átök, kynferðisleg spenna, kúgun og ótti. Heimkoman var frumflutt árið 1965, hlaut Tonyverðlaunin sem besta leikrit ársins og er af mörgum talið magnaðasta verk Pinters.

    Leikstjóri sýningarinnar er Atli Rafn Sigurðsson. Leikarar eru Björn Hlynur Haraldsson, Eggert Þorleifsson, Ingvar E. Sigurðsson, Ólafur Egill Egilsson, Snorri Engilbertsson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir.

    Opið hús í Borgarleikhúsinu

    ágú 28, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    borgarleikhúsið 2015 stór

    Allir eru velkomnir á opið hús í Borgarleikhúsinu laugardaginn 29. ágúst á milli kl. 13 og 16. – og að sjálfsögðu er ókeypis aðgangur.

    Í forsal leikhússins verður fjölbreytt tónlistardagskrá ásamt Línu Langsokk og Herra Níels sem munu skemmta. Veislustjóri er Kenneth Máni. Vignir Þór Stefánsson og félagar spila, Þrjár basískar stíga á svið, fram koma Brynhildur Guðjónsdóttir, Jóhann Sigurðsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Hundur í óskilum – auk þess sem ýmsar óvæntar uppákomur verða því leikhúsið getur sprottið fram alls staðar!

    Atriði úr Billy Elliot og Blæði frá Íslenska dansflokknum verða á stóra sviðinu. Opnar æfingar á Sókrates, Öldinni okkar, Hystory og Ati. Skoðunarferðir verða reglulega yfir daginn og verður fólk leitt um króka og kima þessa stærsta leikhúss landsins. Þar verður baksvið skoðað, búningageymslur, æfingasalir, förðunardeild, smíðaverkstæði og margt fleira.

    Opið hús er orðinn fastur liður í menningarlífi Reykvíkinga. Siðurinn hófst þegar Leikfélag Reykjavíkur flutti í Borgarleikhúsið fyrir 20 árum síðan og hefur verið haldið í heiðri nær óslitið síðan. Borgarbúar kunna að meta daginn og flykkjast í leikhúsið til að kynna sér verkefni vetrarins. Aðsókn að Opnu húsi hefur alltaf verið góð og þúsundir manna flykkst í Borgarleikhúsið.

     

     

    Leiklistarnámskeið

    ágú 27, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    KopleikLíkt og undanfarin ár stendur Leikfélag Kópavogs fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn og unglinga. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6. og 7. bekk) og hinsvegar fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára (8. bekk og eldri). Þau hefjast 8. sept. og standa til loka nóvember. Leiðbeinendur eru Guðmundur L. Þorvaldsson og Ástþór Ágústsson og Guðlaug Björk Eiríksdóttir verður þeim innan handar. Guðmundur er m.a. menntaður frá New York Film Academy auk fjölmargra námskeiða í leik og leikstjórn og stýrði unglingastarfi félagsins á síðasta ári. Ástþór er menntaður leikari frá Rose Bruford College í London. Guðlaug Björk er gamalreyndur félagsmaður í LK.

    Námskeiðin verða vikulega á þriðjudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri hóp en kl. 17.15-19.15 hjá eldri hópi. Þau munu standa í 11 vikur til og með 17. nóvember. Í lok námskeiðs mun eldri hópur æfa upp og sýna stutt frumsamið leikrit og er gert ráð fyrir um tveggja vikna vinnu eftir námskeiðið í það.

    Kynningarfundur vegna námskeiðanna verður haldinn sun. 6. sept. kl. 16.00 í Leikhúsinu Funalind 2. Þar er hægt að skrá sig á námskeið en bent er á að takmarkaður fjöldi kemst að. Hægt er að skrá sig á námskeiðið með því að senda póst á lk@kopleik.is með nafni og kennitölu þátttakanda auk nafns forráðamanns og síma. Einnig er hægt að biðja þar um frekari upplýsingar.

    Námskeiðið kostar 15.000 kr. á mann en þátttakendur með lögheimili í Kópavogi geta fengið frístundastyrk á móti sem nemur um 2/3 hlutum þátttökugjalds.

    Námskeið í Haraldinum

    ágú 26, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    improv-mynd stór

    Hefur þú áhuga á að læra Haraldinn (long-improv)?

    HARALDURINN 1

    Skráning hafin á byrjendanámskeið í Haraldinum í september. Kennari verður Bjarni Snæbjörnsson.

    Námskeiðið hefst 9. september og lokatíminn verður 5.október.
    Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl 19-22.
    Verð 30.000

    UNGMENNANÁMSKEIÐ (16-20 ára) 

    Kennarar verða Auðunn Lúthersson og Ólafur Ásgeirsson.
    Námskeiðið hefst 10. september og lokatíminn er 29. október.
    Kennt verður á fimmtudögum kl 19-22.
    Verð 30.000


    Skráning á improvharaldurinn@gmail.com.

    (ath. síðustu Haralds-námskeið hafa fyllst á nokkrum klukkutímum).

    SÓKRATES

    ágú 25, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    sókrates stór

    Trúðar Borgarleikhússins hafa fært okkur dásamlegar sýningar. Við höfum séð trúðana okkar glíma við dauðasyndir og jólaguðspjallið. Nú ætla þeir að tækla heimspekina og taka Sókrates sér til fyrirmyndar og spyrja og spyrja og spyrja þangað til við komumst að minnsta kosti skrefi nær því að vita um hvað við getum verið sammála um í heiminum. Trúðum er ekkert óviðkomandi. Í opinni og einlægri nálgun glíma þeir við stóru spurningarnar og eru í senn fyndnir og harmrænir, grimmir og góðir.

    Síðasta trúðasýning Borgarleikhússins, Jesús litli, var ótvíræður sigurvegari Grímunnar árið 2010. Jesús litli var valin sýning ársins og leikverkið sjálft var valið leikrit ársins auk þess sem sýningin hlaut sjö Grímutilnefningar. Gagnrýnendur hlóðu sýninguna lofi og áhorfendur voru hrærðir og yfir sig hrifnir.

    Verkið verður sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins. Leikarar eru Bergur Þór Ingólfsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Maríanna Lúthersdóttir. Leiksjórar eru Bergur Þór og Rafael Bianciotto.

    Móðurharðindin

    ágú 23, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    móðurharðindin stórGamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna, þar sem kynhlutverkin eru stokkuð rækilega upp eftir Björn Hlyn Haraldsson.

    Ólíkindatólið Friðrika er nýorðin ekkja og býr ein í gömlu, ríkmannlegu húsi. Hennar eini félagsskapur er húshjálpin Snæbjörn sem lætur lítið fyrir sér fara. Börnin hennar María og Arnmundur hafa ekki séð móður sína í mörg ár en snúa nú aftur á ættaróðalið til að fylgja föðurnum til grafar. Presturinn Svalbrandur gerir sitt besta til að fá rétta mynd af lífi hins látna en það leynist margt undir yfirborðinu og jarðarförin á eftir að setja líf þeirra allra úr skorðum.

    Sprenghlægilegt uppgjör við fyrirbærið „fjölskyldu“ með bræðrunum Árna Pétri Guðjónssyni og Kjartani Guðjónssyni í aðalhlutverkum og hinum frábæru gamanleikurum Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Sigurði Sigurjónssyni og Hallgrími

    Frumsýnt 5. september í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.

     

    Í HJARTA HRÓA HATTAR

    ágú 20, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    hróihöttur stór1

    Í þessari nýju sýningu úr smiðju Vesturports, Þjóðleikhússins og Royal Shakespeare Company ræna Hrói höttur og hinir miskunnarlausu liðsmenn hans hvern þann sem vogar sér inn í Skírisskóg, án þess að gefa nokkuð til hinna fátæku. Hér er það hin hugrakka Maríanna sem þarf að berjast fyrir réttlætinu og takast á við hin myrku öfl, en Jóhann prins þjakar almenning með ofbeldi og nýjum og hærri sköttum, og ætlar sér að leggja allt ríkið undir sig. Hrói getur lært sitthvað af Maríönnu um hvað það er að vera raunveruleg hetja, því án hennar verður landinu steypt í glötun.

    Það er glæsilegur leikhópur sem kemur saman í þessari ævintýrasýningu í Þjóðleikhúsinu. Tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld, sem hlaut nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin, hefur samið nýja tónlist fyrir sýninguna og flytur hana ásamt hljómsveit á sviðinu.

    Gleymdu öllu því sem þú þykist vita um Hróa hött! – Hér er goðsögunni um þennan fræga útlaga snúið á hvolf í þessari leiksýningu, sem hefur nú þegar slegið í gegn beggja vegna Atlantshafsins.

    Improv Ísland á Menningarnótt

    ágú 20, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    improv-mynd stór

    Improv Ísland sýnir sextán spunasýningar í röð á átta klukkutímum í Þjóðleikhúskjallaranum á Menningarnótt. Á hálftíma-fresti verður ný sýning búin til og sú sýning verður aldrei aftur endurtekin.

    Á hverri sýningu verður endurraðað í leikhópinn og unnið með ólík lang-spunaform eins og Haraldinn, Söngleik spunnin á staðnum (við undirleik Karls Olgeirssonar ) og Martröð leikarans með sérstökum gestum úr leikhúsum landsins.

    Leikhópurinn Improv Ísland stendur að viðburðinum og endurtekur leikinn frá því síðustu Menningarnótt þegar færri komust að en vildu og því er lengd spuna-maraþonsins tvöfölduð frá því í fyrra.

    Leikhópurinn á Menningarnótt samanstendur af í kringum 40 spunaleikurum sem hafa æft og sýnt langspuna síðustu misseri undir leiðsögn Dóru Jóhannsdóttur en hún hefur lært aðferðina síðustu ár hjá Upright Citizen´s Brigade (UCB) í New York.

    Síður:«12345678...17»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!